Tíminn - 06.01.1979, Blaðsíða 8

Tíminn - 06.01.1979, Blaðsíða 8
8 Laugardagur 6. janúar 1979 óskar Jakobsson tekur við verðlaunum úr hendi Bjarna Felixsonar. (Timamynd Tryggvi) Oskar varð í öðru sæti — Þeir fengu stig: Skúli óskarsson — tþróttamaður ársins 1978 hlaut 67 stig af 70 mögu- legum i kjörinu um iþróttamann ársins, en annars varð röðin þannig: 1. Skúli óskarsson, lyftingamaður................... 67 2. óskar Jakobsson, frjálsiþróttamaður............. 49 3. Hreinn Halldórsson, frjálsiþróttamaður............48 4. Jón Diðriksson, frjálsiþróttamaður................37 5. Sigurður Jónsson, skiðamaður..................... 35 6. Pétur Pétursson, knattspyrnumaöur.................25 7.-8. Jón Sigurðsson, körfuknattleiksmaöur..............22 7.-8. Karl Þórðarson, knattspyrnumaður..................22 9. Vilmundur Vilhjálmsson, frjálsiþróttamaður........21 10.-11. Gústaf Agnarsson, lyftingamaður...............10 10. -11. Þórunn Alfreðsdóttir, sundmaður..............10 Eftirtaldir iþróttamenn sem hlutu einnig stig: Ragnar ólafsson, golf, Þorsteinn Bjarnason, knattspyrna og körfu- knattleikur, Bjarni Friðriksson, júdó, Þorbjörn Guðmundsson, hand- knattleikur, Arni Indriöason, handknattleikur, Jóhann Kjartansson, badminton, Ingi Björn Albertsson, knattspyrna, Siguröur T. Sigurðs- son, fimleikar, Axel Axelsson, handknattleikur, Gunnar Einarsson, handknattleikur (Haukum), Hugi Harðarson, sund, og Sigurður Haraldsson, knattspyrna. Skúli óskarsson, Iþróttamaður ársins 1978, sýnir hér stoltur hinn eftirsótta verðlaunagrip. (Tfmamynd Tryggvi). ÍKINGUM SPARKAÐ ÚT — úr Evrópukeppninni í handkiiáttleik ★ Undarleg vinnubrögð alþjóðahandknattleikssambandsins A myndinni hér að ofan fagna þeir innilega Eysteinn Heigason for- maður handknattleiksdeildar Vikings og Erlendur Hermannsson eftir sætan sigur gegn Ystad-f Sviþjóð. Vlkingar hafa nú verið kærðir út úr keppninni og má fullvfst teija að brosið hafi stirnað á vörum þeirra fé- laga við þessi tiðindi. — Það er ekkert fordæmi fyrir dómi, sem slíkum, sagði Bodan Kowalski hinn pólski þjálfari Vfkings, er blaðamönnum-var I gærkvöidi tilkynnt sú ákvörðun IHF aö visa Vikingum úr Evrópukeppni bikarhafa i kjöi- far sigurs þeirra ge^n Ystad I Sviþjóð. — Sænsku blööin geröu mikið veður út af ólátum, sem við átt- um aö hafa haft i frammi eftir leikinn, sagði Eysteinn Helga- son, formaöur handknattleiks- deiidar Vikings, —Þaðeipa sem gerðist var það, aö tvær rúður brotnuðu á leiö okkar frá veit- ingahúsinu, sem hóf þaö er Ystad hélt okkur, að hótelinu sem viö dvöldum á. — Onnur rúöan var i verslun og siðar um nóttina kom I ljós, að stoliö haföi verið úr glugga verslunarinnar. — Auk þessa tók einn leik- manna jólatrésgarm, sem'lá á stéttinni fyrir utan veitinga- húsiö og héit á þvi til hótelsins og skellti þvi þar niður. — Strax morguninn eftir var trénu skilaö og máiiö úr sögunni. — Varðandi þessi rúöubrot, skal þaö tekið fram að við til- kynntum lögreglunni strax um atvikiö og skýrsla var tekin. Viö gengum i ábyrgö fyrir tjóninu og töldum málinu þar með lokiö, en annaö átti eftir aö koma á daginn. — Þaö kom greinilega leik- mönnum Ystad jafnt sem for- ráðamönnum mjög á óvart að við skyldum sigra I leiknum. — Eftir leikinn kom hins vegar Kurt Wadmark, sem á sæti I aganefnd IHF, inn i búnings- klefann til okkar og þakkaöi okkur fyrir góðan og prúðmann- legan leik. — Þessi sami maður veröur svo til þess aö kæra okkur fyrir alþjóða aganefnd- inni, en hann hefur einmitt dómsvaldið þar og fellir dóm yfir okkur. — Sannarlega undarleg vinnubrögt og ég' trúi þvi ekki að IHF verði stætt á þessari ákvörðun. — HSI hefur enn ekkert borist um þetta mál, sagði Siguröur Jónsson, en ég tel fullvist að HSl taki hart á þessu og fordæmi siik vinnubrögð. Það er ekkert fordæmi til fyrir þessu og ég á bágt meö að trúa þvi að ekki sé hægt aö hagga þessum dómi. —SSv—

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.