Fréttablaðið - 28.10.2006, Síða 97
56 28. október 2006 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Arnljótur Ástvaldsson
skrifaði í gær undir tveggja ára
samning við Þrótt en hann gekk
til liðs við félagið fyrir tímabilið.
Hann lék 21 leik fyrir félagið í
sumar og skoraði í þeim fjögur
mörk.
Arnljótur er uppalinn KR-
ingur og lék einn leik með liðinu í
Landsbankadeildinni árið 2004 en
hefur í tvígang verið lánaður til
Þórs þar sem hann lék í tvö ár,
spilaði samtals 23 leiki og skoraði
í þeim tvö mörk.
Fyrr í mánuðinum samdi
Þróttur við Adolf Sveinsson sem
lék með Reyni Sandgerði í sumar.
Hann var markahæsti leikmaður
2. deildarinnar með þrettán mörk
í sautján leikjum. Gunnar
Oddsson var ráðinn þjálfari
Þróttar fyrir skömmu en þjálfaði
einmitt lið Reynis frá Sandgerði í
sumar og stýrði liðinu upp í 1.
deildina.
- esá
Arnljótur Ástvaldsson:
Áfram í Þrótti
GEGN GRINDAVÍK Arnljótur í baráttu við
Jóhann Þórhallsson í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Magni Fannberg, annar
aðstoðarþjálfari Sigurðar
Jónssonar hjá Grindavík í sumar,
hefur verið ráðinn þjálfari þriðja
flokks Vals sem og yfirþjálfari
yngri flokka karla hjá Val. Mun
hann ásamt Elísabetu Gunnars-
dóttur, þjálfara kvennaliðs Vals,
leiða uppbyggingu og undirbún-
ing fyrir verkefnið „Afrekshópur
Vals“ sem hefur göngu sína næsta
haust.
Magni var orðaður við
aðalþjálfarastöðuna hjá Grinda-
vík eftir að Sigurður hætti en
hætti svo sjálfur hjá félaginu
þegar í ljós kom að staðan stóð
honum ekki til boða. - esá
Magni Fannberg:
Ráðinn til Vals
MAGNI FANNBERG Orðinn yfirþjálfari
yngri flokka Vals. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HANDBOLTI Alfreð Gíslason stillti
upp fremur óreyndu liði í fyrri
æfingaleik íslenska landsliðsins í
handbolta gegn Ungverjum ytra í
gær. Leikar fóru 39-31 fyrir heima-
menn en staðan í hálfleik var 19-
11. Logi Geirsson og Ragnar Ósk-
arsson voru markahæstir
Íslendinga með sjö mörk hver en
eins og úrslit leiksins gefa til
kynna var varnarleikur og mark-
varsla ekki í hávegum höfð.
Íslendingar misstu Ungverja
fram úr sér strax í fyrri hálfleik
en leikurinn var mjög hraður.
Verkefnið reyndist einfaldlega of
erfitt fyrir þetta íslenska lið.
Marga fastamenn vantaði í liðið,
svo sem Ólaf Stefánsson, Snorra
Stein Guðjónsson og Einar Hólm-
geirsson. Guðjón Valur Sigurðsson
náði sér ekki á strik og skoraði tvö
mörk.
„Ég bjóst nú ekki við neinu stór-
kostlegu í þessum leik en þó betra
en þetta,“ sagði Alfreð Gíslason í
samtali við Fréttablaðið eftir leik.
„En þetta var svo sem ekki það
mikilvægur leikur, heldur tæki-
færi til að prófa leikmenn sem
hafa lítið spilað með landsliðinu
undanfarið og notfærði ég mér
það. Það var margt sem ég var
óánægður með, til að mynda hluti
sem við höfum verið að æfa nýlega
en líka gömul leikatriði sem leik-
menn hafa oft útfært betur.“
Alfreð stillti upp 5-1 vörn lengst
af en breytti í 6-0 vörn undir lok
leiksins. Varnarleikurinn gekk illa
og var markvarslan því langt undir
því sem ásættanlegt er. Þrír mark-
verðir fengu að spreyta sig í leikn-
um, fyrst Björgvin Gústavsson í
fyrri hálfleik, Birkir Ívar Guð-
mundsson lék lengst af í þeim
seinni og Ólafur Gíslason síðustu
mínúturnar.
Skyttur Íslands í leiknum voru
Logi Geirsson og Ásgeir Örn Hall-
grímsson, leikmenn Lemgo. Ólaf-
ur Stefánsson á við þrálát meiðsli í
öxl að stríða og segir Alfreð vissu-
lega óttast það að hann geti misst
af HM. „Hann er að fara í hefð-
bundna meðferð við meiðslunum
þar sem læknarnir á Spáni vildu
hvorki framkvæma uppskurð né
sprautumeðferð. Það er bara von-
andi að hann verði orðinn góður
fyrir HM.“
Næsti leikur Íslands verður í
dag í Ungverjalandi.
eirikur.asgeirsson@frettabladid.is
Mörk Íslands: Logi Geirsson 7,
Ragnar Óskarsson 7, Ásgeir Örn
Hallgrímsson 5, Markús Máni 3,
Guðjón Valur Sigurðsson 2, Snorri
Steinn Guðjónsson 2, Róbert Gunn-
arsson 2, Vignir Svavarsson 2,
Einar Örn Jónsson 1.
ALFREÐ GÍSLASON Ósáttur við leik íslenska landsliðsins í Ungverjalandi í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Átta marka tap fyrir Ungverjum
Íslenska karlalandsliðið í handbolta lék í gær fyrri æfingaleik sinn af tveimur gegn Ungverjum og tapaði,
39-31. Logi Geirsson og Ragnar Óskarsson voru markahæstir með sjö mörk hver.
> Pauzolis til Burgdorf
Litháíska skyttan Robertas Pauzolis hefur samið við þýska
1. deildarliðið TSV Hannover-Burgdorf eftir að hafa leikið
með Eintracht Hildesheim til skamms tíma. Pauzolis
ákvað að rifta samningi sínum við félagið og greindu
þýskir fjölmiðlar frá því að hann ætlaði annaðhvort að
fara aftur til Litháens eða til Íslands þar sem hann lék
í sjö ár með Selfossi, Fram og Haukum. Það reyndist
ekki rétt og hefur þessi sterki leikmaður ákveðið að
reyna áfram fyrir sér í Þýskalandi. Hann samdi við
Hannover-Burgdorf til
loka leiktíðarinnar. Hér
heima höfðu Fylkismenn
mikinn hug á að næla í
leikmanninn.
Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflvíkinga í knattspyrnu,
gekk í það heilaga á dögunum og leikmenn liðsins ákváðu
að gera þjálfara sínum grikk í tilefni giftingarinnar. Leikmenn-
irnir settu auglýsingu í Víkurfréttir, með mynd af Chesterfield
sófasetti, og í auglýsingunni stóð að þetta tiltekna sófasett
þyrfti að seljast fyrir ákveðinn tíma. Verðið á sófasettinu var
að sögn ekki mikið og undir öllu þessu var símanúmerið hjá
Kristjáni.
„Síminn hjá mér beinlínis logaði alveg frá rúmlega ellefu
og fram eftir degi. Ég er nú orðinn sérfræðingur í Chesterfield
sófasettum, eftir tugi símtala,“ sagði Kristján léttur í bragði.
Kristján bætti því við að hann hefði ekki látið á neinu bera á
æfingum í vikunni á eftir og að leikmenn hefðu verið farnir að
spyrja út í þetta mál þegar leið á vikuna.
Þetta var þó ekki það eina sem leikmennirnir gerðu. „Dætur
mínar langaði mikið í hamstur og ég var búinn að segja þvert nei,
þetta kæmi sko ekki inn á mitt heimili. Svo hef ég einhvern tímann
misst þetta út úr mér á æfingu og leikmennirnir hafa greinilega
munað eftir þessu því þeir gáfu okkur tvo hamstra í brúðkaupsgjöf,
karl og konu,“ sagði Kristján sem hafði augljóslega húmor fyrir
þessu athæfi strákanna.
Guðmundur Steinarsson, fyrirliði Keflvíkinga, var að sjálfsögðu
innsti koppur í búri í þessum uppátækjum. „Kristján er mikill húm-
oristi og oft léttur í lund. Hann reyndi að fara voðalega leynt með
þetta brúðkaup og lét bara aðstoðarþjálfarann vita og einhverja í
stjórninni. Þessar upplýsingar komust auðvitað til okkar, Við ætluð-
um að vísu að gera eitthvað meira sem búið var að
plana en við vildum ekki trufla undirbúninginn fyrir
bikarúrslitin. Við vissum að þessi auglýsing hafði
borið árangur af því að við báðum fólk í kringum
okkur að hringja í hann og ónáða hann. Við
pössuðum okkur á segja ekki neitt
af því að við áttum eftir að gera
meira,“ sagði Guðmundur.
„Það verður bara að koma í
ljós hvernig undirbúningstímabilið
fer af stað, hvort við fáum að finna fyrir því
þá,“ bætti Guðmundur við og hló.
KRISTJÁN GUÐMUNDSSON: GIFTI SIG Á DÖGUNUM OG FÉKK FURÐULEGA GJÖF FRÁ LÆRISVEINUM SÍNUM Í KEFLAVÍK
Auglýstu sófasett til sölu í hans símanúmeri