Fréttablaðið - 28.10.2006, Side 83
28. október 2006 LAUGARDAGUR42
U
ndanfarna fjóra
laugardaga höfum
við fylgst með þeim
Siggu, Ástu og Elísa-
betu þar sem þær
hafa fylgt aðferðum
bókarinnar Þú léttist – án þess að
fara í megrun. Bókin leggur til
ákveðna dagskrá þar sem bent er
á leiðir til að brjótast út úr vana-
festu, eitt skref á dag, sem getur
falið í sér að fara aðra leið í vinn-
una eða lesa annað dagblað þann
daginn.
Árangurinn hjá konunum þrem-
ur hefur verið misgóður og sumir
kaflar bókarinnar reynst þeim
erfiðari en aðrir. Karen segir það
alveg eðlilegt að þeim þyki sumt
erfitt sem bókin býður þeim að
gera enda séum við öll dálítið föst
í viðjum vanans. „Það getur verið
óþægilegt fyrir suma að reyna
eitthvað nýtt og þess vegna ákváð-
um við að láta fólk breyta ein-
hverju örlitlu á hverjum degi í
staðinn fyrir að gera stórar breyt-
ingar,“ segir Karen og leggur
áherslu á að sú tilbreyting sem
bókin leggur til fyrir hvern dag
þurfi aðeins að gera einu sinni yfir
daginn. „Það er ekki ætlast til þess
að persónuleikanum sé breytt yfir
heilan dag, heldur bara litlu í einu.
Smám saman fer fólk síðan að
verða áræðnara við að stíga út
fyrir sitt þægindasvið og þá fer
það að léttast.“
Venjurnar leiða til ofáts
Ástæðuna fyrir því að fólk léttist
við það eitt að verða sveigjanlegra
í athöfnum segir Karen vera þá að
venjurnar sem fólk er fast í hvetja
margar hverjar til ofáts. „Til
dæmis er algengt að fólk fari beint
í ísskápinn þegar það kemur heim
úr vinnunni og setjist síðan við
sjónvarpið um kvöldið með snakk
í skál. Það er mun auðveldara fyrir
fólk að ráðast beint að munstrinu í
kringum matarvenjurnar heldur
en beint á matarvenjurnar sjálfar.
Það eru svo margar kveikjur yfir
daginn sem verða til þess að fólk
fær sér að borða. Ef venjurnar
yfir daginn eru brotnar upp þá
breytast matarvenjurnar sjálf-
krafa líka,“ útskýrir Karen og
bætir því við að fólk hætti smám
saman að borða of mikið og breyti
öllum matarvenjum sínum þannig
að þær verði heilbrigðari. „Ef þú
sleppir því að horfa á sjónvarpið
eitt kvöld þá sleppir þú því líka að
narta í snakkið sem þú ert alltaf
með við sjónvarpið. Þegar fólk
síðan venst því að verða sveigjan-
legra verður það hamingjusamara
og leitar því ekki huggunar eða
félagsskapar í matnum. Það er of
upptekið við að njóta lífsins.“
Langtímalausnir taka lengri tíma
Karen segir árangur kvennanna
þriggja í átaki Fréttablaðsins vel
ásættanlegan. „Það er mikilvægt
að þeir sem nýta sér þessa leið geri
sér grein fyrir því að þetta er engin
skyndilausn þar sem lofað er að
fólk grennist um tvær buxnastærð-
ir á tveimur vikum. Þetta verður
að vera langtímalausn og tekur því
aðeins lengri tíma. Þessar skyndi-
lausnir virka oft vel í stuttan tíma
en á endanum er fólk búið að bæta
við sig öllu aftur og oft meiru til.
Þess vegna er ekki betra að léttast
hratt og með öfgafullum aðgerðum
heldur hægt og örugglega,“ segir
Karen og bendir á að þessar hröðu
megranir séu oft kallaðar jójó-
megranir sem fólk stundi þó jafn-
an árum saman þangað til þær fari
að hafa verulega slæm áhrif, bæði
líkamlega og andlega.
Karen hefur þau skilaboð til
Siggu, Ástu og Elísabetar að halda
áfram og gera þetta á þeirra eigin
hraða. „Reynið að hugsa þetta ekki
eins og þið séuð undir þrýstingi og
gerið verkefnin í þeirri röð sem
hentar ykkur. Reynið bara að gera
þau og breyta einhverju örlitlu á
hverjum degi meðan þið eruð að
venjast þessu. Á endanum ætti
ykkur að vera farið að finnast
þetta skemmtilegt og þá njótið þið
þess að breyta til.“
sigridurh@frettabladid.is
Lítil skref að nýjum lífsstíl
Dr. Karen Pine er einn höfunda bókarinnar Þú léttist – án þess að fara í
megrun. Hún er dósent í þróunarsálarfræði við Háskólann í Hertfordskíri í
Englandi auk þess sem hún hefur unnið við fjölda rannsókna um hugsunar-
hátt barna og líkamsímynd kvenna. Sigríður Hjálmarsdóttir ræddi við hana
um bókina og árangurinn sem næst við að fylgja henni.
ENGIN SKYNDILAUSN Karen leggur
áherslu á að aðferðirnar í bókinni virki
vel til lengri tíma litið en ekki sé um
neinar skyndilausnir að ræða.
N ú eru þær Sigga, Ásta og Elísabet búnar að fylgja eftir hinni byltingarkenndu bók, Þú léttist – án þess að fara í megrun, í fjórar vikur og hafa samanlagt
lést um 4,5 kíló. Allar eru þær mjög hrifnar af bókinni og
ákveðnar í að fara í gegnum hana aftur og þá á eigin hraða
og eigin forsendum. Bókin leggur til lífsstílsbreytingu sem
felur í sér að brjóta upp vanafestuna og reyna eitthvað nýtt
á hverjum degi. Með því móti á að vera hægt að breyta
munstrinu í matarvenjum og fólk léttist, eins og konurnar
þrjár hafa reynt.
Sigga Lund
Hvernig gekk síðasta vikan? Síðasta vikan búin, sem betur
fer en þetta var mjög pirrandi vika. Verkefnin voru virki-
lega erfið og kröfðust mikilla pælinga, auk þess að horfast í
augu við sinn eigin ótta. Ástæðan fyrir því að síðasta vika
var svona pirrandi var að ég leyfði mér bara að vera í friði
með mína vana. Það er bara stundum erfitt að breyta og
gera öðruvísi en maður er vanur. Þannig að það fór í taug-
arnar á mér.
Í heildina er ég núna búin að léttast um tvö kíló á þessum
fjórum vikum og það er bara alveg eins og mælt er með.
Hvernig finnst þér vikurnar fjórar hafa verið? Mér finnst
þessi bók fínasta aðferð til þess að takast á við líf sitt og
aukakílóin í leiðinni. Ég mæli alveg með því að fólk prófi
þetta og taki sér
góðan tíma í það.
Bókin eykur á trúna
á að þetta sé ger-
legt. Ég held ekki
lengur að ég verði
alltaf of þung, eins
og ég hef oft haft á
tilfinningunni. Um
árin hef ég verið að
sprikla í ræktinni,
farið í endalausar
megranir og þá
hugsa ég oft í upp-
gjöf að ég nenni
þessu ekki enda
verði ég bara svona.
Núna sé ég að það
er hægt að breyta
hegðuninni og munstrinu í sambandi við mataræðið þó það
sé ekkert farið í mataræði bókinni.
Heldurðu að þetta breyti lífsstíl þínum til langframa? Mér
finnst það engin spurning að þetta geti verið lífstíðarbreyt-
ing á svo margan hátt. Ekki bara hvað varðar áhyggjurnar
af mataræðinu og aukakílóunum, heldur opnar þetta bara
huga manns rosalega mikið og er pínulítil sjálfsskoðun að
auki.
Ég er alveg ákveðin í því að fara aftur í skrefin frá upp-
hafi á mínum eigin forsendum og án allra skýrslugerða. Ég
ætla að gera þetta af miklu meiri ástríðu og samviskusemi
enda veit ég núna að hverju ég geng.
Bókin hefur gert það að verkum að ég hugsa öðruvísi um
mataræðið í dag en áður en ég byrjaði. Ef ég fæ einhverja
þörf fyrir að kaupa mér nammi meðan ég horfi á sjónvarpið
þá bremsa ég mig af og ákveð að breyta til í það skipti, í
staðinn fyrir að rjúka út í sjoppu að kaupa mér bland í poka.
Þannig að í rauninni þá hefur hugsunarhátturinn breyst
gagnvart þessu án þess að ég hafi beinlínis tekið eftir því.
Ásta Sólveig Hjálmarsdóttir
Hvernig gekk síðasta vikan? Það gekk bara mjög illa í þess-
arri viku, verr en í síðustu viku enda er ég núna búin að
bæta á mig hálfu kílói. Þannig að ég er farin að efast um að
þetta virki nokkuð fyrir mig. Gekk voða vel fyrstu tvær
vikurnar og þá
léttist ég um rúm-
lega eitt og hálft
kíló en síðan hefur
það ekki gengið
nógu vel.
Hvernig finnst
þér þessar fjórar
vikur hafa verið?
Mér fannst þetta
mjög skemmtilegt
til að byrja með
en svo varð þetta
bara erfitt af því
það var svo mikil
pressa.
Ég hef tekið
eftir því síðasta
mánuðinn að
stundum þegar ég
hef ekkert að gera
þá ákveð ég að fá mér bara að borða. Svo fer ég að hugsa
mig um og átta mig þá á því að ég sé í rauninni ekkert svöng
og geti vel beðið með það fram að kvöldmat. Ég sé það núna
að þetta er allt alveg svakalega mikil rútína.
Heldurðu að bókin breyti lífsstíl þínum til langframa? Ég sé
það alveg fyrir mér að þetta gæti orðið til lífsstílsbreyting-
ar til lengri tíma litið enda hefur þegar orðið svo mikil
breyting á mínum högum að mig munar varla um nokkra
hluti í viðbót. Ég var náttúrlega að flytja, byrja í nýrri vinnu
og fleira sem fylgir því. Þá ætti ekki að vera erfitt að breyta
einhverju í viðbót.
Ég ætla pottþétt að lesa bókina aftur þegar ég er búin að
koma mér betur fyrir í Stykkishólmi enda er ég bara nýflutt
þangað.
Mér finnst bókin alveg frábær og ekki bara til þess að
léttast heldur líka til að breyta viðhorfi. Það var rosalega
gaman fyrstu vikuna að gera hluti sem maður er ekki vanur
að gera en fyrirmælin voru mjög skýr þá viku. Síðan kom
að því að breyta hugsunarhætti og framkomu og það er
bara mjög erfitt. Mér fannst aðstæður mínar alls ekki bjóða
upp á að vera með miklar breytingar gagnvart fólkinu í
kringum mig.
Aftur á móti þá langar mig mikið til þess að fara í bókina
aftur og þá á mínum eigin hraða og án þess að það sé opin-
bert átak.
Mér finnst þetta mjög sniðug bók og ekkert endilega
bara í tengslum við að léttast. Það er í rauninni margt annað
sem skiptir meira máli í þessarri bók það er í raun bara
bónus að léttast.
Elísabet Ólafsdóttir
Hvernig gekk fjórða vikan? Ég er búin að léttast um 600
grömm síðustu vikuna þrátt fyrir að hafa átt dálítið erfitt
með að framfylgja öllu sem ég átti að gera. Ég las allt um
verkefni vikunnar og fannst margir mjög góðir punktar í
þessu eins og til dæmis að byrja að haga sér eins og forvitið
barn og að taka eftir hlutum öðruvísi. Litlir hlutir eins og
hvort það séu tyggjó á götunni eða hvort hún sé hrein.
Hvernig finnst þér þessar fjórar vikur hafa verið? Ég ætla
að gera þetta aftur og gefa mér meiri tíma í að átta mig á
þeim skrefum sem ég réð illa við í fyrri umferðinni. Í heild-
ina hefur þetta verið mjög skemmtilegt og ég er búin að
fara á fjöldamörg trúnó í gegnum þetta allt og sökuð um allt
of djúpt blogg í kjölfarið.
Ég er hins vegar alveg viss um að þegar ég hætti að gefa
skýrslu í Frétta-
blaðið þá eigi ég
eftir að njóta þess
mun betur að gera
þetta.
Heldurðu að bókin
breyti lífsstíl
þínum til lang-
frama? Mér finnst
þetta mjög góð
bók. Hún fjallar
um að opna hug-
ann og sjá sjálfan
sig frá öðru sjón-
arhorni. Þegar það
gerist þá fer
maður að hugsa
betur um sjálfan
sig og þar af leiðandi að lifa heilnæmara lífi.
Bókin snýst um að fá fólk til að sjá að það getur breytt
sjálfu sér og þá líður því betur. Þegar manni líður betur þá
borðar maður hollari mat. Það er æðislegt.
Hvort sem þetta er hin fullkomna megrunaraðferð eða
ekki þá er þetta hin fullkomna lífsaðferð, finnst mér. ■
Léttari og ánægðari með lífið