Tíminn - 01.09.1978, Blaðsíða 7

Tíminn - 01.09.1978, Blaðsíða 7
Föstudagur 1. september 1978 'lUll.Hil.'.lL1. 7 Ríkisstjórn og alþingi — sem framkvæma GESTUR KRISTJÁNSSON Framsóknarmenn eiga að hafa forgöngu um þetta. Skyldu hinir fylgja? Allt venjulegt fólk vill fækka bitlingum, — ég tala nú ekki um þá bitlinga sem bún- ir hafa veriö til handa pólitisk- um gæðingum. Framsóknarmenn vilja. En Ekki meira um það Ég ætla ekki aö fara aö skrifa um efnahagsmál, nauðsynlegar ráöstafanir i þeim málum eða yfirleitt neitt af þvi sem hæst ber þessa dagana i öllum stjórn- málaumraBÖum. — Enda fær fólk sjálfsagt nógu stóran skammt af þvi samt. Nei, það sem mig langar að skrifa um er örlitið af öllu þvi sem lengi hefur verið talað um, en nánast ekkert gert með. Hér er um að ræða málaflokka sem eru ofarlega I hugum óbreyttra borgara, en neðarlega i hugsanabing alþingismanna og annarra ráðamanna að þvi er virðist. Hvers konar þingmenn? Hvers konar þingmenn skyldu vera liklegastir til að skilja og framkvæma þessa sjálfsögðu hluti? Ég tel að það séu menn sem iiækst hafa viða unnið flest störf sem almennust eru og hafa einhverja menntun. — Háskóla- próf, stúdentspróf, verslunar- próf o.s.frv. hafa ekkert að segja ef viðkomandi hefur ekki tekið þó nokkrar valgreinar I skóla lifsins með. Sjáið þingliðið núna. Hvað ætli þeir viti eða geti? Sjáið þið þá ekki fyrir ykkur i góðri brælu stadda á netabát, eigum við að segja i 12 stiga frosti og myrkri? Eða með 50 kilóa lofthamar i höndum, fleygandi skemmti- legaharðaklöpp? Skyldi nokkur þeirra geta skipt um dekk á 56 manna rútu, eða komið henni og farþegum óskemmdum i Land- mannalaugar? Það má eflaust telja á fingr- um sér þá þingmenn sem hafa nokkurn skilning á þvi sem ég hef talið upp eða fjölmörgum al- mennum störfum öðrum. Jafn- vel hinir svokölluðu verkalýðs- foringjar sem setið hafa á Alþingi hafa ekki hundsvit á öllu þvi sem umbjóðendur þeirra i verkalýðsfélögum fást við, hugsið ykkur t.d. kennarablók- ina úr Keflavik. Bændur eru heppnir. Þeir eiga nokkra alvörufulltrúa á þingi. En að frátöldum ágætum bændafulltrúum og nokkrum pólitiskum sénium (1-—3 i hverj- um flokki), þá er þingliðið lélegt, og ekki skánaði það siðastliðið vor, maður lifandi! Stærsta smámáliö Stærsta smámálið kalla ég breytingar á kjördæma- og kosningalögum. Það er stórmál fyrir alla þjóðina, ensmámál að þvi leyti mikið hefur verið að þviunnið. Auðvitað verður þetta i málefnasamningi næstu rikis- stjórnar, — það er svo vinsælt. En hvað verður úr fram- kvæmdum? Framsóknarmenn vilja og ætla! En hvað með hina? Bílar og bitlingar Ráðherrabilar, bankastjóra- bilar, kommisarabilar, —allter þetta smámál. Auðvitað á að kippa af þessum körlum eftir- gjöfinni. Ef þeir hafa ekki efni á að kaupa sér bila á fullu verði, þá hefur það enginn. í blank- heitunum höfum við ekki efni á svona dellu, sem betur hefði aldrei verið komið á. allt útlit er fyrir að kratar, hinir miklu bitlingasinnar, lendi i rikisstjórn, og hvað þá? Ungt fólk og skemmtanir Allir sjá delluna i þessum málaflokki.nema að þvi er virð- ist þeir sem gætu breytt henni. 18 ára mega fara inn i vín- veitingahús, 20ára til að fá af- greiðslu, púh! 18 ára fara inn og 18 ára fái af- greiðslu og vandamálin i vin- veitingahúsunum minnkuðu um helming. Fyrir nokkrum árum gátu allir 16 ára og eldri farið i Breiðfirðingabúð, Iðnó eða Þórscafé á ball, en i dag finnst enginn staður i Reykjavik fyrir allan hópinn, 16—18 ára. Þessu þarf að kippa i liðinn, og þá verður Hallærisplanið aftur huggulegt bilastæði á kvöldin. Bjór — auðvitað! Hvað eru menn að þrátta um svonasmámál? Þettaer jafnvel enn smærra en Z málið hans Nóg í bili Svona gæti ég haldið áfram lengi, lengi enn, en ætli þetta sé ekki nóg i bili. Það scm okkur vantar er rikisstjórn og Alþing sem framkvæmda svona ein- ialda hluti fyrir fóikið.en safna þeim ekki bara til notkunar á kosningaárum. Landhelgismál, efnahagsmál og öll þessi stóru sameiginlegu hagsmunamál þjóðarinnar mega ekki sljóvga ráðamenn svo að þeir gleymi öllu öðru i umhverfi sinu. Við höfum ekk- ert við sh'ka karla, að gera, — þeir eru ekki færir um að fást við málin. Sverris. Það á að selja bjórinn hjá útsölum A.T.V.R., rétt eins og aðra áfenga drykki. Þá á að miða við aldurinn 18 ár, og mál- ið er ieyst! Hugsið ykkur, hvað það væri notalegt að setjast niður eftir hlaupin i bænum, á huggulegri bjórkrá sem væri t.d. uppi á þaki á nýja húsinu sem er að risa við Lækjartorg, horfa yfir allan miðbæinn og láta liða úr sér, yfir einum köldum og svalandi bæjara. Til hvers eru menn kj örnir á Alþingi? Nú eru liðnir rúmir tveir mánuðir frá Alþingiskosningun- um. Nær allan þennan tima hafa verið i gangi viðræður stjórn- málaflokkanna um myndun starfhæfrar rikisstjórnar án árangurs til þessa. Af úrslitum kosninganna er eðhlegt að álykta að ný rikis stjórn yrði mynduð annað hvort að frumkvæði eða með beinni þátttöku sigurvegara kosning- anna — Alþýðuflokks og Al- þýðubandalags sem fyrir og i kosningabaráttunni töldu þjóðinni trú um að þeir hefðu úrræði á reiðum höndum til lausnar efnahagsvanda og betri lifskjara i landinu. A fyrsta degi er þeim boðið hlutleysi ef þeir gætu tekið höndum saman og farið að stjórna málum i samræmi við yfirlýsingar siðan möguleika á vinstri stjórn undir þeirra eigin forustu. I dag er öllum ljóst hvað skeð hefur, talsmenn þessara flokka hafa keppst við að gefa hástemmdar yfirlýsingar I fjöl- miðlum, annan daginn algjör samstaða, hinn daginn striðs- yfirlýsingar hver gegn öðrum. V Vonandi aöeins gelgjuskeiö Allar stjórnarmyndunarvið- ræður hafa strandað á þvi að þessir forystumenn Alþýðu- flokks og Alþýðubandalags hafa ekki þorað að vera ábyrgir gagnvart lausn vandamála þjóðarinnar, sem eru þess eðlis að gera þarf ýmsar ráðstafanir sem eru óvinsælar og afhjúpa um leið að stóru yfirlýsingar þessara manna voru sjónarspil blekkingakjaftæði. Þeir sem horfðu á sjónvarps- þáttinn 28. þ.m., þar sem tveir nýir alþingismenn og jafnframt ritstjórar og þá höfundar æsingaskrifa Alþýðuflokks og Alþýðubandalags — gáfu áhorf- endum sýnishorn af, hvernig þessir stjórnmálamenn halda á málum — væntanlega i umboði flokksforystunnar — ásakanir á báða bóga voru þess eðlis að all- ir hljóta að gera sér grein fyrir þvi að það er óhamingja Islands ef menn með svo bhnda sér- hagsmunapólitlk eiga að ráða málum á Alþingi á örlagatim- um. Ég vona einlæglega að þetta sé gelgjuskeið þessara manna og þeir átti sig i tima. Min til- laga er sú að sjónvarpið bjóði þeim að endursýna þáttinn jafn- vel aðeins fyrir þá sjálfa — það væri nauðsynleg kennslustund. Tugþúsundir fólks sem kaus þessa flokka i siðustu kosning- um gerði það i þvi trausti að þeir myndu i alvöru taka á sig þáábyrgðsemfylgirþviað taka ákvarðanir og stjórna landinu með þjóðarhag að leiðarljósi. Tekið heiöarlega höndum saman Við Islendingar erum fámenn þjóð með sterka sjálfstæðisvit- und. Það ætti þvi að vera ljóst öllum þeim sem kjörnir eru til að veita málum hennar forystu að hlutverkið er fyrst og fremst að reyna i alvöru að ná sam- komulagi um leiðir til að tryggja beztu aðferðina sem miðar að þvi að þjóðin i heild geti lofað hér góðu lifi og I sam- ALEXANDER STEFÁNSSON félagi þjóðanna verið stolt af þvi að vera Islendingur. Égskoraá forystumenn þess- ara flokka að leggja tíl hliðar þessar Ureltu bardagaaðferðir, hætta hráskinnaleik, túlka ábyrgðarvitund, taka heiðar- lega höndum saman og mynda starfhæfa sterka rikisstjórn sem þorir að gera ráðstafanir og standa við þær, þó óvinsælar verði i bili með það markmið að tryggja atvinnu og góð lifskjör i landinu, það vill þjóðin.tíl þess eru menn kjörnir til Alþingis.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.