Fréttablaðið - 17.12.2006, Blaðsíða 74
Rannsóknarskýrslan um
bílslys Díönu prinsessu og
Dodi Al-Fayed hefur fengið
misjöfn viðbrögð. Bresku
götublöðin hafa keppst um
að grafa eitthvað krassandi
upp úr rúmlega átta hundr-
uð síðna skýrslu Stevens
lávarðs en meðal þess
er meint þriðja kon-
an í lífi Karls Breta-
prins.
Skýrsla Stevens um
bílslysið sem varð til
þess að Díana prins-
essa og elskhugi
hennar, Dodi Fayed,
létust var birt á
fimmtudaginn. Hún
var þrjú ár í vinnslu
og var ætlað að
svara þeim fjöl-
mörgu samsæris-
kenningum sem hafa
verið uppi. Fram
kemur í skýrslunni að
Díana var ekki í brúð-
kaupshugleiðingum og
átti ekki von á barni
eins og faðir Dodi
Faeyd, Mohammed Al
Fayed, hefur haldið fram.
Þá er því vísað á bug að
breska leyniþjónustan hafi
haft eitthvað með málið að
gera.
Breska blaðið The Daily
Mail telur sig hafa fundið
vísbendingar um að Díana
prinsessa hafi óttast um
líf sitt og erkifjanda síns, Camillu
Parker Bowles, sem Karl er kvænt-
ur í dag. Blaðið greinir frá því að
lögfræðingur Díönu, lávarðurinn
Mischon, hafi afhent forsvars-
mönnum rannsóknarinnar á dauða
Díönu minnisbréf þar sem hún
lýsti þungum áhyggjum yfir að sér
yrði rutt úr vegi til að rýma fyrir
nýrri konu. Stevens lávarður við-
urkenndi á blaðamannafundi að
þetta væri rétt og að Díana hefði
ekki verið að ræða um Camillu
Parker, núverandi eiginkonu
Karls.
Sú sem um ræðir er sam-
kvæmt Daily Mail barnfóstr-
an Tiggy Legge-Bourke
en hún gekk prins-
unum Harry og Vil-
hjálmi í móðurstað
þegar foreldrar
þeirra skildu.
Samkvæmt skýrsl-
unni var Díana
þess fullviss að
Karl og Bourke
ættu í ást-
arsambandi. Hún er sögð
hafa gengið á fóstruna í
jólaboði árið 1995 þess full-
viss að Bourke hefði misst
fóstur eftir Karl. „Mér
þykir fyrir því með
barnið,“ á Díana
að hafa sagt við
Tiggy Legge.
Daily Mail
hafði í kjölfar-
ið samband
við Tiggy
sem nú er
gift og býr í
Suður-
Wales en
hún sagðist
ekki ætla
að ræða við
blöðin.
Stevens
lávarður neitaði
að nefna þriðju
konuna á nafn í
skýrslunni sem og
á blaðamanna-
fundi. Fram kom
hins vegar að Karl prins kannaðist
ekki við þessar áhyggjur Díönu á
meðan þau voru gift og hafði ekki
heyrt af þeim fyrr en einkaþjónn
Díönu, Paul Burrell, birti minnis-
blaðið frá Mishcon árið 2003 í fjöl-
miðlum. „Hann kannaðist við nafn-
ið og konuna sem fjölskylduvin en
ekki komu fram neinar hugmyndir
um að hann hygðist giftast henni,“
segir í skýrslu Stevens.
Skýrsla Stevens lávarðar fékk
blendin viðbrögð hjá breskum
almenningi sem virðist sannfærð-
ur um að breska konungsfjölskyld-
an hafi eitthvað óhreint mjöl í
pokahorninu hvað dauða Díönu
varðar. Fjölskylda prinsessunnar
af Wales lýsti því hins vegar yfir
að hún væri sátt við niðurstöðuna
og undir það tóku prinsarnir tveir,
Harry og Vilhjálmur. Mohammed
Al Fayed, faðir Dodis Fayed, sagði
skýrsluna hins vegar argasta bull
og hélt fast við sína skoðun um að
leyniþjónusta Bretlands og kon-
ungsfjölskyldan hefðu ráðið Dodi
og Díönu af dögum.
Leikarinn George Clooney segir að
með tilkomu nýrrar tækni, eins og
myndavélasíma þurfi hann sífellt
að hafa varann á
og geti hann því
ekki notið sín í
frítíma sínum
eins og forðum.
„Allir eiga
myndavélasíma
svo í hvert ein-
asta skipti sem
maður stígur
feilspor þá er einhver mættur til
þess að taka það upp og skjalfesta
það. Alveg ömurlegt,“ segir Cloon-
ey í viðtali við skoska blaðið Daily
Record. Clooney er nú með tvær
myndir í burðarliðinum, The Good
German og Ocean‘s 13 og eru þær
væntanlegar á næstu misserum.
Myndavéla-
símar til
vansa
Hljómsveitin Amiina hélt á dögun-
um útgáfutónleika í Tjarnarbíói í til-
efni af útkomu smáskífunnar Seoul.
Fjöldi tónlistaráhugamanna mætti á
staðinn til að hlýða á ómþýða tóna
þessarar elskulegu sveitar.
Seoul hefur að geyma tvö lög af
fyrstu breiðskífu Amiina sem er
væntanleg í febrúar eða mars. Einn-
ig er á smáskífunni lag sem verður
ekki á plötunni. Um miðjan mars
ætlar Amiina síðan í sex vikna tón-
leikaferðalag um heiminn til að
fylgja plötunni eftir.
Ómþýðir tónar Amiinu
Hljómsveitin Sviðin jörð hélt á
dögunum útgáfu tónleika á Grand
rokki í tilefni af útkomu plötunnar
Lög til að skjóta sig við. Sveitin er
skipuð þeim Frey Eyjólfssyni og
Magnúsi R. Einarssyni en um
textagerð á plötunni sá Davíð Þór
Jónsson.
Margt var um manninn á tón-
leikunum og lét fólk vel af
kántrískotinni tónlist Sviðinnar
jarðar.
Kántrískotnir félagar