Fréttablaðið - 17.12.2006, Síða 59
Að sögn Elvars Jósteinssonar í
gæludýrabúðinni Trítlu þá var
jólatíminn „high season“ á árum
áður. En nú er jafnari sala í gælu-
dýrum. Elvar, sem hefur verið í
gæludýrabransanum í kvartöld og
veit um hvað hann er að tala, telur
það vera vegna þess að Íslending-
ar eru orðnir meira evrópskir á
því. Ekki verið að draga börnin á
því að eignast gæludýr eins og
var. En fráleitt er þó að gæludýrin
rati ekki í jólapakkana sem fyrr.
Heldur betur. Og það eru tísku-
sveiflur í þessum geira sem
öðrum.
Vinsælustu gæludýrin í jólapakk-
ann þetta árið. Miklar sveiflur eru
í því hversu vinsæl gæludýr
hamstrarnir eru en nú virðast þeir
margir hverjir lenda í því að fá
slaufu um hálsinn og birtast ein-
hverju barninu í jólapakka.
Halda alltaf sínu. Hafa verið vin-
sælli. En vera má að miklu meira
úrval fugla hér á landi, og þá dýr-
ari og stærri fuglar, hafi orðið til
að finkurnar og selskapspáfa-
gaukarnir eru ekki efstir á lista
eins og oft áður.
Fiskarnir taka stundum kipp í sölu
að sögn Elvars. Og virðist ómögu-
legt að ráða í hvað veldur að þeir
eru svona misvinsælir. En það vill
verða meira um að þeir seljist
milli jóla og nýárs. „Þá horfir fólk
kannski á hálftóm búr og áttar sig
á að það þarf meira líf í þau.“
„Ég er skírð í höfuðið á tveimur
konum. Ömmu minni Regínu og
hins vegar frænku minni sem hét
Ósk. Óskarnafnið er sem sagt ekki
bara út í bláinn eins og oft er í dag
með þessi stuttu og hnitmiðuðu
nöfn,“ segir Regína Ósk Óskars-
dóttir um nafn sitt.
Að sögn Regínu þýðir nafn henn-
ar drottning. „Réttnefni,“ segir
Regína sem telur sig standa undir
því. Auðvitað. Samkvæmt Þjóðskrá
eru 143 sem bera nafnið Regína
sem fyrsta eiginnafn en 36 sem
annað eiginnafn. Ósk er talsvert
algengara en 150 bera nafnið sem
fyrsta eiginnafn og hvorki fleiri né
færri en 2860 sem annað eigin-
nafn.
Regína var ekki algengt nafn
hér áður fyrr en þó hefur færst í
aukana að það sé notað. Þannig
segir okkar Regína frá því að hún
hafi oft farið í símaskrá þegar hún
var yngri og talið nöfnin þar og
voru þau yfirleitt um sextán.
Regína Ósk segist hafa hitt nöfn-
ur sínar og föður einnar alnöfnu
sinnar sem er yngri. Sú fylgist með
ferli söngkonunnar og hyggur
meira að segja sjálf á söngnám.
Regína segir að hún muni líklega
kenna nöfnu sinni söng á næstunni.
„Já, svo er búið að nefna hund í
höfuðið á mér. Lítinn bulldog. Mér
finnst það geðveikt fyndið. Sá hund-
ur er meira að segja með heimasíðu
og allt. Mér finnst það bara sætt.
Hún er voða sæt tíkin.“
Nöfn manna hafa áhrif á sjálfs-
myndina. Sú er í það minnsta skoð-
un Regínu sem telur nafnið mikinn
part af sér. „Og ég get vel ímyndað
mér að menn sem bera sérstök nöfn
fái örlítið meiri athygli en Guðrún
og Jón. Í það minnsta er svo með
marga listamenn úti í hinum stóra
heimi. Að þeir breyta nafni sínu
með þetta fyrir augum.“
Regína segist alla tíð hafa verið
afskaplega sátt við sitt nafn. Og
aldrei orðið fyrir því til dæmis
að vera uppnefnd. Enda erfitt
að finna eitthvað sem rímar
við það. Regína pegína?
„Nei, er ekki alveg að
virka. Gína fína? Ekkert að
því. Amma var alltaf
kölluð Gína. Foreldr-
ar mínir vildu
einhverra hluta
vegna ekki að
ég yrði kölluð
það og liður í
því var að setja
Ósk við Regínunafn-
ið. Ég er bara ánægð
með foreldra mína að hafa
gefið mér þetta nafn.“
Ekki verður hjá því komist að
nefna hinna frægu Regínu, frétta-
ritarann þjóðþekkta, sem
nú er fallin frá. „Jú, jú,
og ekki síður samnefnt
lag Sykurmola. Ekki
ónýtt að eiga um sig
lag. Nei, nei, ég vissi
svo sem alveg um hvern
það var. Þó ég væri bara
átta eða níu þegar það kom
fram.“
Nafnið mitt Regína Ósk
Regína pegína ekki alveg að virka
Vinsælustu
gæludýrin
Borðstofuborð 200x100
Verð áður: 69.000,-
Tilboðsverð: 51.750,-
Borðstofuborð 180x100
og 6 Richmond leðurstólar
Verð áður: 158.000,-
Tiboðsverð: 127.800,-
BÆJARL IND 12 - S : 544 4420
Opnunartímar: mán-fös 10:00-19:00 - lau 10:00-18:00 - sun 13:00-18:00 - www.egodekor. i s
Aðventutilboð 25% afsláttur
af dökkum eikarborðum
Milano leðursófasett
3+1+1
Verð: 249.000,-
3+2
Verð: 220.000,-
Cube leðurstóll
Verð: 19.800,-
Einnig fáanlegur í svörtu leðri
Capri leðursófasett
3+1+1
Verð: 196.000,-
3+2
Verð: 182.000,-
Sófaborð 120x65
Verð: 35.000,-
Verð: 19.500,-
Verð: 3.700,-
Verð: 5.900,- Verð: 14.500,-
Verð: 3.700,-