Fréttablaðið - 17.12.2006, Síða 80
Liverpool vann 3-0 útisig-
ur á Charlton í gær en liðið komst
á bragðið strax á þriðju mínútu
þegar Xabi Alonso skoraði. Mark
hans kom úr vítaspyrnu sem
dæmd var á Djimi Traore, sem
áður var leikmaður Liverpool, og
braut á Jermaine Pennant. Heima-
menn fengu nokkur fín færi en
Liverpool var betra liðið í leiknum
og þeir Craig Bellamy og Steven
Gerrard bættu við mörkum í
seinni hálfleik. Liverpool er nú í
þriðja sæti deildarinnar eftir mjög
góð úrslit að undanförnu en
Charlton er hins vegar í næst-
neðsta sæti með tólf stig en fimm
stig eru í Middlesbrough sem situr
í sautjánda sæti.
„Það þarf að ná fram meira
jafnvægi í okkar lið, það skortir
talsvert á breiddina. Vonandi er
hægt að bæta úr því. Við þurfum
að snúa gengi okkar við svo leik-
menn öðlist sjálfstraust. Það er
mikil vinna framundan en liðið
verður að sýna meiri ákefð og
leikgleði,“ sagði Les Reed, knatt-
spyrnustjóri Charlton, eftir leik-
inn. Hermann Hreiðarsson var að
vanda í byrjunarliði Charlton og
lék allan leikinn en hann fékk
mjög gott færi til að skora en
skaut yfir markið. Rafael Benítez,
stjóri Liverpool, gladdist yfir sigri
sinna manna en vildi sem minnst
tjá sig um stöðuna á töflunni. „Við
tökum bara einn leik fyrir í einu
og sjáum hverju það skilar,“ sagði
Benítez.
Arsenal lék gegn Portsmouth á
heimavelli sínum og lenti liðið
tveimur mörkum undir. Arsene
Wenger, stjóri Arsenal, var ekki
par sáttur og var rekinn upp í
stúku af dómara leiksins. Hans
menn börðust áfram og á endan-
um náðu þeir að skora tvívegis og
niðurstaðan var jafntefli 2-2. Þessi
tvö lið eru í fjórða og fimmta sæti
deildarinnar. Mörk frá Emmanuel
Adebayor og Gilberto Silva sáu til
þess að Arsenal fékk stig.
„Eftir að við lentum tveimur
mörkum undir þurftum við að
sýna ákveðni, vilja og karakter og
það að við erum sérstakt lið. Það
tókst og ég mun ekki geta hrósað
mínum mönnum nægilega mikið
fyrir það. Á endanum hefðum við
getað unnið leikinn því við sköp-
uðum okkur svo mörg færi. Ég var
sendur upp í stúku vegna þess að
ég sagði dómaranum þá skoðun
mína að hann hefði ekki átt að
dæma aukaspyrnuna sem gerði
það að verkum að Portsmouth
komst yfir. Það var mjög erfitt að
kyngja því að þeir skoruðu eftir
dómaramistök,“ sagði Wenger
eftir leikinn. Harry Redknapp,
stjóri Portsmouth, sagði eftir leik-
inn að hann væri sáttur með stig-
ið.
Ívar Ingimarsson lék allan leik-
inn en Brynjar Björn Gunnarsson
var ónotaður varamaður þegar
Reading lá 1-2 á heimavelli sínum
gegn Blackburn. „Mínir menn
börðust vel og komust yfir í leikn-
um. Þegar það gerðist hélt ég að
okkur tækist að sigra því mínir
menn virtust reiðubúnir að berj-
ast af fullum krafti til að ná sigri í
þessum leik. Í seinni hálfleik
hrundi leikur okkar, Blackburn
vaknaði til lífsins en ég er ekki
sáttur við hvernig mínir menn
brugðust við því,“ sagði Steve
Coppell, stjóri Reading, en hans
menn sitja í sjöunda sætinu og
hafa komið á óvart á tímabilinu.
Obafemi Martins er sífellt að
finna sig betur í búningi New-
castle en hann skoraði bæði mörk
liðsins í 2-1 sigri á Watford sem
sitir í botnsæti deildarinnar. Eftir
tíðindalítinn fyrri hálfleik kom
Martins sínu liði yfir í þeim síðari
en Hameur Bouazza jafnaði. Wat-
ford var líklegra liðið til að ná inn
sigurmarkinu en Martins gerði út
um þær vonir fimm mínútum fyrir
leikslok þegar hann skoraði eftir
sendingu frá Damien Duff.
Liverpool komst upp í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar í gær með því að leggja Charlton örugglega að
velli. Enn er þó langt í fyrsta sætið en Manchester United sem á leik í dag gegn West Ham trónir á toppnum.
Bolton gerði góða ferð á
Villa Park í seinasta leik gær-
dagsins í enska boltanum og sigr-
aði, 1-0. Það var reynsluboltinn
Gary Speed sem skoraði eina
mark leiksins úr vítaspyrnu
stundarfjórðungi fyrir leikslok.
Vítið var dæmt þegar dómari
leiksins taldi að hinn búlgarski
Tiliyan Petrov hefði brotið á
Nicolas Anelka innan teigs.
Aston Villa var meira með
boltann í leiknum og fékk gott
færi til að jafna metin á lokakafl-
anum en það tókst ekki og Bolton
fagnaði sigri. Bolton hefur komið
talsvert á óvart í vetur og er nú
með jafnmörg stig og Arsenal
sem er í fjórða sæti. Aston Villa
er hins vegar í áttunda sætinu en
liðið hefur gert langflest jafn-
tefli í deildinni eða níu talsins.
Aston Villa er það lið sem hefur
fengið flestar vítaspyrnur í
sumar en í gær voru það hins
vegar mótherjarnir sem fengu
víti og réði það úrslitum.
Aston Villa var betra liðið í
leiknum en að því er ekki spurt.
Jussi Jaaskelainen var í miklum
ham í marki Bolton og leikmenn
Aston Villa fundu ekki leiðina
framhjá honum. Craig Gardner
og Chris Sutton fengu bestu færi
liðsins til að skora.
Umdeilt víti réði úrslitum
Enska úrvalsdeildin