Tíminn - 01.09.1978, Page 5

Tíminn - 01.09.1978, Page 5
 Föstudagur 1. septeruber 1978 5 Samstarfsyfirlýsing Alþýðubandalags, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks um stjórnarmyndun Ríkisstjórnin telur það höfuð- verkefni sitt á næstunni að ráða fram úr þeim mikla vanda, sem viö blasir i atvinnu- og efnahags- málum þjóðarinnar. Hún mun þvi einbeita sér að þvi að koma efna- hagsmálum á traustan grundvöll og tryggja efnahagslegt sjálf- stæði þjóöarinnar, rekstrar- grundvöll atvinnuveganna, fulla atvinnu og treysta kaupmátt lægri launa. Rikisstjórnin mun leggja áherslu á aö draga markvisst úr verðbólgunni með þvi að lækka verðlagog tilkostnaö og draga úr víxlhækkunum verölags og launa og halda heildarumsvifum i þjóðarbúskapnum innan hæfi- legra marka. Hún mun leitast viö að koma i veg fyrir auösöfnun i skjóli verðbólgu. Rikisstjórnin mun jafnframt vinna áð hagræðingu I rikis- rekstri og á sviöi atvinnuvega með sparnaöi og hagkvæmri ráðstöfun fjármagns. Rikisstjórnin mun vinna aö félagslegum umbótum. Hún mun leitast við að jafna lifekjör, auka félagslegt réttlæti og uppræta spillingu.misrétti og forréttindi. Þessum meginmarkmiðum hyggst rikisstjórnin einkum ná meö eftirgreindum aðgerðum: 1. Samstarf við aöila vinnu- markaöarins Rikisstjórnin leggur áherslu á að komið verði á traustu sam- starfi fulltrúa launþega atvinnu- rekenda og rikisvalds sem miði m.a. að þvi að treysta kaupmátt launatekna,jafna lifskjör og tryggja vinnufrið. Unnið veröi aö gerð þjóöhags- og framkvæmdaáætlunar sem marki m.a. stefnu I atvinnuþróun, fjárfestingu,tekjuskiptingu og kjaramálum. Jafnframt verði mörkuð stefna um hjöönun verö- bólgu i áföngum og ráöstafanir ákveðnar sem nauösynlegar eru i þvi skyni m.a. endurskoöun á visitölukerfinu, aögerðir i skatta- málum og nýja stefnu i fjár- festingar- og lánamálum. 2. Efnahagsmál 2.1. Fyrstu aögeröir.Til þess aö tryggja rekstur atvinnuveganna, atvinnuöryggi og friö á vinnu- markaöi og veita svigrúm til þess aö hrinda i framkvæmd nýrri stefnu I efnahagsmálum mun rikisstjórnin nú þegar gera eftir- greindar ráðstafanir: 1) Lög um ráðstafanir I efnahags- málum frá febrúar 1978 og bráðabirgðalög frá mai 1978 verði felld úr gildi. Laun verði greidd samkvæmt þeim kjara- samningum, sem siðast voru geröir, þó þannig að verðbætur á hærri laun verði sama krónu- talan og á laun sem eru 233.000 kr. á mánuöi miöað við dag- vinnu. 2) Verölag veröi lækkað frá þvi sem ella hefði oröið m.a. meö niðurgreiðslum og afnámi söluskatts af matvælum sem samsvarar 10% i visitölu verð- bóta l.septemberog 1. desem- ber 1978 og komið verði i veg fyrir hvers konar verðlags- hækkanir eins og unnt reynist. Rikisstjórnin mun leggja skatta á atvinnurekstur, eyðslu, eignir, hátekjur og draga úr útgjöldum rikissjóðs til þess að standa straum af- kostnaði við niðurfærsluna. 3) Til þess að koma i veg fýrir stöðvun atvinnuveganna veröi þegar I stað framkvæmd 15% gengislækkun, enda verði áhrif hennar á verðlag greidd niður (sbr. liö 2). 4) Rekstrarafkoma atvinnuvega verði bætt um 2-3% af heildar- tekjum með lækkun vaxta af afurða- og rekstrarlánum og lækkun annars rekstrar- kostnaðar. 5) Gengishagnaði af sjávar- afurðum verði ráöstafaö aö hluta i Veröjöfnunarsjóð, að hluta til útgerðar vegna gengistaps og loks til hag- ræðingar I fiskiðnaöi og til þess að leysa sérstök staðbundin vandamál. 6) Veröjöfnunargjald það sem ákveðið hefur veriö af sauð- fjárafurðum I ár verði greitt úr rikissjóði. 2.2. Breytt efnahagsstefna. í þvi skyni að koma efnahagslifi þjóöarinnar á traustan grundvöll *eggur rikisstjórnin áherslu á breytta stefnu i efnahagsmálum. bvi mun hún beita sér fyrir eftir- greindum aðgerðum: 1) 1 samráði við aðila vinnu- markaöarins veröi gerö áætlun um hjöðnun verðbólgunnar i ákveðnum áföngum. 2) Skipa skal nefnd fulltrúa laun- þega, atvinnurekenda og rikis- valds til endurskoðunar á við- miöun launa við visitölu. Lögð verði rik áhersla á að niöur- stööur liggi sem fyrst fyrir. 3) Stefnt veröi að jöfnun tekju- og eignaskiptingar m.a. með þvi að draga úr hækkun hærri launa og með veröbólguskatti. 4) Stefnt verði aö jöfnuði i viðskiptum við útlönd á árinu 1979 og dregiö úr erlendum lán- tökum. 5) Mörkuö veröi gjörbreytt fjár- festingarstefna. Með sam- ræmdum aögeröum veröi fjár- festingu beint i tæknibúnað endurskipulagningu og hag- ræðingu í þjóðfélagslega arð- bærum atvinnurekstri. Fjár- festing 1 landinu verði sett undir stjórn, sem marki heildarstefnu I fjárfestingu og setji samræmdar lánareglur fyrir fjárfestingasjóðina I sam- ráði við rikisstjórnina. 6) Dregið verði úr fjárfestingu á árinu 1979 og heildarfjármuna- myndunverði ákveðin takmörk sett. 7) Aðhald i rikisbúskap verði stóraukið og áhersla verði lögð á jafnvægi i rflúsfjármálum. 8) Rflkisstjórnin mun leita eftir samkomulagi við samtök launafólks um skipan launa- mála fram til 1. desember 1979 á þeim grundvelli að samningarnir frá 1977 verði framlengdir til þess tima, án breytinga á grunnkaupi. 1 þvl sambandi er rikisstjórnin reiðubúintil að taka samnings- réttarmál opinberra starfs- manna til endurskoöunar, þannig aö felld verði niður ákvæöi um timalengd, samninga og kjaranefnd. 9) Dregiö verði úr verðþenslu með þvl að takmarka útlán og peningamagn i umferö. 10) Niöurgreiðslu og niðurfærslu verölags verði áfram haldiö 1979 með svipuöum hætti og áformaö er I fyrstu aðgerðum 1978. 11) Lögð verði áhersla á að halda ströngu verölagseftirliti og aö verðlagsyfirvöld fylgist með verðlagi nauðsynja I viöskipta- löndum til samanburðar. Leitað verði nýrra leiða til þess aölækka verðlag I landinu. Sér- staklega verði stranglega hamlaö gegn verðhækkunum á opinberri þjónustu og sllkum aðilum gert að endurskipu- leggja rekstur sinn með tilliti til þess. Giltíistöku 8. gr. nýrrar verðlagslöggjafar verði frestað. Skipulag og rekstur inn- flutningsverlunarinnar veröi tekiö til rækilegrar rannsókn- ar. Stefnt verði að sem hag- kvæmustum innflutningi á mikilvægum vörutegundum, m.a. með útboðum. Úttekt verði gerð á rekstri skipafélaga I því skyni að lækka flutningskostnað og þar með almennt vöruverö i land- inu. Fulltrúum neytendasamtaka og samtaka launafólks verði gert kleift að hafa eftirlit með framkvæmd verðlagsmála og veita upplýsingar um lægsta verð á helstu nauðsynjavörum á hverjum tima. 12) Verðjöfnunarsjóður fisk- iðnaöarins verði efldur til aö vinna gegn sveiflum I sjávarút- vegi. 13) Skattaeftirlit verði hert og ströng viðurlög sett gegn skatt- svikum. Eldri tekjuskattslög- um veröi breytt meö hliðsjón af álagningu skatta á næsta ári og nýafgreidd tekjuskattslög tekin til endurskoðunar. Sérstakar ráðstafanir verði gerðar til að koma I veg fyrir að einkaneysla sé færð á reikning fyrirtækja. 3. Önnur mál 3.1. Landbúnaður. Stefnt veröi að sem hagkvæmustu rekstrar- formi og rekstrarstærö búa og að framleiðsla landbúnaðar vara miðist fyrst og fremst við innan- landsmarkað. Skipuð veröi samstarfsnefnd bænda og neytendasem stuöli aö aukinni fjölbreytni i búvörufram- leiðslu og til samræmingar ósk- um neytenda með aukna innan- landsneyslu að marki. Endurskoðað verði styrkja- og útflutningsbótakerf i land- búnaöarins með þaö aö marki aö greiöslur komi bændum að betri notum en nú er. Lögunum um Framleiðsluráð landbúnaðarinsveröibreytt, m.a. á þann hátt aö teknir verði upp beinir samningar fulltrúa bænda og rikisvaldsins um verðlags-, framleiðslu- og önnur hagsmuna- mál landbúnaðarins. Jafnframt verði Framleiösluráði veitt heimild til að hafa með verðlagn- ingu áhrif á búvöruframleiðslu i samræmi við markaðsaðstæður. Rekstrar- og afurðalánum verði breytt þannig að bændur geti fengið laun sin greidd og óhjákvæmilegan rekstrarkostnað svipað og aðrir aðilar fá nú. 3.2 Fiskveiðar og vinnsla. Stjórnun fiskveiða og fiskvinnslu verði endurskoðuð og gerð áætlun um sjávarútveg og fiskiðnað. Miðist hún við hagkvæma og arð- sama nýtingu fiskistofna án þess að þeim verði stefnt i hættu. Stað- bundin vandamál verði tekin til sérstakrar meðferðar og leyst markvisst og skipulega. Ct- flutningsverömæti verði aukin með betri nýtingu, aukinni vinnslutækni, meiri fjölbreytni i afla, afurðum og öflugri sölu- starfsemi. Gerð verði úttekt á rekstri út- flutningssamtaka i fiskiðnaði fyrirkomulagi hans og hag- kvæmni. 3.3 Iðnaður Unniö verðir að áætlun um islenska iðnþróun og skipulegrirannsókn nýrrar fram- leiðslu sem hentar hérlendis. Samkeppnisaðstaða islensks iðnaðar verði tekin til endur- skoðunar og spornað meö opin- berum aðgerðum gegn óeðlilegri samkeppni erlends iðnaðar m.a. með frestun tollalækkana. Is- lenskum iðnaði verði veitt aukin tækniaðstoð til hagræðingar og framleiðniaukningar og skipuleg markaðsleit og sölustarfsemi efld. 3.4. Orkumál. Mörkuð verði ný stefna i orkumálum með það að markmiðið aö tryggja öllum landsmönnum næga og örugga raforku á sambærilegu verði. Komið veröi á fót einu lands- fyrirtæki er annist meginraforku- framleiöslu og raforkuflutning um landið eftir aöalstofnlinum. Fyrirtæki þetta verði i byrjun myndað með samruna Lands- virkjunar, Laxárvirkjunar og orkuöflunarhluta Rafmagns- veitna rikisins. Það fyrirtæki yfirtaki allar virkjanir I eigu rikisins og stofnlinur. Gerö verði áætlun um raforku- þörf ograforkuöflun til næstu 5-10 ára. I þvi sambandi veröi endur- skoöuö framkvæmdaáætlun um Hrauneyjarfossvirkjun málefni Kröfluvirkjunar verði tekin til endurmats og tryggt viðunandi öryggi Vestfjaröa og Austurlands I orkumálum. Viðræöunefnd við erlenda aðila um orkufrekan iðnaö veröur lögö niður enda hefur rlkisstjórnin engin áform um aö heimila inn- streymierlends áhættufjármagns i stóriöjufyrirtæki. 3.5. Hagræðingarmál. Banka- kerfið verði tekið til endur- skoöunar og rikisbönkum fækkað i tvo. Skipulag oliusölu og vá- tryggingarmála endurskoðað og leitaö hagræðingar. Athugað veröi að tengja lyfjaverslun heil- brigðisþjónustu og setja hana undir félagslega stjórn. Endurskoðuð verði lög um Seðlabanka íslands og stööu hans i stjórnkerfinu. 3.6 Byggðastefna. Byggða- stefnu verði fram haldið með svipuðum þunga og verið hefur. Áhersla verði lögð á hagræðingu og endurskipulagningu atvinnu- greina um land allt og lausn staðbundinna vandamála þar sem atvinnuvegir eiga i sérstök- um erfiðleikum eða búseta i hættu. Skipulag og starfshættir Framkvæmdastofnunar rikisins og fleiri opinberra aðila veröi Framhald á bls. 19. VIDOPNUMIDAG MEÐ FRUMSYNINGU KL16 „Stórglœsileg sjning, sem á vafa- laust eftir að vekja umtal.. ólafur Laufdal, Hollywood Tuttugu og þrír fataframleiÖcndur, Karon, Módelsamtökin og félagar úr Hárgreiðslumeistarafélagi íslands og Sambandi íslenskra fegrunarsér- fræðinga, hafa einsett sér að koma öllum rækilega á óvart á FÖT ’78. Sýndar verða nýjungar í innlendri fataframleiðslu i sérstökum sýningar- deildum, en á sýningarpalli verður sér- sýning á hárgreiðslu, sérsýning á snyrtingu, og síðast en ekki síst STÓRGLÆSILEG TÍSKUSÝNING. ISIENSK FOT/78 LAUGARDALSHOLL 1,—10. SEPTEMBER ■ I ■ ■ —=5S AKRAPRJÓN HF. ÁLAFOSS HF. ARTEMIS SF. NÆRFATAGERÐ BLÁFELDUR HF. BÓT HF. ELGUR HF. FATAGF.RÐIN HF. FOT HF. GRÁFELDUR HF. HENSON — SPORTFATNAÐUR HF. HILDA HF. KARNABÆR HF. KLÆÐI HF. LEÐURSMIÐJAN LEXA HF. MAX HF. NÆRFATAGERÐIN CERES HF. PAPEY HF. R. GUÐMUNDSSON SJÓKLÆÐAGERÐIN HF.______ SKINFAXI HF.____________ SPORTVER HF.___________ VINNUFATAGERÐ ÍSLANDS HF. Opið virka daga kl. 17—22. Laugardaga og sunnudaga kl. 14—22. Aðgöngumiðaverð: kr. 700 fyrir fullorðna kr. 300 fyrir börn

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.