Tíminn - 25.03.1979, Qupperneq 8

Tíminn - 25.03.1979, Qupperneq 8
8 Sunnudagur 25. mars 1979. Ingólfur Davíðsson: 266 Byggt og búið í gamla daga 1 Reykholti (1925) „Þyngdi i lofti þögult kvöld, það var á grimmri Sturlu-öld”. Þannig hefst máttugt kvæði Matthiasar Jochumssonar: Vlg Snorra Sturlusonar. (Nóttin milli 22. og 23. sept. 1241). Einnig: „yfir rikan Reykholts- garð, rauður máni sýndi skarð — Gissur eftir grimman leik gneypur hafði sig á kreik” o.s.frv. Snorri gerði sannarlega Reykholtsgarð frægan. Liklega hefur veriö gott bókasafn I Reykholti á dögum Snórra. Þaö þætti ekki ónýtt nú aö eiga þær bækur eða a.m.k. skrá yfir þær! Hinn auðugi höfðingi hefur húsað vel bæ sinn og haft marga þjónustumenn, m.a. ritara góða. Munnmæli segja hann hafa gert Snorralaug, en baðlaugar I Reykholti er oft get- ið til forna og það þegar á 10. öld. Oft hefur verið gert viö laugina, t.d. var hún hlaöin upp 1858. Þorvaldur Thoroddsen lýs- ir Snorralaug sumarið 1890 á þessa leið: „Snorralaug er rétt hjá bænum, norðaustanundir dálitlum hól. Hún er kringlótt og 4 m að þvermáli. Laugin er hlaðin upp vel og vandlega úr höggnum hverahrúðurssteinum og hellur I botninum. Hún er nærri 1,2 m á dýpt, og fram með veggjunum er bekkur eða brík. Or hvernum Skriflu er heita vatninu veitt I Snorralaug um 111 m langan stokk. Stokkur þessi er mest allur neðanjaröar, en þó opinn næst Skriflu. Þar sem vatnið úr stokknum rennur I laugina er hiti þess 64 gráöur, en þaö hefur mátt stifla stokk- inn fast við laugina, svo vatnið rann um annan stokk burtu, saman við vatn það, sem hleypt er úr lauginni. Hefur svo heita vatnið I Snorralaug veriö látið standa nokkra stund, uns þaö var svo kólnaö að menn gátu baöaö sig i þvl. Vatninu var hleypt úr lauginni gegnum koparplpu, sem rétt við botninn gengur út I stokk til suðurs, en niður I laugina eru fjögur steinþrep”. Vei má vera aö Snorri hafi endurbætt gamla baðlaug, en hann hafði hinar bestu forsagnir á hverju sem gera skyldi, samkvæmt Sturl- ungu. Myndin af Snorralaug og Reykholti er á gömlu póstkorti, sem gæti veriö frá þvl um 1920. Otg. G.M.B. Dökkklæddi maöurinn viö laugina er Gunnlaugur Briem Einarsson guöfræöinemi. 'A myndinni Reykholt I Borgarfirði sér á smiðju lengst til hægri. Baðstofan blasir við Við Snorralaug (4/7. 1976) næst, torfveggir, þak og timbur- gafl, en kirkjan yst til vinstri. A annarri mynd sér beint framan I timburþilin og opnar bæjardyrnar. Lltum að lokum inn á dyraloftið. Til hægri við glugg- ann situr maður á rúmi slnu, hjá kofforti. Annað rúm sést til vinstri á fjalagólfinu. Sperrur og sver langbönd I þaki. Myndir þessar hefur Reykholtsmaður Vilhjálmur Einarsson, nú búsettur á Sel- fossi, léð I þáttinn. A Hofmannaflöt (1929) Í /’V 1*4! iírv -!i : ■ ■ 7* ■ Í r.'-;.' V . * » .'•-* -£•' t „Reykholtsskógi” (1928) 1 Reykholti, Skrifla, Dynkur LITAVER • LITAVER • LITAVER • LITAVER ■ LITAVER • LITAVER • LITAVER ■ LITAVER • LITAVER Kork-gólfflísar Gólfteppi Lít;ð,við' -L jl Litavpri Gólfdúkur ní Það x t ■ • • hefur Veggstngi avaiit Veggfóður bor9st MALNINGAR MARKAÐUR A/ltá Litavers-kjörverði i i m Grensásvegi • Hreyfilshúsi • Sími 8-24-44 LITAVER • LITAVER • LITAVER • LITAVER • LITAVER ■ LITAVER ■ LITAVER • LITAVER • LITAVER

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.