Tíminn - 24.03.1979, Side 6

Tíminn - 24.03.1979, Side 6
6 amiiiji; Laugardagur 24. mars 1979. Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvœmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson og Jón SigurOsson. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar SlOumtila 15. Sfmi 86300. — Kvöldslmar biaOamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. VerO i lausasölu kr. 150.00. Askriftargjald kr. 3.000.00 - á mánuöi. BlaOaprent Erlent yfirlit Sibanouk rýfur öll tengsl við Pol Pot Hvaða hlutverk ætlar Teng honum? Sjálfstæð stefna Með valdatöku fyrri rikisstjórnar Ölafs Jó- hannessonar árið 1971 urðu margþætt timamót i is- lenskum stjórnmálum. Allt þjóðfélagið og þjóðlifið ber merki þeirrar framsóknár sem þá var hafin og hefur haldið áfram þrátt fyrir hina miklu verð- bólgu. Við stjórnarskiptin 1971 urðu ekki aðeins timamót i innanlandsmálum, heldur tók vinstri stjórnin einnig upp sjálfstæða utanrikismálastefnu undir forystu Einars Ágústssonar. Þar með var horfið frá þeirri athafnasnauðu hlýðnisafstöðu sem „við- reisnarstjórnin” hafði talið Islendingum sæma. Þessari óháðu utanrikisstefnu hafa íslendingar fylgt siðan, og á þeim árum sem liðið hafa hefur hún tekið á sig varanlegt mót. Það var gæfa þjóðarinnar að farsæll maður hafði um þetta forystu um sjö ára skeið og hélt ótrauður áfram að móta þessa stefnu og framfylgja henni þrátt fyrir stjórnarskipti og ýmis umskipti i innanlandsmálunum. Hin sjálfstæða utanrikismálastefna byggist á samþykktum flokksþinga Framsóknarflokksins. Fyrirferðarmesta atriði hennar hefur verið land- helgismálið, en enda þótt mikill sigur hafi unnist i þvi eru verkefnin á þessu sviði ótæmandi til fram- tiðar i vernd og nýtingu auðlindanna. Annað mikilvægt atriði lýtur að samskiptunum við Bandarikjamenn i öryggismálum. „Viðreisnar- stjórnin” hafði haldið þeim málum frá öllum opnum umræðum. Stefna vinstri stjórnarinnar var sú að is- lenskir hagsmunir ættu að sitja i fyrirrúmi að öllu leyti. Á þeim grundvelli var sendingum Keflavikur- sjónvarpsins til Reykjavikur hætt og varnarsamn- ingurinn endurskoðaður. Á sama hátt hefur það verið sjálfstæð ákvörðun Islendinga og mat á stöðu þeirra og hagsmunum að halda áfram fullri þátt- töku i varnar- og öryggismálasamstarfi nágranna og frændþjóða okkar. Þriðja mikilvæga atriðið sem ástæða er til að benda sérstaklega á er hagsmunir Islendinga i þeirri miklu samvinnu sem orðin er við aðrar þjóðir á sviði viðskipta og samgangna. Með uppvexti efna- hags- og verslunarbandalaganna umhverfis okkur hefur þessi þáttur orðið æ mikilvægari, og er alveg ótvirætt að mikið mun reyna á einbeitni og samn- ingalipurð Islendinga i þeim efnum um langa fram- tið. Það hefur verið sagt að utanrikismálastefnan hafi ekki verið einbeitt á þessum árum, og það hefur verið sagt að hún hafi breytst við stjórnarskiptin 1974. Þegar litið er um öxl kemur i ljós að þetta er rangt. Allan timann hefur verið framfylgt sjálf- stæðri islenskri utanrikisstefnu sem miðast hefur við islenskar aðstæður og hagsmuni. Varðandi þann þátt að erlendum öryggisliðum á islenskri grund skuli fækkað i áföngum, má benda á það að nú býr enginn þeirra utan flugvallarsvæðisins á Miðnes- heiði og hér er ekki lengur miðstöð flugsveita svo sem áður var. Þannig hefur einnig náðst mikilsverður áfangi i þessu mikilvæga máli, enda þótt hitt sé rétt að það hefur verið sjálfstætt mat íslendinga sjálfra að að- stæður leyfi ekki frekari áfanga i svip. Núverandi utanrikisráðherra skal hér á engan • hátt lastaður. Hitt liggur ljóst fyrir að það var létt verk að taka við utanrikismálunum á siðasta ári. Grunnurinn hafði verið lagður. Sihanouk ÞEGAR Sihanouk prins kom til Peking i janiiarmánubi siöastl.eftir a6 hafa veriði haldi hjá Pol Pot i þrjú ár, lét hann svo ummælt á blaOamanna- fundi, aO hann ætlaöi sér aö hætta öllum afskiptum af stjórnmálum, þegar hann hefOi lokiö hlutverki sinu sem fulltrúi Kambódlu á fundi öryggisráös- ins, sem þá haföi veriö boöaöur til aö ræöa um innrás Vietnams i Kambódiu. Stjórn Pol Pots haföi leyst hann úr haldi og óskaö þess, aö hann talaöi máli Kambódiu á vettvangi öryggis- ráösins. Sennilegt þykir, aö Pol Pothafi hérfariö aö ráöum Kfn- verja. Eftir aö Sihanouk var sloppinn frá Kambódiu til Peking, var hann ómyrkur i máli um stjórnarhætti Pols Pot, sem hann taldi einhverja hina verstu I heimi, þótt þeir rétt- lættu ekki innrás Vfetnama. Sihanouk lét þetta ekki siöur I ljós, þegar hann flutti mál Kambódiu á fundi Oryggisráös- ins ogféll sá málflutningur hans fuhtrúum vel I geö. Eftir aö hafa lokiö hlutverki sinu hjá Oryggisráöinu, lagöist Sihanouk á spitala i New York sér til hressingar og hvildar. Jafnframt gaf hann i skyn, aö hann ætlaöi sér aö setjast aö i Frakklandi, en þar á hann frá fyrri tiö veglega „villu” á Miö- jaröarhafsströndinni. Fyrir- ætlun hans væri aö eiga rólega daga þaö, sem eftir væri æv- innar , en sennilega myndi hann þó dunda viö aö skrifa endur- minningar sinar. Nokkru eftir aö Sihanouk lýsti þessari fyrirætlun sinni, hittust þeir Teng varaforsætisráöherra Kina, þegar sá siöarnefndi heimsótti Bandarikin. Viöræöur þeirra breyttu fyrirætlunum Sihanouks. Hann skýröi skömmu siöar frá þvi, aö hann myndi aftur halda til Peking og hafa bólfestu sina þar. Hann sagöist kunna vel viö sig i Peking, en þar dvaldi hann sem útlagi og sérstakur gestur kfri- versku stjórnarinnar á árunum 1970-1975. Fréttaskýrendur gizkuöustrax á, aö Teng ætlaöi Sihanouk enn eitthvert hlutverk fyrst hann heföi bersýnilega lagt áherzlu á, aö Sihanouk sett- ist aö i Peking. ÞESSI kenning fékk byr i seglin síöastliöinn mánudag, þegar Sihanouk bauö erlendum blaöamönnum til kvöldveröar á heimili sinu, en hann býr i all- myndarlegri höll, sem Klna- stjórn hefur fengiö honum til umráöa. Eftir kvöldveröinn ræddi Sihanouk Itarlega viö blaöamennina og naut þess ber- sýnilega aö vanda. Hann lýsti m.a. yfir þvi,aö hann heföi rofiö öll tengsl viö Pol Pot og Ieng Sary. Hann kallaöi Pol Pot moröingja, en til aö gæta jafn- vægis kallaöi hann Castro glæpamann. Hann sagöi þá yfir- lýsingu stjórnar Thailands ranga, aö Kinverjar heföu eldci fengiö aö flytja vopn um Thai- land til rauöu kmeranna i Kambódiu. Hann heföi þetta eftir engum öörum en Teng sjálfum. Hann bætti þvi viö, aö Bandarikjamenn heföu beöiö sig aö þegja um þetta vegna Thailendinga, en hann sæi enga ástæöu til þess. Sihanouk sagöi, aö þaö væri tillaga sin, aö nýr Genfarfundur yröi haldinn um mál Indókina, en sllk ráöstefna var haldin, þegar nýlendustjórn Frakka lauk þar endanlega. Mál Kambódiu ætti aö leysa meö frjálsum kosningum og væri hann reiöubúinn til aö taka þátt I þeim. Hann væri einnig reiöu- búinn til aö taka viö stjórnar- taumunum, en þó því aöeins aö þjóöin hafnaöi bæöi Pol Pot og Ihlutun Vietnama. Kinverjar vildu hins vegar ekki fallast á framangreinda lausn mála. Teng heföi sagt sér, aö Pol Pot og Ieng Sary heföu lofaö þvi, aö beita ekki haröstjórn, ef þeir kæmust aftur til valda. Þaö getur enginn breytt tigrisdýri i kött, bætti Sihanouk viö frá eigin brjósti. 1 FRAMHALDI af þessu viö- tali Sihanouks viö blaöamenn- ina hefur sá orörómur aukizt, aö Teng kunni aö ætla Sihanouk eitthvert hlutverk I sambandi viö þær viöræöur milli Kina og Vietnams, sem standa fyrir dyrum. Þaö þykir nokkurn veg- inn sjálfgefiö, aö þar muni mál- efni Kambódiu bera á góma meö einum eöa öörum hætti og Sihanoukkunniaöblandast inni þær. Tæpast hefúr þaö veriö til- gangslaust hjá Teng, þegar hann fékk Shianouk til aö setjast aftur aö i Peking. I áöurnefndum viöræöum viö blaöamennina, lét Sihanouk i þaöskina, aö hann heföi hvergi nærri fullt traust Kinverja. Þeir óttuöust, ef hann kæmist til valda i Kambódiu, aö þá yröi Kambódia ekki aöeins hlutlaust riki I oröi, heldur lika á boröi. Slikt væri hins vegar ekki vilji Kinverja. Sumir fréttaskýr- endur gizka á, aö Sihanouk hafi fengiö leyfi Tengs til aö gagn- rýna Kinverja i hófi, svo aö hann yröi siöur talinn verkfæri þeirra. En margt óliklegra gæti skeö en þaö, aö Sihanouk ætti enn eftir aö koma viö sögu. Þ.Þ. JS Slhanouk þykir blæbrigöarik persóna.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.