Fréttablaðið - 17.12.2006, Síða 68
Ég vaknaði hress í
morgun, eins og alla
aðra morgna. Ég er
nefnilega algjör
hani, morgunhani
og ég mana gáska-
fulla lesendur í að
þýða setninguna
yfir á ensku. Ég vakna, bursta,
pissa, klæði mig, fæ mér djús, kyssi
alla á heimilinu bless, keyri í vinn-
una og svo er standandi partístuð á
mér fram á kvöld, en þá verð ég
sybbinn og fer að sofa, alveg eins og
það á að vera. Án þess að vera að
monta mig verður líka að taka fram
að ég hef aðeins tvisvar sinnum
sofið yfir mig á ævinni og aldrei í
meira en 20 mínútur. Í bæði skiptin
vaknaði ég í öllum fötunum og í því
seinna var ég með bindi og vínlykt.
Það er mjög mikilvægt að temja sér
góðar svefnvenjur, en án þeirra er
ekkert hægt. Sé fullyrðingin sett í
sögulegt samhengi, sést hve mikill
sannleikur liggur að baki. Því þær
þjóðir sem náð hafa hvað mestri
efnahagslegri farsæld á undanfar-
inni öld eiga það allar sameiginlegt
að nýta svefninn rétt og vel. Í dag
vilja allir sofa út, en að sofa út á 21.
öldinni er allt annað en í gamla
daga. Fólk liggur í bælinu langt
fram yfir hádegi og stundum fram
undir nónbil. Hér áður fyrr var fólk
brennt á báli fyrir galdra ef það
svaf svo lengi. Þessi svefndýrkun
er aumingjaháttur út í eitt, eins og
að þrá að eyða tíma sínum í ekkert.
Ég kenni Nokia um þetta allt saman.
Snooze-möguleikinn á vekjara-
klukkunni, sem á íslensku kallast
kríublundur er að tröllríða okkur.
Hann gerir fólki kleift að sofa fimm
mínútum lengur, en oft verða fimm
mínútur að fimm klukkustundum.
Svefninn er frumþörf, rétt eins og
að éta eða kúka. Þessum þörfum má
heldur alls ekki svala of mikið. Því
annars verðum við fitubollur, skít-
hælar eða svefnpurkur. Maður
nennir heldur ekki að tala við fólk
sem annaðhvort er síþreytt eða
langar til þess að sofna, það er
óspennandi og pirrandi. Rapparinn
Nas sagði árið 1994, „I never sleep
because sleep is the cousin of
death,“ eða ég sef aldrei, þar sem
svefninn er frændi dauðans. Flott
setning og algjörlega sönn.
Blessaður,
bara Mikka
Mús eyru í
dag?
Já fann þessi aftast
í skápnum, hef ekki
notað þau síðan
Disneylandsmótið
með FC Kólakork fór
1 - 97!
Þannig að
þetta er
lukkugripur!
Heyrðu
já þú
meinar!
Já, hahaha
allir verða
að hafa sína
sérvisku!
Hvað með
þig félagi, þú
ert nú frekar
hjátrúarfullur
sjálfur þarna
klikkhausinn þinn!!
Neeii...
Keyrirðu enn með
lukkubuxurnar
þínar bundnar
um mittið á þér
þegar þú keyrir
næturrútuna?
Ja, sko, já
reyndar.
Haha, Klikk!
Þú ert alveg
klikk!
Já við tveir
erum ekkert
venjulegir!
Ekki einu sinni
nálægt því
félagi!
Er það kannski
þess vegna sem
engin kona
vill vera með
okkur?
Þær vilja það
alveg. Þær
vilja! þær
bara þora
ekki.
Þær vita að við
erum ekkert
venjulegir
menn!
Jamm ekkert
venjulegir.
Stansaðu við hlið þess bíls
sem er fyrir framan stæðið
sem þú ætlar að leggja í.
Líttu aftur fyrir þig sem
og fram fyrir þig, eftir
hugsanlegri umferð.
Bakkaðu svo hææægt og
snúðu stýrinu eins langt til
hægri og þú getur.
Bakkaðu hægt þar til hægra
brettið að framan er komið
framhjá bílnum fyrir framan
þig.
Skiptu yfir í fyrsta gír og
renndu þér hægt fram á
meðan þú snýrð stýrinu
hægt til vinstri.
Allir þessir gluggar í
bílnum gera manni það
mjög auðvelt að leggja í
hliðarstæði.
Og ekki spillir
það fyrir að
það er hvorki
vél né hjól í
þessum bíl.