Fréttablaðið - 17.12.2006, Blaðsíða 2
aktu enga áhættu!g
i eldu KEA í jólamatinn
Haldinn verður
stofnfundur nýrra stjórnmálasam-
taka, sem munu bjóða fram til
alþingiskosninganna í vor, á Hótel
Borg í dag. Markmiðið með
stofnun samtakanna er að ná fram,
með þingsetu, verulegum bótum á
kjörum aldraðra með því að semja
við önnur þingöfl af heilbrigðri
skynsemi um landsmál, eins og
segir í tilkynningu undir nafninu
„Framboð heldri borgara.“
Framboðið er ekki undir merkjum
félaga eldri borgara eða Lands-
sambands eldri borgara þar sem
slíkt framboð samrýmist ekki
lögum félaganna.
Almennt skulu þeir studdir til
framboðs sem ekki hafa lengur
styrk til vinnu, hvort heldur er
vegna aldurs eða örorku. Sveinn
Guðmundsson verkfræðingur er
hvatamaður að stofnfundinum.
Hann segist meta stöðuna svo að
framboðið sé raunhæft. Þörfin sé
til staðar og málstaður eldra fólks
þurfi sterkari málsvara. Um
hverjir hugsanlega munu skipa
listann segist Sveinn ekkert geta
sagt, málið sé of stutt á veg komið.
Undir þetta tekur Baldur Ágústs-
son, fyrrverandi forstjóri, sem
stóð fyrir fundi á dögunum þar
sem tillaga hans að framboði
félagsmanna í félögum eldri
borgara var samþykkt með
miklum meirihluta.
Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins hefur fjársterkur
aðili lýst áhuga á því að styrkja
framboðið. Helgi Vilhjálmsson,
kenndur við Góu, svaraði, spurður
um hvort hann væri sá aðili, að
það gæti vel verið. „Ég vil
endilega styrkja svona lagað og
vona að þessu fólki gangi vel.“
Karlmaður á þrítugs-
aldri lést í bílveltu á Álftanesvegi
við Selskarð á fyrsta tímanum
aðfaranótt laugardagsins. Hann
var á leið út á Álftanes þegar bíll
hans lenti utan vegar við Selskarð
og valt. Maðurinn var einn í bíln-
um.
Lögreglan í Hafnarfirði fékk
tilkynningu um slysið um klukkan
tuttugu mínútur í eitt. Þegar lög-
reglan kom á slysstað var bifreið
mannsins á hvolfi utan vegar og
var ökumaðurinn látinn.
Tildrög slyssins eru óljós en
lögreglan í Hafnarfirði vinnur að
rannsókn málsins. Ekki er hægt að
greina frá nafni hins látna að svo
stöddu.
Þrjátíu manns hafa látist í
umferðinni það sem af er árinu.
Það er umtalsverð fjölgun frá því í
fyrra því þá létust nítján í slysum í
umferðinni. Einar Magnús Magn-
ússon, upplýsingafulltrúi Umferð-
arstofu, segir að engin einhlít skýr-
ing sé á þessari miklu fjölgun
banaslysa á milli ára. Hann segir
þó að því miður megi rekja mörg
af banaslysunum á árinu til þess
að menn hafi verið að leika sér í
umferðinni, en tekur fram að hann
sé hvorki að segja að það sé orsök
allra slysanna né heldur slyssins á
Álftanesvegi. Hann bætir því við
að þeir hjá Umferðarstofu hafi
aldrei áður orðið vitni að því að
eins mörg banaslys hafi orðið
vegna þess að menn hafi verið að
leika sér í umferðinni.
Karlmaður lést í bílveltu
Geir H. Haarde for-
sætisráðherra og Árni Johnsen,
fyrrverandi alþingismaður, hitt-
ust á óformlegum fundi á föstu-
dag samkvæmt
heimildum
Fréttablaðsins.
Árni Johnsen
vildi aðspurður
ekki staðfesta
að fundurinn
hafi farið fram.
Hann vildi held-
ur ekki tjá sig
um hvort ein-
hverjar breyt-
ingar hefðu
orðið á fyrirætl-
unum hans um að bjóða sig fram á
lista Sjálfstæðisflokksins í Suður-
kjördæmi fyrir alþingiskosning-
arnar í vor. Aðspurð um fundinn
sagði Ragnheiður E. Árnadóttir,
aðstoðarmaður forsætisráðherra,
að Geir hitti fjölmarga einstakl-
inga á degi hverjum og að hann
vildi ekkert tjá sig um slík fundar-
höld.
Vilja ekki stað-
festa fundinn
Forseti Palestínu,
Mahmoud Abbas, tilkynnti í gær
að hann muni boða til forseta- og
þingkosninga við fyrsta tækifæri,
mögulega í mars á næsta ári. Rík-
isstjórn Hamas-samtakanna sagði
ákvörðunina vera valdarán gagn-
vart palestínskum almenningi, en
samtökin komust til valda í kosn-
ingum í janúar síðastliðnum. Í kjöl-
farið hefur Palestína verið beitt
alþjóðlegum efnahagsþvingunum.
Leiðtogar Hamas hvöttu Abbas
til að segja af sér og segjast munu
mótmæla ákvörðuninni með frið-
sömum hætti.
Abbas hefur hvatt til myndunar
þjóðstjórnar með Hamas og hans
eigin flokki, Fatah, en samninga-
viðræður hafa ekki skilað árangri.
„Kraftaverk þarf ef samningar um
þjóðstjórn eiga að nást, eftir það
sem Abbas hefur sagt í dag,“ sagði
aðstoðarmaður forsætisráðherr-
ans og Hamas-liðans Ismail Haniy-
eh. Hamas-samtökin telja ólög-
mætt að boða til kosninga. Ef
samtökin ákveða að sniðganga
kosningarnar mun það draga lög-
mæti þeirra í efa.
Abbas hefur sjálfur lýst því
yfir að hann muni ekki sækjast
eftir endurkjöri, en skortur á
frambjóðanda hefur verið vanda-
mál innan Fatah-hreyfingarinnar.
Svo geti farið að hreyfingin tapi
kosningunum og Hamas styrki
stöðu sína enn frekar.
Tilkynning forsetans hlaut
mikið lof hundruða stuðnings-
manna í höfuðstöðvum hans á Vest-
urbakkanum. „Snúum okkur til
fólksins, heyrum hvað það hefur
að segja og leyfum því að dæma,“
sagði Abbas í ræðu sinni.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sagðist styðja ákvörðun
Abbas, en hann var staddur í
Egyptalandi á ferð sinni um Mið-
Austurlönd. „Abbas hefur lagt hart
að sér að mynda þjóðstjórn, þar
sem allir, þar á meðal Hamas, hafa
fulltrúa,“ sagði Blair. „En hann er
einnig að sýna að hann getur hald-
ið áfram án þeirra, ef þeir vilja
ekki taka þátt.“
Næstu kosningar áttu að fara
fram árið 2009, en skoðanakannan-
ir sýna að Fatah og Hamas hafa
svipað fylgi.
Forseti Palestínu
boðar til kosninga
Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, hefur boðað til þing- og forsetakosninga, en
tilraunir til myndun þjóðstjórnar hafa mistekist. Tæpt ár er liðið frá kosningum.
Nítján ára ökumaður
var tekinn á 150 km hraða á
Sæbrautinni um eitt leytið aðfara-
nótt laugardagsins. Auk þess að
vera langt yfir löglegum hámarks-
hraða voru fimm farþegar í bíl
mannsins. Maðurinn var sviptur
ökuleyfi á staðnum.
Lögreglan í Reykjavík
yfirheyrði manninn á laugardag.
Hann mun fá langa sviptingu og
háa fjársekt fyrir brotið.
Auk þess stöðvaði lögreglan í
Reykjavík hundrað og fimmtíu
bíla við eftirlit á Sæbrautinni
aðfaranótt laugardagsins. Einn
þeirra sem var stöðvaður hafði
ekki ökuréttindi.
Tekinn á 150
km hraða
Tæplega tvítugur
maður keyrði yfir umferðareyju
á gatnamótum Dalvegs og Digra-
nesvegar í Kópavogi um klukkan
ellefu á laugardagsmorgun. Mað-
urinn keyrði yfir umferðarskilti
sem er á umferðareyjunni og
hafnaði á akstursrein hringtorgs
sem er við hana.
Ökumaðurinn var í bílbelti og
blés loftpúði bifreiðarinnar út við
höggið. Manninn sakaði ekki en
bíllinn er mikið skemmdur.
Að sögn lögreglunnar í Kópa-
vogi skóf maðurinn ekki rúðurn-
ar á bílnum áður en hann settist
undir stýri og varnaði það honum
sýn við aksturinn.
Keyrði yfir
umferðareyju
Yuri Shvets, fyrrver-
andi KGB njósnari, segir rússneska
njósnarann Alexander Litvinenko,
hafa verið myrtan vegna upplýs-
inga sem hann bjó yfir um háttsett-
an rússneskan stjórnmálamann.
Shvets segir að skýrslu Litvin-
enkos hafi verið lekið til þessa
ónefnda stjórnmálamanns. Í kjöl-
farið hafi verið eitrað fyrir honum
með pólon-210 eitri, sem dró hann
að lokum til dauða.
Breskt útgáfufyrirtæki hefur
tilkynnt að það muni gefa út bók
sem Litvinenko skrifaði, en í henni
er rússneska leyniþjónustan sökuð
um innlend hryðjuverk, sem voru
helsta ástæða árásar Rússlands-
hers á Tsjetsjeníu.
Drepinn vegna
leyniskýrslu
Í gær fór fram fyrsta
áætlunarflug milli Spánar og
Gíbraltar í 27 ár. Hingað til hafa
spænsk stjórnvöld lokað fyrir
flugumferð milli landanna og hafa
flugvélar á leið til Gíbraltar þurft
að krækja fyrir spænska flughelgi.
Um borð í fyrsta fluginu voru
meðal annarra spænskir diplóm-
atar sem gerðu ferðina að fyrstu
opinberu heimsókn Spánverja til
Gíbraltar í nær fimmtíu ár.
Spánverjar og Bretar hafa lengi
deilt um yfirráð yfir Gíbraltar en
íbúar svæðisins höfnuðu aukn-
um áhrifum Spánverja í atkvæða-
greiðslu árið 2002.
Flogið í fyrsta
sinn í 27 ár
Jón, er þetta ekki orðið gott?