Tíminn - 25.03.1979, Blaðsíða 27

Tíminn - 25.03.1979, Blaðsíða 27
J8SE Sunnudagur 25. mars 1979. |ll'1l l'l'l 'l'{{ 27 ERINDI 06 STUTTAR HEIMILDARKVIK- MYNDIR á vegum M.Í.R. Á næstu vikum i mars og aprfl gengst MÍR, Menningartengsl ís- lands og Ráðstjórnar- rikjanna, fyrir flutningi nokkurra erinda í MíR-salnum, Laugavegi 178. Stuttar heimildar- kvikmyndir verða sýnd- ar með hverjum fyrir- lestri. Nýr Samúel tJt er komið aprfl/maí hefti timaritsins Samúel og að vanda kennir ýmissa grasa i blaðinu. Blaöið er 32 siður að stærð, prentað á góðan pappír og meðal efnis má nefna frásagnir af hljómleikum SuziQuatroog David Bowie, grein um stjörnumerki þingmanna okkar, sagt er frá feita félaginu auk þess sem að siðasti keppandinn um titilinn ungfrú Hollywood er kynntur. Samúel kostar 600 krónur. MALASKOLI HALLDÓRS Kennir spænsku í Madrid SkólastjóriMálaskóla Halldórs, Halldór Þorsteinsson hefur i hyggju aö fara með hóp spænsku- nemenda til frekara tungumála- náms i Madrid. Ætlunin er að fljúga héðan i lok mai og setjast á skólabekk i 4 vikur i einum þekkt- ■ asta málaskóla Spánar, Estudio Internacional Sampere . í gjaldinu sem skólinn býöur nemendum, er þetta innifaliö: námsgjald, kennslubækur, fullt fæði og húsnæði, 3 dagsferðir (með nesti) til Escorial/Valle de los Caidos, Segovia og Toledo, auk skoðanaferöa á söfn og sögu- staði i höfuðborginni sjálfri. Rétt er að geta þess, að for- stööumaður skólans Alberto Sampere kemurhingað ogkennir væntanlegum þátttakendum (og ef til vill fleirum) á degi hverjum I heila kennsluviku (þ.e. 7.-11. mai) i Málaskóla Halldórs og er það m.a. gert I þvi skyni að búa þá betur undir ferðina, skipa þeim i flokka eftir kunnáttu eða með öðrum oröum aö bæta einni viku við námskeiðiö. öllum er heimil þátttaka og er þá lika átt við nemendur sem stundaö hafa spænsku annars staðar en i Mála- skóla Halldórs. Auglýsið Tímanum Þegar hafa nokkur erindanna verið ákveöin og verður hið fyrsta þeirra n.k. fimmtudag,en þá mun Georgi Farfonov sendiherra gera grein fyrir sovéskum viðhorfum á. sviði utanrikismála i ljósi hinnar nýju stjórnarskrár Sovétrikjanna sem tók gildi I október 1977. Þá hafa einnig verið ákveðin erindi næstu fjóra laugardaga og hefjast þau öll klukkan 15. Siðar verður tilkynnt um erindaflutning fyrirlesara sem' væntanlegur er hingað til lands frá Sovétrikjunum á vegum MÍR i vor. MIR hefur I vetur sýnt sovéskar kvikmyndir fullrar lengdar hvern laugardag i salnum að Laugavegi 178, nú að undanförnu t.d. nokkr- ar gamlar sovéskar barna- myndir, og veröur þessum sýningum haldið áfram fram á vor. Þær falla þó niður þá laugar- daga sem fyrirlestrar verða. Um páskana verða sýndar nokkrar styttri heimildarkvikmyndir um ýmis efni og eru allmargar myndannameð skýringatali á is- lensku. Þessar sýningar veröa á ski'rdag, 12. april, laugardaginn 14. april og annan i páskum 16. april kl. 15. Aðgangur að fyrirlestrum MIR og kvikmyndasýningum er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Mannlífsmyndir „Á næstu grösum” Um siðustu helgi opnaði Kristján Ingi Einarsson ljósmynda- sýningu á matsölustaðn- um ,,Á næstu grösum” Laugavegi 42. Á sýningunni sem hann nefnir Siesta á næstu grösum sýnir hann 30 svart/hvitar mannlifsmyndir teknar á Ibiza og Formentera, þar sem hann reynir aö túlka i myndum lifsmynstur innfæddra á þessum stöðum. Myndirnar eru allar teknar I ágúst slðastliðnum og eru allar til sölu. Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 11-22.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.