Fréttablaðið - 28.10.2006, Side 85
28. október 2006 LAUGARDAGUR44
K
veikjan að þessari
samantekt, um ill-
menni í íslenskum
kvikmyndum, er
frábær frammistaða
Theódórs Júlíusson-
ar í hlutverki Elliða í Mýrinni. En
þegar til kastanna kom reyndist
flóknara að finna hreinræktuð fúl-
menni í íslenskum bíómyndum en
ætla hefði mátt í fyrstu.
Í ágætum pistli sem Sigríður
Pétursdóttur kvikmyndafræðing-
ur skrifaði í fagtímaritið Land og
syni fyrir nokkru: „Þá riðu hetjur
um héruð...“, um karlímyndina í
íslenskum kvikmyndum, kemur
fram skortur á hetjum, úrræða-
góðum og atkvæðamiklum. Hins
vegar hefur borið mest á karl-
mönnum sem eru „liðleskjur,
margir hverjir óheiðarlegir, latir,
sjálfselskir, halda fram hjá, eru
oft á tíðum algjör kvikindi og ekk-
ert á þá að treysta. Eða eru bara
aumingjar með hor sem láta kerl-
ingar ráðskast með sig.“
Í ljósi þessa ætti að vera af
nægu að taka þegar illmennin eru
annars vegar. En það er öðru nær.
Annað hvort er um paródíu á
„vonda kallinn“ að ræða og/eða
duglausum aumingjum Sigríðar
er til að dreifa. Séu þeir illmenni,
eða fremji illvirki, þá eru þeir
afsprengi umhverfis síns og
þannig gjarnan fórnarlömb sjálfir.
Svo virðist sem íslenskum kvik-
myndagerðarmönnum upp til hópa
sé í mun að skapa samúð með þess-
um aumingjum sínum og þá getur
reynst erfitt að flokka persónurn-
ar sem rakin illmenni. Kvik-
myndasérfræðingar Fréttablaðs-
ins settu þó saman topp tíu lista
illmenna og var rétt svo að tókst
að skrapa saman í hópinn.
jakob@frettabladid.is
1. ELLIÐI Theódór Júlíusson í
Mýrinni eftir Baltasar Kormák.
Elliði er svo óárennilegur og
sannfærandi sem illmenni, fauti
og refsifangi að þegar Theódór
Júlíusson hringdi í frambjóðand-
ann Guðmund Steingrímsson, þá
búinn að sjá Mýrina, til að lýsa
yfir stuðningi við framboð hans,
þá varð Guðmundur hálf hræddur.
Reyndar er annað illmenni í Mýr-
inni sem vel kom til álita á lista
yfir illmenni, en það er Rúnar sem
Eyvindur Erlendsson leikur. En
Elliði drepur aumingjann Rúnar
sem því fær ekki að fljóta með
hér.
2. KAUPAMAÐURINN Sveinn
M. Eiðsson í Óðali feðranna eftir
Hrafn Gunnlaugsson
Þessi persóna Hrafns var með
slíkum ósköpum að mörg börn
fengu martröð eftir að hafa séð
Óðal feðr-
anna. Kaupa-
maðurinn
reynist algert
ómenni, sóða-
og suddaleg-
ur aumingi
sem notfærir
sér aðstöðu
sína og neyðir þroskahefta heima-
sætuna til samræðis. Sveinn M.
Eiðsson var frábær í hlutverkinu
og svo sannfærandi að margir
urðu, á hinum mikla vori í íslenskri
kvikmyndagerð, til að tengja hann
ómaklega persónunni.
3. RÓBERT Steindór Hjörleifsson
í Morðsögu eftir Reyni Oddsson
Í þessari fyrstu alíslensku kvik-
mynd í fullri lengd leikur Steindór
ofbeldisfullan heimilisföður af
miklu öryggi. Róbert kúgar eigin-
konu sína og nauðgar stjúpdóttur
sinni. Þetta verður til þess að þær
mæðgur drepa ódáminn og segja
þá bíógestir: Farið hefur fé betra.
4. SÍRA JÓN MAGNÚSSON Hilm-
ir Snær Guðnason í Myrkrahöfð-
ingjanum eftir Hrafn Gunnlaugs-
son
Síra Jón er vitaskuld frægur úr
sögunni og gerir Hrafn sér mat úr
Píslarsögu hans í Myrkrahöfðingj-
anum. Hugumdjarfur tekur hann
við brauði vestur á fjörðum en
verður fljótlega fórnarlamb óra
sinna og
paranoju.
Hann sér
galdramenn
og fordæður í
hverju horni
sem leiðir til
þess að sjálf-
ur verður
hann kvalari
sóknarbarna sinna. Hér má vissu-
lega segja að Jón sé sjálfur ákveð-
ið fórnarlamb veiki sinnar – en á
móti kemur að segja má að ill-
menni teljast tæplega heil á geði
þegar allt kemur til alls.
5. NATAN Baltasar Kormákur í
Agnesi eftir Egil Eðvarðsson
Natan er vissulega fórnarlamb
einnig plús það
að ganga á hlut
annarra. En í
mynd Egils er
Natan einkum
ómenni sem
gengur í skrokk
á Agnesi og
svífst einskis.
Varmennsku
hans er við-
brugðið og verður til þess að
Agnes og Friðrik grípa til þess að
ráða hann af dögum. Með þekkt-
um afleiðingum.
6. ÞURÍÐUR Tinna Gunnlaugs-
dóttir í Ungfrúin góða og húsið
eftir Guðnýju Halldórsdóttur
Tinna er húsfrú á kaupmanns-
heimili. Hún lítur niður á kotunga
og annan lýð, telur sig yfir hann
hafinn. Af allt öðru sauðarhúsi er
systir hennar sem Ragnhildur
Gísladóttir leikur. Af snobbi Þur-
íðar hljótast svo hin verstu örlög
en sjálf hefur hún ekki úr háum
söðli að detta því siðferðisvitund
hennar er ekki burðug þegar hún
sjálf á í hlut. Hún snobbar fyrir
dansknum og leggst með honum.
Sem sagt: Hið versta man.
7. KÓNGURINN ÓLAFUR
TRYGGVASON Egill Ólafsson í
Hvíta víkingnum eftir Hrafn
Gunnlaugsson
Ólafur konungur er hið dæmi-
gerða illmenni.
Dreginn skýr-
um dráttum.
Grimmur,
gráðugur og
illur drífur
hann frásögn-
ina áfram með
því að standa í
vegi fyrir því
að elskendur nái saman. Hrafn
Gunnaugsson er af skóla Kúr-
úsava og Serge Leone – þar sem
hann lætur ekki eftir leikurum
eitthvert dund við að dýpka per-
sónur í krókaleið til að kalla fram
samúð áhorfenda. Egill leikur svo
konunginn vonda af stakri snilld.
8. ÞÓRÐUR Helgi Skúlason í
Hrafninn flýgur eftir Hrafn Gunn-
laugsson
Þeir voru stærri glæpirnir í
hefndarþjóðfélagi landnámsaldar
en þekkjast nú. Þórður drepur for-
eldra Gests og gerir systur hans
að frillu sinni. Sæmileg illmennska
það. Í meðförum Helga heitins
Skúlasonar verður þessi fauti að
einu eftirminnilegasta illmenni
íslenskrar kvikmyndasögu þó ef
til vill megi finna meiri illvirkja
þar – samansúrraða öfugugga og
ljóta karla.
9. SVEPPI Steinn Ármann Magn-
ússon í Veggfóðri eftir Júlíus
Kemp og Jóhann Sigmarsson
Nauðgarinn, dóphrossið og
smákrimminn Sveppi kemst á
lista, ekki síst
fyrir að láta
sér ekki duga
glæpahneigð
og pervertísk-
ar kenndir
heldur tekur
hann polo-
roid-myndir
af fórnar-
lömbum
sínum og
hengir upp á
vegg. Krókódílamaðurinn í sam-
nefndum texta Megasar. Steinn
Ármann í essinu sínu. Margir
gætu freistast til þess að telja
Sveppa vera eins konar paródíu á
illmennið, slík steríótýpa er hann,
en gegnheil illmenni eru nú einu
sinni steríótýpur og hér, við þetta
tækifæri, verður ekki öðru haldið
fram en að þeir Júlíus og Jóhann
hafi verið fullkomlega einlægir í
sinni bíómyndagerð.
10. HANDRUKKARINN Gísli
Örn Garðarsson í Börnum eftir
Ragnar Bragason
Einhvern veginn liggur í hlut-
arins eðli að handrukkarar eru
vondir. Þeir hljóta að teljast illir
sem leggja fyrir sig þá iðju að lim-
lesta og meiða menn til að rukka
skuldir fyrir dópsala. Hitt er að
nokkur dýpt er lögð í karaktera í
Börnum og handrukkari Gísla
Arnar hefur til að bera vott af sið-
ferðiskennd. Hins vegar, þegar
kemur að því að snúa við blaðinu,
sést að þetta er það eina sem hand-
rukkarinn kann. Að
beita ofbeldi.
Ágæt frammi-
staða Gísla
Arnar tryggir
þessari persónu
tíunda sætið í
þessari
samantekt
þótt hann
sé ekki
alvondur
sem slík-
ur.
Hreinræktuð
íslensk
illmenni
Alveg er á hreinu hver íslenskra kvikmyndagerðar-
manna hefur verið duglegastur við að skaffa
íslenskum bíógestum skúrka, óbermi og fúlmenni
– hreinræktuð illmenni – á hvíta tjaldið. Hrafn
Gunnlaugsson er þar sem kóngur í ríki sínu.