Fréttablaðið - 28.10.2006, Page 103
28. október 2006 LAUGARDAGUR62
HRÓSIÐ …
„Markaðsfólkið sá ekki fram á að
geta kynnt Ísland á jákvæðum
nótum,“ segir Einar Bárðarson,
umboðsmaður Nylon-flokksins, en
útgáfu á breiðskífu Nylon í Bret-
landi hefur verið frestað fram yfir
áramót. Upphaflega stóð til að
gefa hana út í nóvember. Ástæðan
er fyrst og fremst neikvæð
umræða í garð íslensku þjóðarinnar
og allt sem henni tengist vegna
ákvörðunar stjórnvalda um að
hefja aftur hvalveiðar í atvinnu-
skyni.
Einar var harðorður í garð
íslenskra stjórnvalda og sagðist
kunna sjávarútvegsráðherranum
og nafna sínum, Einari K. Guðfinns-
syni, litlar þakkir fyrir þessar
óþörfu kvalir. Hann viðurkennir
að hann hafi miklar áhyggjur af
gengi smáskífunnar Closer en fyrr
í vikunni sagði Fréttablaðið frá því
að að umboðsskrifstofa sveitar-
innar, Believer, vildi afmá öll
tengsl hennar við Ísland vegna
útgáfu á smáskífunni Closer sem
inniheldur einnig Sweet Dreams,
lag sem sló eftirminnilega í
gegn á breskum dansstöð-
um. Nú er hins vegar orðið
ljóst að Nylon-flokkurinn
er fyrsta fórnarlamb hval-
veiðistefnunnar. „Við ætl-
uðum að nýta okkur
velgengni Nylon að undan-
förnu og hamra járnið á
meðan það er heitt,“
bætir Einar við
og segir
stjórnvöld
ekki gera sér grein fyrir því að
þau séu að kasta minni hagsmun-
um fyrir meiri. „Málið snýst ekki
bara um okkur heldur hef ég haft
fregnir af því að fólk sé að afpanta
ferðir til Íslands,“ segir umboðs-
maðurinn og augljóst að hval-
veiðarnar snerta útrás
íslenskra listamanna.
Einar upplýsir jafnframt
að búið sé að eyða tugum
milljóna í að vinna Nylon
brautargengi en hann viti
einnig af því að þetta sé
einn harðasti
tónlistarmarkaður í heimi, hlutirnir
breytist hratt. „Ísland hefur notið
velvildar hérna úti en nú hefur
orðið breyting á. Vonandi varir
þetta þó stutt,“ segir Einar en
reiknað er með því að breiðskífan
komi út í byrjun næsta árs og verði
þá ennfremur herjað á Þýskaland
og Japansmarkað. „Stelpurnar hafa
verið mjög duglegar, verið á tón-
leikaferð næstum allt árið en eru
pollrólegar yfir þessu öllu. Eini
ljósi punkturinn er kannski sá að
þær geta eytt jólunum með
ástvinum sínum, eitthvað
sem við reiknuðum ekki
með.“
freyrgigja@frettabladid.isv
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2 voða 6 sjúkdómur 8 mál 9 spíra 11 kring-
um 12 veldis 14 mannvera 16 í röð 17 líða
vel 18 kættist 20 tveir eins 21 heila.
LÓÐRÉTT
1 lítill 3 bardagi 4 lauslæti 5 angan 7
fiskur 10 keyra 13 svelg 15 pottréttur 16
upphrópun 19 belti.
LAUSN
LÁRÉTT 2 pali, 6 ms, 8 tal, 9 ála, 11 um, 12
ríkis, 14 maður, 16 aá, 17 una, 18 hló, 20
gg, 21 alla.
LÓÐRÉTT 1 smár, 3 at, 4 lausung, 5 ilm,
7 slímáll, 10 aka, 13 iðu, 15 ragú, 16 aha,
19 ól.
... fær Eyjólfur Elíasson fyrir að
skrifa Matreiðslubók íslenska
lýðveldisins og leyfa almenn-
ingi að njóta þeirra unaðslegu
rétta sem hann og faðir hans
hafa eldað handa fyrirmönnum
heimsbyggðarinnar.
Kvikmynd Gunnars Björns Guðmunds-
sonar, Astrópía, er nú á klippiborðinu
og ríkir mikil spenna í kringum
hvernig útkoman verður. Þeir
Ingvar Þórðarson og Júlíus Kemp
hjá Kisa sem framleiða myndina
gera sér miklar vonir um gott gengi
hennar og á heimasíðu kvikmynda-
fyrirtækisins má sjá enskt vinnu-
heiti á myndinni, Dorks & Damsel.
Kunnugir segja að hér sé verið að
vísa til hins þekkta
ævintýris, Fríða
og dýrið, auk
þess sem fyrstu
stafirnir myndi
DD, rétt eins og
eitt þekktasta
nördaspil
heims,
Dungeons &
Dragons.
Auðunn Blöndal er að öllum
líkindum ákaflega kátur um þessar
mundir. Þáttur hans Tekinn hefur
slegið rækilega í gegn hjá íslenska
ungviðinu sem skemmtir sér kon-
unglega yfir því að sjá fræga fólkið
verða fyrir hrekkjum
Audda. Bjarni Ákason
og félagar hjá Apple-
umboðinu hér á landi
hafa nú gripið
þessar vinsældir
á lofti og bjóða
iTunes notend-
um upp á að
hlaða þáttinn
inn á tölvuna
sína.
Lagið Ég er kona eftir Egil Ólafsson
hefur vakið mikla athygli en lagið
er að finna á nýjustu plötu Hildar
Völu, Lala. Það er ekki síður textinn
sem hefur gripið fólk en hann þykir
ákaflega feminískur enda er söngv-
ari Stuðmanna þekktur fyrir að vera
hlynntur jafnréttisbaráttu
kvenna. Færri vita hins
vegar að lagið er rúm-
lega ellefu ára gamalt
og var samið fyrir
söngleik-
inn Come
Dance With
Me sem
settur var
upp á Off
Broadway
1995. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKIEINAR BÁRÐARSON: BREIÐSKÍFU NYLON FRESTAÐ VEGNA HVALVEIÐA
Stjórnvöld að kasta meiri
hagsmunum fyrir minni
Ævar Örn Jósepsson, rithöfundur,
mun blanda sér nokkuð óvænt í
glæpasagnaslaginn í ár en Sá yðar
sem syndlaus er, fjórða bók hans
um rannsóknarlögreglumanninn
Stefán og félaga hans, kemur út
hjá bókaútgáfunni Uppheimum á
Akranesi þann 10. nóvember.
Ævar vakti nokkra athygli með
skáldsögu sinni Blóðbergi sem
kom út í fyrra og fjallaði um
morðrannsókn á virkjanasvæðinu
við Kárahnjúka. Fyrri bækur hans
þrjár hafa komið út hjá Eddu en
höfundurinn hefur nú flutt sig til
Uppheima.
„Þetta skýrist aðallega af því
að ég var mjög seinn með handritið
og eddumönnum fannst ég of seinn
og vildu geyma hana fram á næsta
ár,“ segir Ævar Örn. „Kristján
Kristjánsson, frændi minn í Upp-
heimum, treysti sér aftur á móti
til þess að koma henni út og ég
ákvað að slá til þar sem mér fannst
mikilvægt að koma bókinni út
núna.“ Ævar segir að það hafi ekki
verið nein „dramatík eða hasar“ í
kringum forlagaskiptin. „Þetta fór
bara svona.“
Sá yðar sem syndlaus er fjallar
um rannsókn á morði fráskilins
manns á miðjum aldri sem hefur
verið látinn í nokkurn tíma áður
en hann finnst í íbúð sinni. „Því er
nú oft svo farið með menn sem
skilja á miðjum aldri að lífið fer
svolítið á hliðina finni þeir sér
ekki nýja konu fljótlega og þannig
fór fyrir þessum manni, Ólafi,
þangað til hann fann Guð, með
stóru g-i, en í framhaldinu þurfa
svo Stefán og hans fólk að finna
morðingja hans,“ segir Ævar sem
segir Sá yðar sem syndlaus er
vera „nokkuð klassíska, íslenska
sakamálasögu“ sem skoðar það
hvernig fólk getur einangrast í
þessari litlu stórborg sem Reykja-
vík er. - þþ
Ævar drepur hjá nýjum útgefanda
ÆVAR ÖRN JÓSEPSSON
Sendir frá sér í nóvember
reyfarann Sá yðar sem syndlaus er.
Kárahnjúkareyfarinn hans, Blóðberg,
fékk góðar viðtökur gagnrýnenda í
fyrra og hann krukkar áfram í íslenskan
samtíma þótt hann láti heit pólitísk
deilumál eiga sig að þessu sinni.
Hólmsteinn Össur Kristjánsson,
grafískur hönnuður á auglýsinga-
stofunni Fíton, tók þátt í alþjóðlegu
fússballmóti grafískra hönnuða í
New York í gær ásamt Steini Steins-
syni. Auglýsingastofan karlsson-
wilker er annar skipuleggjenda
mótsins, en Íslendingurinn og
stjörnuhönnuðurinn Hjalti Karls-
son er annar eigenda hennar.
„Þetta er mjög fagmannlegt mót
og menn taka þessu rosalega alvar-
lega,“ sagði Hólmsteinn á fimmtu-
dag. „Margir þarna eru nánast fag-
menn í íþróttinni.“ Þeir Hólmsteinn
og Steinn hafa látið útbúa landsliðs-
búninga fyrir keppnina. „Við erum
náttúrulega að koma fram fyrir
hönd Íslands og verðum að koma vel
fyrir,“ sagði Hólmsteinn. Fúsball-
íþróttin var gerð fræg í Friends-
þáttunum en um er að ræða fót-
boltaspil á borði þar sem keppendur
stjórna ellefu mönnum á prikum.
Á meðal þátttakenda eru lið frá
MTV og New York Times. „Þarna
verða stórstjörnur úr grafíska
heiminum, þetta er eins og að fara
að hitta heimsfræga rokkara,“
sagði Hólmsteinn. „Fússball er líka
mjög vinsæl íþrótt í hönnunar-
bransanum,“ sagði Hólmsteinn. Lið
frá Íslensku auglýsingastofunni er
einnig skráð til leiks og segist
Hólmsteinn halda að Nonni og
Manni muni einnig gera menn út af
örkinni. Íslensku liðin hafa þó ekki
keppt innbyrðis til að undirbúa sig.
„Það vannst ekki tími til þess,“
sagði Hólmsteinn, „en við reynum
það kannski næst.“ - sun
Keppa í fússballmóti í New York
ÁFRAM ÍSLAND Hólmsteinn og
Steinn vilja vera til fyrirmyndar
fyrir Ísland á mótinu í New York.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
HJALTI KARLSSON Auglýsingastofa hans
gerir það gott í New York og hefur tekið
að sér verkefni fyrir Puma og MTV.
EINAR
BÁRÐARSON
Hvalveiðar
Íslendinga
hafa haft mikil
áhrif á gengi
Nylon flokks-
ins en tugum
milljóna hefur
verið eytt í að
vinna honum
brautargengi.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Færeyingar
2 Úr þrjátíu milljónum í tuttugu
3 Óttar M. Norðfjörð
NYLON Útgáfu á nýjustu breiðskífu sveitarinnar hefur
verið frestað fram yfir áramót. Stúlkurnar geta því haldið
jólin hér heima.
EINAR K. GUÐFINNSSON
Einar Bárðarson kann nafna
sínum litlar þakkir fyrir þessar
óþörfu kvalir, að hefja
hvalveiðar aftur
í atvinnu-
skyni.
1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8
��������������
�������
����������
����
����������������
��������������
������