Fréttablaðið - 17.12.2006, Page 34
Öflugt fyrirtæki í forystuhlutverki
Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. er framsækið
og leiðandi fyrirtæki á sviði drykkjarvöru.
Markmið fyrirtækisins er að vera besta markaðs-
og sölufyrirtæki landsins.
Hlutverk Ölgerðarinnar er að bjóða upp á heildar-
lausnir á drykkjarvörumarkaði með hágæða vöru
og þjónustu. Fyrirtækið er eitt elsta fyriræki
landsins með sterka gæðaímynd og hefur m.a.
unnið Íslensku ánægjuvogina 5 ár í röð.
Á meðal vörumerkja má nefna Appelsín og Malt,
Pepsi, Pepsi Max, Kristal, Smirnoff, Rosemount,
Penfolds, Masi, Cato Negro, Grand Marnier,
Gordons, Egils Gull, Egils Lite, Tuborg, Frissi
Fríski, Doritos, Lays og Gatorade. Ölgerðin leggur
ennfremur mikla áherslu á öfluga vöruþróun.
Hjá fyrirtækinu starfa um 140 starfsmenn með
víðtæka þekkingu, menntun og reynslu sem
sameiginlega hafa skapað metnaðarfullt og
jákvætt vinnuumhverfi.
Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. óskar eftir að ráða til sín fulltrúa í bókhald.
Starfssvið:
• Færsla bókhalds og afstemmingar
• Reikningagerð í dótturfélögum
• Skönnun skjala og samninga
• Önnur bókhaldstengd verkefni
Menntunar og hæfniskröfur:
• Stúdentspróf eða sambærileg menntun skilyrði
• Reynsla af bókhaldsstörfum
• Enskukunnátta í töluð og rituðu máli
• Góð almenn tölvukunnátta
• Reynsla af Concorde eða öðru sambærilegu tölvukerfi
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Góðir samskiptahæfileikar
Áhugasamir sendi greinagóða umsókn sem tilgreinir menntun, reynslu
og fyrri störf til Ölgerðarinnar, Grjóthálsi 7-11, merkta Egils-bókhald
eða á netfangið ee@egils.is fyrir 31. desember n.k.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál og þeim öllum svarað.
Nánari upplýsingar um starfið veita Elísabet Einarsdóttir, starfsmannastjóri í
síma 580 9029 og Jónas Birgisson deildastjóri bókhaldsdeildar í síma 580 9069.
Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. · Grjóthálsi 7-11 · 110 Reykjavík · sími 580 9000 · www.egils.is
Bókhaldsfulltrúi