Tíminn - 12.04.1979, Blaðsíða 5
5
Fimmtudagur 12. april 1979
Ég elska
Idi Amin
Borgfirðingavaka 1979
verður haldin dagana
19.-22. april. og verður
dagskrá hennar fjöl-
breyttari en nokkru
sinni fyrr.
Vakan verður sett kl.
14.00 19. april á sumar-
daginn fyrsta með þvi að
opnuð verður sýning i
hinum nýja sýningarsal
Grunnskólans í Borgar-
nesi. Það er Sigurður M.
Sólmundarson sem sýn-
ir 32 myndir. Allar
myndirnar eru unnar úr
islenskum jarðvegi, svo
sem gosefnum hvera-
svæða og mislitu grjóti,
ásamt timbri, járni og
ýmsum gróðri.
A föstudagskvöldiö 20. april
veröur kvöldvaka i félagsheimil-
inu Lyngbrekku og veröur dag-
skráin hin fjölbreyttasta.
A laugardagskvöldinu 21. april
veröur kvöldvakan svo endur-
tekin, en nii I félagsheimilinu
Heiöarborg. Hefjast kvöldvök-
urnar kl. 21.00.
A laugardagskvöldinu veröur
einnig leiksýning. Þjóöleikhúsiö
sýnir hiö vinsæla leikrit „Fröken
Margrét” í Samkomuhiisinu i
Borgarnesi. Er aöalhlutverk
leiksins leikiö af Herdisi Þor-
valdsdóttur. Hefst leiksýningin
kl. 21.00.
Á sunnudeginum kl. 15.00 veröa
tónleikarhaldnir i félagsheimilinu
Logalandi. Þar syngur Karlakór-
inn Fóstbræöur undir stjórn Jón-
asar Ingimundarsonar.
Borgfiröingavaka er haldin
sameiginlega af Ungmennasam-
bandi Borgarfjarðar, Búnaöar-
sambandi Borgarf jarðar.
Kvenfélagasambandi Borgar-
fjaröar og Tónlistarfélagi
Bor^rfjaröar.
Þennan náunga rákust blaöamenn Tfmans á fyrir utan bæ sinn f Hafnarfiröi þegar þeir voru að koma
frá afhendingu DAS-hússins fyrir skömmu og sagt er frá annars staöar i blaðinu. Aöspuröur kvaöst
náunginn vera aö skima eftir „þeim stóra’’ I happdrættinu. „Hann viröist eitthvaö ætla aö iáta á sér
standa, bölvaöur”, sagöi náunginn og þaö eru sjálfsagt fleiri sem taka undir þaö.
(Tfmamynd: Hóbert)
Bókaútgáfan Salt h.f. hefur sent
frá sér bókina Ég elska Idi Amin.
A bókarkápu stendur eftirfar-
andi:
„Þegar Idi Amin komst til
valda f Uganda, rikti mikil bjart-
sýni meðal fólksins i landinu. Sú
bjartsýni breyttist brátt i
vonbrigöi. Fljótlega hófust mikl-
ar hreinsanir, og fjöldi fólks
„hvarf ’ eöa flúöi Ur landi. Kirkj-
an í Uganda fór ekki^ varhluta af
ástandinu. Spennani samskiptum
hennar og stjórnar Idi Amins fór
vaxandi meö hverjum degi og
náöi loks hámarki með moröinu á
Janani Luwum, erkibiskupi
kirkjunnar i febrúar áriö 1977.
Ég elska Idi Amin er áhrifa-
mikil frásögn sjónarvotts, sem
lýsir þeirri ógnarstjórn, sem rikt
hefur I Uganda undanfarin ár.
Bókin ber jafnframt vitni þeim
kærleika, sem stenst ofsóknir,
sigrar hatur og grimmd og er
sterkarien dauöinn.” — Bókin er
74 bls., þýðandi er Jóhannes
Gunnarsson.
Kvenfélag
Biskupstungna
50 ára
Kvenfélag Biskupstungna er 50
ára. Þaö var stofnaö 24. jan 1929.
Fyrsti formaöur var frú Anna
Eggertsdóttir i Laugarási. Eftir
aö hún fluttiburt úr sveitinni áriö
1932 tók viö frú Sigurlaug
Erlendsdóttir á Torfastööum, og
var formaöur I 23 ár.
Félagið hefur alla tið beitt sér
fy rir menningar- og llknarmálum
og haldið uppi öflugri starfsemi
með námskeiöum og annarri
fræöslu og meö þvi móti reynt aö
fylgja stefnu fyrirrennaranna.
Félagið heldur upp á afmæliö
meösamsæti i Aratungu á siöasta
vetrardag kl. 21. Þangaö er boöiö
núverandi og fyrrverandi félög-
um og öllum ibúum sveitarinnar.
Þar verður saga félagsins rakin I
máli og myndum og fleira verður
til skemmtunar.
Núverandi formaöur félagsins
er Agústa ólafsdóttir úthliö.
HEKIAHF
RAFTÆKJADEILD. LAUGAVEGI 170-172. SÍMAR 11687 og 21240.
AUGLÝSINGASTOFA KRISTtNAR 82.24
parraping sem _
handpvott óþarfan!
í amerísku General Electric þvottavélinni
Karfan góða (mini basket) er litil
handhæg karfa sem skellt er í sjálfa
þvottavélina þegar þvo á efni eða
fatnað sem þarf sérstaklega fína með-
höndlun.
Með þessu móti losnar þú við allan
handþvott á viðkvæmum og lit-
gefandi efnum auk þess sem karfan
góða er upplög fyrir þvott á strigaskóm
og uppstoppuðum barnaleikföngum.
Karfan góða er lauflétt i notkun og ^
sparar ekki aðeins tíma og jv
fyrirhöfn heldur einnig hendur þinar. *
GENERAL O ELECTRIC
Ameriska General Electric þvotta-
vélin státar af fleiru en körfunni
góðu enda rómuð fyrir gæði.
Hljóðlát. Einföld i notkun.
Stillanlegt vatnsmagn.
Opnuð að ofanverðu -öryggi vegna
barnanna, þægileg vinnustelling.
Tekur allt að 9 kg í einu.
Þvott má leggja i bleyti i vélinni.
Sterkbyggt drif,öll tannhjól úr málmi.
Tekur inn á sig heitt og kalt vatn.
Sjálfstillandi afturfætur fyrirójöfn gólf.
Sjálfvirkur skammtari fyrir mýkingar-
og bleikingarefni.
Borgfirð-
ingavaka