Fréttablaðið - 28.10.2006, Qupperneq 89
28. október 2006 LAUGARDAGUR48
> Dustaðu rykið af
Dýrheimum eftir Rudiyard Kipling. Verk-
ið kom fyrst út í íslenskri þýðingu í heild
sinni 1945 en þá höfðu sögur hans frá
Indlandi verið vinsælar í ýmsum útgáf-
um í hartnær hálfa öld. Nýir Dýrheimar
komu út á sjötta áratugnum. Síðan hafa
sögurnar um Móglí eignast nýtt líf í
meðförum Disneys, en upphaflegu sög-
urnar eru miklu skemmtilegri og meira
kjöt á mögnuðum aðstæðum manna
og dýra á Indlandi sem hann hefur að
söguefni. Ólafur Haukur Símonarson
gerði sér mat
úr einni þeirra
í söngleik fyrir
börn: Kötturinn
sem fer sínar
eigin leiðir.
RUDYARD
KIPLING
Stelpurnar í Gjörninga-
klúbbnum ætla að fremja
gjörning eftirmiðdaginn í
dag. Þær verða ekki einar
að verki. Með þeim er par
frá Hollandi sem vinnur
mikið fyrir auglýsingar, kvik-
myndir og tónlistarbrans-
ann. Þau eru þekkt fyrir að
gera furðulega búninga,
mikið af uppblásnu dóti og
mörgu mjög skemmtilegu
sjónrænu dóti og kalla sig
Nepco.
Gjörningaklúbburinn er
skipaður þremur lista-
mönnum, þeim Eirúnu
Sigurðardóttur, Jóní Jónsdóttur og Sigrúnu
Hrólfsdóttur. Þær hafa unnið saman síðastliðin
tíu ár og getið sér gott orð bæði á Íslandi og á
erlendri grundu.
Gjörningaklúbburinn og
Nepco ætla í þessum gjörn-
ingi að skoða gildi þess að
vera geymdur lifandi á safni,
hversu lengi lifa hlutir og
hversu lifandi eru þeir?
Einnig er mikilvægt að „sýna
sig og sjá aðra”, setja sig í
samhengi.
Gjörningurinn er hluti af
Sequenses gjörningalistahá-
tíð sem er búin að
vera í gangi síðan 13. okt og
endar núna um helgina og
er innlegg Gjörningaklúbbs-
ins eitt af síðustu atriðunum.
Gjörningurinn hefst í dag kl.16 og verður í Þjóð-
minjasafninu við Suðurgötu í Reykjavík.
Gjörningaklúbburinn í safni
GJÖRNINGAR Stöllurnar í klúbbnum hafa
getið sér gott orð víða um lönd og eru
með þekktari hóp íslenskra listamanna á
erlendum vettvangiurinn.
Það er stund milli stríða í Lista-
safni Reykjavíkur á Miðbakkan-
um. Sýningunni Pakkhúsi postul-
anna er pakkað og von á einhverri
stærstu sýningu sem saman hefur
verið tekin um unga listamenn
bandaríska. En í millitíðinni er hó
í húsinu: hönnunarmaraþon hefst
þar í dag kl. 14.00.
Um er að ræða röð stuttra fyr-
irlestra þar sem 24 hönnuðir halda
átta mínútna kynningu á sér og
verkum sínum. Viðburðurinn er
skipulagður af nemendum Lista-
háskóla Íslands og Háskólans í
Reykjavík og ber yfirskriftina
RJÓMI. Hugmyndin er að gefa
gestum kost á að kynnast
íslenskum hönnuðum og
verkum þeirra: arkitekt-
úr, grafíska hönnun,
vöruhönnun og tísku-
hönnun.
Fyrirlestrarnir ættu
að gefa góða mynd af því
helsta sem á sér stað í
hönnunargeiranum á
Íslandi um þessar mund-
ir auk þess sem einstakl-
ingar sem hafa haft mót-
andi áhrif munu einnig
taka þátt. Verkstæði og
stúdíóhönnuða eru á víð
og dreif úti um allan bæ
og er atburðurinn hugs-
aður sem kjörið tækifæri
til að fá vitneskju um
þessa aðila beint í æð.
Formið á fyrirlestrun-
um er þannig að fólk geti
auðveldlega komið og
farið, skroppið í kaffi og
komið aftur. Þeir allra
hörðustu munu auðvitað
koma sér vel fyrir og
fylgjast með allan tím-
ann. Maraþonið ætti að
gefa góða mynd af tíðar-
andanum í hönnunar-
geiranum á Íslandi í dag.
Samhliða hönnunar-
maraþoninu verður
opnuð sýning, þar sem
afrakstur tólf verkefna
sem nemendur hafa unnið
að í fimm vikur verður
sýndur. Markmið sýning-
arinnar er að draga fram sérkenni
íslenskrar hönnunar – í formi við-
skiptahugmynda. Viðskiptahug-
myndirnar greina frá tækifærum
sem felast í markaðssetningu á
grafískri hönnun, fatahönnun,
vöruhönnun og arkitektúr.
Maraþonið er hluti af sameigin-
legu verkefni um íslenska hönnun
sem nemendur Háskólans í
Reykjavík og Listaháskóla Íslands
hafa unnið undanfarnar vikur. Til
samstarfsins var stofnað með það
að markmiði að efla tengsl við-
skipta- og hönnunarlífs á Íslandi.
Þetta er í fimmta sinn sem nám-
skeiðið er kennt. Í ár var ákveðið
að taka örlítið hliðarspor, í
stað þess að hanna nýja
vöru eða hugmynd og
koma henni á markað
hafa nemendur unnið
rannsóknarvinnu og kort-
lagt hönnunargeirann á
Íslandi í dag. Í framhald-
inu hófst úrvinnsla, hug-
myndavinna og leitin að
því sem er EKTA í
íslenskri hönnun. Þá eru
þróaðar viðskiptahug-
myndir í kringum valda
hluti sem lýsa spennandi
tækifærum þar sem sér-
kenni íslenskrar hönnun-
ar eru dregin fram. Nem-
endur skólanna tveggja
hafa unnið að tólf mismun-
andi verkefnum sem snúa
að grafískri hönnun, vöru-
hönnun, fatahönnun og
arkitektúr.Afrakstur þess-
ara verkefna verður sýnd-
ur í Listasafni Reykjavík-
ur áður en
hönnunarmaraþonið hefst
eða frá kl. 13.00 - 14.00.
Þann 29. október mun
sýningin færast yfir til
Marels og vera opin til
11. nóvember 2006. Allar
frekari upplýsingar eru á
www.rjomi.is. -pbb
Hönnunarmaraþon
KYNNING Á ÍSLENSKUM
HÖNNUÐUM Hjólabretti
hannað af Katrínu Péturdóttur
Young
Kammermúsíkklúbburinn í
Reykjavík hefur um áratugaskeið
staðið fyrir kraftmikilli starfsemi
sem hin síðari ár hefur verið í
Bústaðakirkju. Á sunnudagskvöld
verða tónleikar við Bústaðaveginn
sem eru helgaðir Robert Schum-
ann.
Schumann (1810-1856) samdi
lítið annað en píanótónlist fyrsta
áratug tónskáldaferils síns. En
upp úr 1840, fór honum að þykja
píanóstíll sinn ófullnægjandi og
hann einsetti sér að setja markið
hærra, fyrst með hljómsveitartón-
list 1841 og síðan með kammertón-
list 1842. Strengjakvartettar hans
þrír op. 41 komu út vorið 1842.
Eftir kvartettana þrjá sá
Schumann ástæðu til að taka aftur
til við píanóverk og samdi píanó-
kvintettinn op. 44, fyrsta verk
sinnar tegundar í veröldinni, og
þykir það dæmalaust vel heppnað.
Schumann hélt áfram smíði kamm-
erverka fram á árið 1843 þegar
hann lauk við Andante og tilbrigði
fyrir tvö píanó, tvö selló og horn
op. 46 og píanótríóið Phantasie-
stücke sem flutt er á tónleikunum.
Þessir tónleikar eru helgaðir
Robert Schumann meðal annars í
tilefni af því að um þessar mundir
eru 150 ár liðin frá andláti hans.
Önnur verk á dagskránni eru
Píanókvartett í Es-dúr, op. 47, og
Strengjakvartett nr. 3 í A-dúr, op.
41
Flytjendur á tónleikunum á
sunnudag eru Sif Tulinius, fiðla;
Elfa Rún Kristinsdóttir, fiðla; Þór-
unn Ósk Marinósdóttir, víóla; Sig-
urgeir Agnarsson, selló og Edda
Erlendsdóttir, píanó. Þeir hefjast
kl. 20.
Áhugasömum er bent á að
klúbburinn hefur komið sér upp
vænni vefsíðu: www.kammer.is.“
- pbb
Schumann í Bústaðakirkju
Hyllingardiskur er kominn út
sem helgaður er Megasi. Alls eru
það þrettán ópusar sem ýmsir
listamenn taka með sínu lagi og
er þetta í annað sinn sem söngva-
safn er dregið úr lagabálkum
Magnúsar Þórs Jónssonar. Hug-
myndin að plötunni kviknaði
snemma á síðasta ári en upptök-
ur hafa staðið yfir frá liðnu sumri
og fram á haust. Flytjendur tóku
þátt í gerð plötunnar á eigin for-
sendum, völdu sér lag og hljóð-
rituðu sem þeir kunnu. Á plöt-
unni má finna ákveðinn þverskurð
íslenskra tónlistarmanna og tón-
listarstefna enda átti valið að
vera fjölbreytt.
Nú þegar hefur svanasöngur
Hjálma, Saga úr sveitinni, sem
upphaflega kom út í flutningi
Megasar og Spilverks þjóðanna á
plötunni Á bleikum náttkjólum,
heyrst mikið í útvarpi. Aðrir
flytjendur eru KK, Ragnheiður
Gröndal, Magnús Eiríksson,
Hera, Baggalútur, Þrumukettir,
Raxon Paxon (Ragga Gísla og
Bryndís dóttir hennar), María
Rós, Papar, Rúni Júl, Páll Óskar
og Mónika og Trabant.
Nafn plötunnar er að sjálf-
sögðu fengið úr smiðju meistar-
ans en „Pældu í því sem pælandi
er í“ mun vera uphaflega hug-
myndin að viðlagstexta sem síðar
hljómaði svo: „Spáðu í mig og þá
mun ég spá í þig.“
Umslag plötunnar er skreytt
sjálfsmyndum eftir Megas, bæði
blýantsteikningum og ætingum
sem flestar eru frá árunum upp
úr 1980. Safnið sýnir enda hin
mörgu andlit Magnúsar.
Hljómlistarmenn eru teknir í
vaxandi mæli að hljóðrita lög
Magnúsar fyrir diska sína, Ragn-
heiður Gröndal, Hera og Björg-
vin Halldórsson eru þeirra á
meðal. Fyrir rúmum áratug kom
út safnið Megasarlög og á næst-
unni kemur úrval söngva Magn-
úsar á diski í flutningi Möggu
Stínu. Svokallaðir klassískir
söngvarar hafa ekki enn fundið
sig í þeirri námu sem söngvasafn
hans er, líklega vegna skorts á
píanóútsetningum. Djassistar
hafa aftur fundið sig í lagasafn-
inu og leikið sér með það.
Um miðjan nóvember munu
þrjár áður útgefnar plötur
Megasar, Þrír blóðdropar, Drög
að upprisu og Hættuleg hljóm-
sveit & glæpakvendið Stella
koma út að nýju, allar uppfullar
af aukaefni en Sena (þá Skífan)
stóð árið 2002 fyrir glæsilegri
útgáfuröð á fyrstu 10 plötum
Megasar og heldur endurútgáf-
unni nú áfram. Auk þessara mun
senn fjórða platan bætast í hóp-
inn en það er áður óútgefin upp-
taka frá tónleikum Megasar
ásamt kjarna Sykurmolanna frá
árinu 1991. Sá gripur ber heitið
Greinilegur púls.
- pbb
Mörg andlit Megasar
RJÓMADAGSKRÁ
KAMMERMÚSIKKLÚBBURINN Sif Tulinius, Elfa Rún Kristinsdóttir, Þórunn Ósk Marin-
ósdóttir, Sigurgeir Agnarsson og Edda Erlendsdóttir. KAMMERMÚSIKKLÚBBURINN
■ ■ VÖRUHÖNNUÐIR
kl. 14-15
Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir
Gunnar Magnússon
Katrín Pétursdóttir Young
Óðinn Bolli
Tinna Gunnarsdóttir
Þórdís Zoëga
■ ■ GRAFÍSKIR HÖNNUÐIR
kl. 15-16
Atli Hilmarsson
Ámundi Sigurðsson
Gunnar Karlsson
Siggi Eggertsson
Sól Hrafnsdóttir
Stefán Kjartansson
■ ■ FATAHÖNNUÐIR
kl.16-17
Bergþóra Guðnadóttir
ELM
Aftur
Sigrún Baldursdóttir
Steinunn Sigurðardóttir
Sunna Dögg Ásgeirsdóttir
■ ■ ARKITEKTAR
kl. 17-18
Arkibúllan
Einrúm
Guðmundur Jónsson
Hjördís og Dennis
Sólveig B. Björnsdóttir /
Ásdís H. Ágústsdóttir
Teiknistofan Tröð
RJÓMI
24 HÖNNUÐIR 240 MÍNÚTUR
PÆLDI Í ÞVÍ Umslag plötunnar er skreytt sjálfsmyndum eftir Megas.
kl.17
Opnun hjá Unni Ýr Helgadóttur á
myndlistarsýningu á Kaffi Sólon í
gamla húsi Málarans við Banka-
strætið og tekur listamaðurinn á
móti gestum og gangandi. Hún tvinn-
ar saman grafíska hönnun sem hún
hefur nýklárað í Listaháskólanum og
sitt gamla áhugaefni, myndlistina.
Sýningin stendur til 24. nóv.
menning@frettabladid.is
!