Fréttablaðið - 17.12.2006, Blaðsíða 36
Guðný Dóra Gestsdóttir
er framkvæmdastjóri
Gljúfrasteins segir hús
skáldsins veglegan
vinnustað.
„Starf mitt felur í sér að
halda utan um starfsemina
hér í Gljúfrasteini sem var
heimili og vinnustaður Hall-
dórs Kiljan og Auðar konu
hans, en er orðið safn sem
er opið almenningi alla daga
nema mánudaga,“ segir
Guðný Dóra beðin að lýsa
daglegum viðfangsefnum.
„Partur af mínu starfi er að
taka á móti gestum og við
erum fleiri í því enda koma
margir að Gljúfrasteini,
einstaklingar, fjölskyldur
og hópar. Til dæmis er mikið
um hópa skólafólks og
erlendra ferðamanna og oft
þurfum við að stjórna
umferðinni þannig að við
myndum hálfgerða halarófu
gegnum húsið. Þá setjum
við inn hóp og eftir fimm
mínútur kemur næsti og
þannig koll af kolli.“
Nú fyrir jólin hafa upp-
lestrar úr bókum verið fast-
ur verið liður á sunnudög-
um að sögn Guðnýjar Dóru.
„Það skapast alltaf sérstök
og heimilisleg stemning
þegar fólk kemur hér
saman,“ segir hún og getur
þess að síðastliðið sumar
hafi stofutónleikar verið á
dagskrá á sunnudögum.
„Þannig var það oft í gamla
daga þegar skáldið var og
hét og þetta heppnaðist vel í
sumar. Hingað komu alls-
konar listamenn, bæði
þekktir og minna þekktir og
það var mjög skemmtilegt.“
Guðný Dóra lítur líka
lengra fram á veginn í sínu
starfi og rýnir í framtíðina.
„Hugmyndirnar snúast um
að byggja frekar upp í
kringum Gljúfrastein,“
segir hún. „Ekki við húsið
sjálft heldur einhversstaðar
í nágrenninu þar sem hægt
er að taka á móti stærri
hópum, þó ekki sé nema
vegna þess að flesta langar í
kaffisopa eða einhverja
hressingu.“
Varla þarf að taka fram
að Guðný Dóra kveðst
kunna ljómandi vel við starf
sitt og vinnustað og segir
Mosfellsdalinn heillandi
heim. „Kaldakvísl er núna í
klakaböndum. Þannig er
umhverfið hér alltaf fallegt
og síbreytilegt.“
Alla daga í
húsi skáldsins
Skógarhlí› 12 • 105 Reykjavík • Sími 520 4700 • www.hagvangur.is
- vi› rá›um
Sölustarf
Áhugavert sölustarf hjá Jóhanni Ólafssyni & Co ehf.
Vegna fjölda fyrirliggjandi verkefna leitum vi› a› sölumanni til framtí›arstarfa.
Starfssvi›
Starfi› sn‡st um sölu á lausnum til fyrirtækja og stofnana me›
tilheyrandi heimsóknum, samningager› og eftirfylgni.
Menntun og hæfniskröfur
Reynsla af sölumennsku nau›synleg
Haldbær flekking á tölvum og hugbúna›i
Gó› íslensku- og enskukunnátta
Hæfni í mannlegum samskiptum
Metna›ur í starfi
www.olafsson.is
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is fyrir
23. desember 2006.
Númer starfs er 6155.
Uppl‡singar veita
fiórir fiorvar›arson og
Elísabet Sverrisdóttir.
Netföng: thorir@hagvangur.is
elisabet@hagvangur.is