Tíminn - 25.03.1979, Blaðsíða 20

Tíminn - 25.03.1979, Blaðsíða 20
20 Sunnudagur 25. mars 1979. 75 ÁRA í DAG Jón Danlelsson í Hvalllátrum Hann fæddist I Hvallátrum 25. mars 1904 og þar hefur hann átt heima alla tiö sína, aö tveim árum undanskildum, þá var hann í Skáleyjum. Foreldrar hans voru Danlel Jónsson og Marla Gu&mundsdóttir. Þau voru I hdsmennsku hjá ólafí Bergsveinssyni I Hvallátrum þegar Jón fæddist og þaöan af á meöan þau liföu. Danlel var bróöir ólinu, konu ólafs. Þegar Jón var á áttunda ári dó móðir hans, en hann var á ellefta ári, þegar faðir hans dó. Eftir það ólust Jón og þrjú systkini hans upp á heimili Ólafs, en þab fimmta fór i uppeldi i Skál- eyjum. Skólaganga var litil, en ólafur hélt heimiliskennara fyrir börn- in á sinu heimili og þar naut Jón kennslu I tvo vetur, og þann þriðja — veturinn fyrir ferm- inguna — var farkennari I eyj- unum og börnin fylgdu honum. A þeim tima voru börn komin I tölu fulloröinna þegar þau voru fermd og þá bar þeim aö skila fullum starfsdegi. Eftir ferm- inguna var Jón vinnumaður hjá Ólafi fóstra sinum og hélst svo meðan Ólafur bjó, en þó slðustu árin var hann þaö sem nú á tlm- um kallast ráðsmaður á búinu og ellistoð ólafs. Árið 1932 kvæntist Jón Jóhönnu Friðriksdóttur, ekkju Aðalsteins ólafssonar fóstur- bróðurslns. Húnfæddist i Ólafs- vík, en ólst upp I Skógarnesi á Snæfellsnesi . Hún giffist Aðal- steini áriö 1920 og fór með hon- um i Hvallátur. Hann drukknaði 1923, þau höfðu þá eignast þrjú börn, en misst eitt þeirra. Jón og Jóhanna hafa siöan búið I Hvallátrum, að undan- teknum tveim árum, eins og fyrr sagði, og alið þar upp sjö börn, en misst eitt ungt. Börn þeirra eru: Ólina gift Hafsteini bónda Guðmundssyni 1 Flatey, Daníel bóndi á Dröngum á Skógarströnd, kvæntur Stein- un Bjarnadóttur, Marla gift Eiiiari Siggeirssyni járnsmið, þaubúa I Garðabæ og Valdimar lögreglumaöur I Kópavogi, kvæntur Aðalheiði Halldórs- dóttur. Björg Aðalsteinsdóttir, stjúpdóttir Jóns er gift John Savage bónda i nágrenni Vancouver I Kanada og Aðal- steinn Aðalsteinsson, stjúp- sonurinn, býr nú I Reykjavlk og er verkstjóri hjá Vita- og hafnarmálastofnun, kvæntur önnu Pálsdóttur. Auk þeirra ólu Jón og Jóhanna upp Aðalstein, son Valdimars ólafssonar fósturbróður Jóns og sambýlis- manns I Hvallátrum fyrstu árin. Hann er smiöur, býr I Búðardal og hans lifsförunautur er Auður Kristjánsdóttir. Undirritaöur fór að hitta Jón til að viða að sér efni I þetta greinarkorn. Þar sem fjarri fer að ég treysti mér til að bæta I nokkru frásagnarstil hans gef ég honum orðið: „Vorið 1935 urðu þáttaskil i Hvallátrum, þegar fóstri minn hætti búskap og við tók Valdi- mar yngsti sonur hans. Ólafur fór þá til dóttur sinnar sem bjó I Skáleyjum ogvið fórum þangað með honum. Við hjónin vorum I tvö ár I Skáleyjum, en 1937f lutt- um við svo aftur i Hvallátur og fórum að búa þar á hálfri jörð- inni, á móti Valdimar fóstur- bróður minum. Slðan höfum við búið þar og haft umráð yfir jörðinni aö öllu eða einhverju leyti. Frá búskap mlnum I Hvallátrum er fátt að segja, hann mótaðist af þeirrar tlöar hætti. Okkur leið þarna vel, höfðum nóg að blta og brenna, eins og sagt er. Það sem af- gangs varð fór til endurbóta á jörðinni. Þú spyrð hvað valdið hafi þvi að ég valdi mér eyjabúskap aö atvinnu, þegar ég óx úr grasi. Ég held að ástæðan sé helst sú, aö ég ólst þarna upp I fjöl- mennum barnahópi og leikir okkar barnanna mótuðust mest af störfum fulloröna fólksins og atvinnulifinu á staönum, sem var fjölbreytt. Fuglallfið og fjárstússið heillaði mig strax. Við vorum snemma látin fara að taka þátt I störfum fulloröna fólksins, sem mörg voru vanda- söm og kröfðust árvekni og samviskusemi. Fjárgasslan var mjög vandasöm i eyjum vegna sjóarhættu sem er ákaflega mikil f Hvallátrum. Það kom meira i minn hlut en hinna strákanna heima aö snúast við féð. Sérstaklega var þetta vandasamt um sauðburðinn vegna sjóarhættunnar og svo varð að gæta þess aö styggja fuglinn sem minnst. Ég náði þvi aldrei að verða meðalmaöur I neinu, hvað þá meira. Ég tek þaö fram að það er ekki þeim að kenna, sem ólu mig upp, eða samferðafólkinu heima. Það var allt traust og gott, nágrannakritur og sveitar- rlgur var ekki til. Fólkiö I inn- eyjunum lifði saman sem ein fjölskylda og hjálpaöi hvert öðru eftir þörfum, án þess að ætlast til launa. Égheld það hafi verið mjög til fyrirmyndar. Þaö að hafa lifað þrjá aldarfjórö- unga er út af fyrir sig ekkert af- rek og sorglegt þegar litiö er til baka aö sjá hvað litiö er eftir. Ég vil sem minnst um sjálfan mig tala, von væri fyrir þig að spyrja samferðafólkið. Ég veit að kostir minir erualltof fáir, ai gallar of margir. Um þá er heldur ekki vert að ræða hér, úr þeim verður ekki bætt héðan af”. Fljótt á litiö kann svo að virð- ast að hér þurfi ýmsu aö mót- mæla. Kunnugir vita að Jón á Látrum hefur risið hátt yfir meðalmennskuna og samferöa- mennirnir telja sér minni hættu búna á llfsgöngunni meðan þeir missa ekki sjónar af slóö hans. Við nánari skoðun sést þó að með hæversku sinni og lltillæti, aðli þeirra sem hafa af miklu að státa, hefur Jón sagt meira um sjálfan sig en abrir menn gætu gert með mörgum orðum. 1 dag fagna Látrahjónin gest- um s&ium á heimili dóttur sinnar og tengdasonar að Hörpulundi 5 I Garöabæ. Ég óska þeim heiila. S.V. ARU Árgerð 1979 TORFÆRUBIFREIÐIN SEM SAMEINAR KOSTI FÓLKSBÍLS OG JEPPA Ummæli nokkurra SUBARU-eigenda á siðasta ári Sigurður Jónsson (Þingeyingur) kenn- ari og bóndi, Ystafelli, Suður-Þing- eyjarsýslu, segir i viðtali um Subaru: „Ég kann mjög vel við bilinn. Hann er sparneytinn, góður i hálku og snjó og rýkur i gang i hvaða veðri sem er. Eftir reynslunni af þeim fyrsta eru nú þrir Subaru-bilar i fjölskyídunni '' Guðni Kristinsson, bóndi og hreppstjóri, Skarði I.andssveit segir i viðtali um Subaru: ,.Það segir kannske best hvernig mér hefir likað við Subaru að ég er að kaupa 1978 árgerðina. Sá gamli hefir þjónað okkur vel, við höfum farið allt á honum sem við höfum þurft að fara og sparneytni Subaru er næsta ótrúleg." Kvjólfur Agústsson, bóndi, Hvammi, Landssveit, segir i viðtali um Subaru: „Ég fékk einn af fyrstu Subaru-bilunum og hefur hann reynst i alla staði vel og tel ég þá henta sérstaklega vel til allra starfa við búskapinn. Ég hef farið á honum inn um allar óbyggðir og yfir- leitt allt, sem ég áður fór á jeppa. Subaru er góður i hálku, duglegur i vatni og sparneytinn — og nú er ég að fá mér 1978 árgerðina.” Hafið strax samband við sölumenn okkar og tryggið ykkur góðan bíl SUBARU—UMBODIÐ INGVAR HELGASON Vonarlandi v/Sogaveg — Simar 84510 og 8451 1

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.