Tíminn - 26.04.1977, Blaðsíða 5

Tíminn - 26.04.1977, Blaðsíða 5
Þriöjudagur 26. april 1977 5 Mikil gróska í leiklistinni á Hvammstanga BS Hvammstanga — Leiklistar- mál hafa veriö nokkuö ofarlega á dagskrá i Vestur-Húnavatnssýslu I vetur. Leiklistarnámskeiö var haldiö á vegum Leikflokksins á Hvammstanga, en þvi stjórnaöi Magnús Guðmundsson. Aö loknu námskeiöinu hófust æfingar á gamanleiknum Kjarnorka og kvenhylli eftir Agnar Þóröarson, en leikstjóri var Magnús Guö- mundsson, og er þetta þriöja verkiö sem hann sviösetur á Hvammstanga. Þegar hefur ver- ið sýnt sjö sinnum, þrisvar á Hvammstanga en einnig á fleiri stööum, á Skagaströnd, Blöndu- ósi, og aö Logalandi. Aætlaöar eru sýningar á Hofsósi og I Mikla- garöi um. n.k. mánaöamót. A undanförnum árum, hefur Leikflokkurinn á Hvammstanga sýnt verkefni sin i Reykjaskóla, en þar sem þessi sýning útheimtir allmikið pláss, var ekki hægt aö sýna þar aö þessu sinni. A meö- fylgjandi mynd, sem er frá sýn- ingu Leikflokksins á Kjarnorku og kvenhylli, eru, taliö frá vinstri, Kristbjörg Magnúsdóttir, Anne Marie Pálmadóttir, Brynja Bjarnadóttir og sitjandi er Magnús Jóhannesson. Siguröur A. Magnússon, rit- höfundur Ný bók á ensku um ísland ?g Islendinga gébé Reykjavik — Enska bókaút- gáfan, C. Hurst & Co., London, hefur nýveriö gefiö út bók eftir Sigurö A. Magnússon, er nefnist NORTHERN SPHINX — Iceland and the Icelanders from the Settlement to the present —. Kvaöst Siguröur hafa byrjaö á bók þessari fyrir u.þ.b. tuttugu árum, er hann dvaldist i New York, en af ýmsum ástæöum heföi hún ekki veriö gefin út fyrr. — Ég er mjög ánægður meö þessa bóken viö höfum lengi haft áhuga á aö gefa út bók um Island. Og þá sérstaklega vegna siðasta þorskastriös, þar sem margir Englendingar sýndu málstaö Is- lendinga samúö. Bók sem þessa hefur vantaö á ensku, en mér hef- ur fundizt vanta bók um ls- lendinga sjálfa, menningu þeirra og sérkenni öll, sagði Christopher Hurst, útgefandi, er hann var hér á landi nýlega. Siguröur A. Magnússon, kvaöst hafa þurft aö gera smávægilegar breytingará handritisinu áöur en Hurst tók þaö til prentunar. Hann kvaö þetta ekki vera uppsláttar- bók heldur lestrarbók um land og þjóö, sem gæti oröiö þeim aö liöi sem fræöast vilja um ísland og íslendinga. Bókin er gefin út I 2400 eintaka upplagi, en hér á landi hefur Bókaverzlun Snæbjarnar Jóns- sonar meö sölu hennar aö gera, og kostar hún tæpar þrjú þúsund krónur. Útgáfufyrirtæki Christopher Hurst hefur einkum gefiö út bæk- ur um Norðurlönd, en einnig um Grænland, Svalbaröa og fleiri norölæg lönd. Kvaöst Hurst flytja út um 80% af öllum þeim bókum sem hann prentaöi. Tíminner • peningar / ár endurgreiðum við þeim í tekjuafgang: kr. 21,0 milljón Fyrir tjónlausan akstur í 10 ár fá þeir 1 ár iðgjaldsfrítt. Verðmæti að þessu sinni: kr. 13,1 milljón Alls fá þeir í ár: kr. 34, 1 milljón Allt er þetta fyrir utan hinn hefðbundna bónus, sem allir veita. S\MVI\\lTRYG(il\(i\R GT ÁRMÚLA3 SÍMI 38500 Þeiin, seni ttyggja bilfnn sinn hjá okkur fcllur ýmlslegt í skaut

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.