Fréttablaðið - 28.10.2006, Síða 99

Fréttablaðið - 28.10.2006, Síða 99
58 28. október 2006 LAUGARDAGUR FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen verður væntanlega í fremstu víg- línu í kvöld þegar Barcelona tekur á móti Recreativo í spænsku úrvalsdeildinni. Þetta verður kjörið tækifæri fyrir Eið að opna markareikninginn á Nou Camp, heimavelli Börsunga, en Eiður hefur skorað öll fjögur mörk sín á tímabilinu á útivelli. Hann er markahæstur leik- manna Barcelona ásamt Samuel Eto‘o sem er meiddur og verður frá næstu mánuðina. Af þeim sökum hefur Eiður fengið meiri ábyrgð á sínar herðar og spænska pressan var fljót að gagnrýna hann eftir að honum mistókst að skora gegn Real Madrid og Barce- lona í síðustu viku. „Það var gott fyrir mig að ná að skora þessi mörk eftir að hafa ekki nýtt tækifærin í Madríd,“ sagði Eiður í samtali við spænska dagblaðið As. „Ég er hingað kom- inn til að skora mörk fyrir Barca. Ég skil af hverju fólk hefur verið gagnrýnið.“ Eiður virðist geta tekið gagn- rýninni en félagar hans hafa verið fljótir til að koma honum til varnar og lýsa ánægju sinni með hann. Ludovic Giuly gekk skrefinu lengra og gagnrýndi fjölmiðla. „Fjölmiðlar eru of fljótir að gagn- rýna. Ef leikmaður skorar ekki í tvo leiki í röð er hann slakur en svo skorar hann tvö í sama leikn- um og þá er hann orðinn góður.“ Eiður byrjaði skoraði sigur- markið í 3-2 sigurleik á Celta Vigo og svo gegn Athletic Bilbao í fyrsta leiknum eftir að Eto‘o meiddist. Svo liðu 253 mínútur áður en fyrra markið gegn Bada- lona í bikarkeppninni leit dagsins ljós. - esá Eiður Smári Guðjohnsen er markahæsti leikmaður Barcelona: Vill brjóta ísinn á Nou Camp Á ÆFINGU Eiður Smári glaðbeittur á æfingu með Barcelona. NORDIC PHOTOS/AFP FÓTBOLTI Franski sóknarmaðurinn Pierra-Alain Frau, leikmaður Paris Saint-Germain, hefur verið dæmdur í tveggja mánaða bann fyrir tæklingu sem leiddi til þess að Stephane Noro, leikmaður Sedan, sleit krossband og verður frá keppni í sex mánuði. „Við tókum tillit til þeirrar staðreyndar að Frau er ekki grófur leikmaður og að tæklingin var ekki framkvæmd með það fyrir augum að meiða Noro. Frau er dæmdur í þetta bann vegna þess að Noro verður frá keppni í sex mánuði. Ef ætlun Frau hefði verið að meiða Noro þá hefði bannið verið lengra,“ stóð í dómnum sem kveðinn var upp í gær. PSG-menn sögðu frá því á heimasíðu sinni að dómurinn væri út í hött og að félagið ætlaði sér að áfrýja dómnum. - dsd Leikmaður Paris St. Germain: Fékk tveggja mánaða bann FÓTBOLTI Sir Alex Ferguson, framkvæmdastjóri Manchester United, hefur nú komið kollega sínum hjá Bolton til varnar, en Bolton hefur oft verið gagnrýnt fyrir spilamennsku sína. „Ástæðan fyrir því að Allar- dyce er gagnrýndur er einfald- lega vegna þess að hann nær árangri. Engum er vel við að tapa og eflaust telja sumir að Bolton spili óheiðarlega. Þetta gæti verið einhver sálfræðilegur hernaður, en þetta eru kjánaleg rök og ég skil þau ekki. Allir hafa sinn stíl og ég hugsa að stuðningsmenn Bolton séu ánægðir með viðsnún- inginn sem hefur orðið á liðinu síðustu ár,“ sagði Ferguson. Bolton tekur á móti Manchest- er United í dag. - dsd Sir Alex Ferguson: Kemur Allar- dyce til varnar SAM ALLARDYCE Hefur nú fengið stuðn- ing frá Alex Ferguson. NORDIC PHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Spænska knattspyrnulið- ið Real Sociedad rak þjálfarann Jose Maria Bakero úr starfi á fimmtudaginn og réðu í hans stað Miguel Angel Lotina, fyrrum þjálfara Espanyol og Celta Vigo. „Ef maður lítur á stöðuna þá er hún ekki góð. Með tilliti til þess þá þarf ekkert að koma á óvart að Bakero hafi verið rekinn,“ sagði Morten Skoubo, leikmaður Real Sociedad, í gær. Real Sociedad situr á botni spænsku deildarinnar með tvö stig eftir sjö leiki. - dsd Real Sociedad: Bakero rekinn, Lotina ráðinn MIGUEL ANGEL LOTINA Nýr þjálfari Real Sociedad. NORDIC PHOTOS/GETTY ÚRSLIT LEIKJA Í GÆR Iceland Express deild karla FJÖLNIR-KEFLAVÍK 110-108 (E.FRAL.) ÍR-TINDASTÓLL 78-94 Stig ÍR: LaMar Owen 30, Ólafur Sigurðsson 14, Fannar Helgason 10, Sveinbjörn Claessen 7, Ómar Örn Sævarsson 5, Trausti Stefánsson 5, Davíð Fritz- son 3, Benedikt Pálsson 2, Eiríkur Önundarson 2. Stig Tindastóls: Lamar Karim 29, Svavar Birgisson 19, Milojica Zekovic 14, Steve Parillion 10, Gunn- laugur Elsuson 7, Helgi Viggósson 7, Ísak Einars- son 5, Bjarni Bjarnason 2, Ingvi Guðmundsson 1. Mainz-Werder Bremen 1-6 Þýska úrvalsdeildin MAINZ-WERDER BREMEN 1-6 0-1 Klose (14.), 0-2 Hunt (20.), 0-3 Klose (20.), 1-3 Azaouagh (74.), 1-4 Hunt (75.), 1-5 Naldo (80.), 1-6 Diego (88.). � ����������� � ���������� �������������������������������������������������� ���������������������������������������������������������� ��������������������������������������� ���������������� � ������������������ ���������������������������������������������� ������������� �������������������������������� ������������������������ ������������������������������������������ � �� ��������������������� �� ����������������������������������������� ���������� ����������������������� ��������������� ���������������������������������������������� � � ���������������������� ����������������� ������������������ � �������������� ��������������������� ������ Hádegisverðarfundur ÍSÍ H ád eg is ve rð ar fu n du r Siðfræði íþrótta Mánudaginn 30. október heldur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hádegisverðarfund í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Jens Evald, form. Anti Doping Danmark og prófessor við Háskólann í Árósum flytur erindi um siðfræði íþrótta. Fundurinn hefst kl. 12:00 og mun standa til kl. 13:00. Aðgangur er ókeypis. Hægt er að kaupa hádegisverð hjá café easy sem staðsett er á jarðhæð Íþróttamiðstöðvarinnar Frekari upplýsingar má finna á www.isisport.is FÓTBOLTI Sænska úrvalsdeildar- liðið Hammarby réð í gær hinn 33 ára gamla Tony Gustavsson sem nýjan aðalþjálfara liðsins. Hann tekur við starfinu að tíma- bilinu loknu en tvær umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Tveir Íslendingar eru hjá liðinu, þeir Pétur Marteinsson og Gunnar Þór Gunnarsson. Pétur hefur áður sagt við Fréttablaðið að hann ætli að bíða, þar til nýr þjálfari verði ráðinn, með að taka ákvörðun um hvort hann framlengi samninginn sinn við félagið um tvö ár eða haldi heim á leið. Ákvörðun hans verð- ur að vænta bráðlega en hann hefur helst verið orðaður við KR hér heima. Hammarby er sem stendur í fjórða sæti deildarinnar með 37 stig og á ekki lengur möguleika á sænska meistaratitlinum en liðið hóf mótið vel og var lengi vel í efsta sæti deildarinnar. Gustavsson er ekki nema 33 ára gamall og er fyrsti þjálfarinn í sænsku úrvalsdeildinni sem hefur menntað sig í fótboltaþjálf- un á háskólastigi. Hann stýrði síðast liði Degerfors og hefur gert það í tvö ár. Sem leikmaður náði hann aldrei miklum frama og lék lengst af með neðrideild- arliðum. Árið 2004, þá sem aðstoð- arþjálfari hjá Degerfors, hjálp- aði hann liðinu að komast upp í sænsku 1. deildina. Þess má einnig geta að Pétur Marteinsson er þremur mánuð- um eldri en Gustavsson. - esá Hinn 33 ára gamli Tony Gustavsson tekinn við Hammarby: Hammarby ræður þjálfara til starfa KÖRFUBOLTI ÍR-ingar tóku móti Tindastóli í Seljaskóla í gær. Bæði lið höfðu hvort unnið einn leik og tapað einum fyrir leikinn og mátti búast við að barist yrði fram á síð- ustu sekúndu. Sú varð þó ekki raun- in því Stólarnir gerðu út um leikinn í þriðja leikhluta þar sem ÍR skor- aði 6 stig gegn 23 gestanna. Það var því aðeins formsatriði að klára leik- inn. En heimamenn áttu góðan fyrsta leikhluta þar sem Ólafur Sigurðs- son náði sér vel á strik og leiddi sókn ÍR af miklum myndarskap. LaMar Owen, nýi Kaninn í liði ÍR, var duglegur að setja stigin og leiddu þeir með þriggja stiga mun eftir fyrsta leikhlutann. Leikar stóðu svo jafnir þegar sex mínútur voru eftir af fyrri hálf- leik og þá tók Kristinn Friðriksson, þjálfari Tindastóls, leikhlé. Það skilaði sínu því Stólarnir skoruðu næstu sextán stig í leiknum og unnu næstu 15 mínúturnar samtals 43-13. Á þessum stundarfjórðungi var ótrúlegt að sjá til sóknarleiks ÍR þar sem hreinlega ekkert gekk. Erfiðleikarnir undu upp á sig og urðu sóknartilburðir leikmanna algerlega tilviljanakenndir. Á sama tíma keyrðu Stólarnir yfir þá í sínum sóknum og gerðu út um leik- inn. Lamar Karim var duglegur að safna stigunum og leggja upp á félaga sína. Hann, Svavar Birgis- son og Milojica Zekovic áttu mjög góðan leik eins og reyndar fleiri í Stólunum. „Mér fannst menn ekki vera að leggja sig fram,“ sagði Bárður Eyþórsson, þjálfari ÍR. „Vörnin var alveg skelfileg í leiknum. Það var svo alveg sama hverju við hentum í sókninni, það fór ekkert ofan í. Það gekk ágætlega í fyrsta leikhluta en eftir það var þetta mjög dapurt. Ef menn ætla að ná árangri verða þeir að koma baráttuglaðir í leikina, það er alveg grundvallaratriði.“ eirikur.asgeirsson@frettabladid.is Stólarnir keyrðu yfir ÍR-inga Eftir að hafa leitt eftir fyrsta leikhluta datt allur botn úr leik ÍR gegn Tindastóli í gær. Liðið skoraði aðeins sex stig í þriðja leikhluta og var það nóg til að gera út um alla von ÍR-inga. HART BARIST Heimamenn stóðu sig vel í fyrsta leikhluta en leikar voru jafnir í hálf- leik.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.