Fréttablaðið - 17.12.2006, Qupperneq 86
Hjátrúarfull í góðu hófi
Á heimasíðu kvikmyndafyrirtækis-
ins Poppoli er að finna nokkuð und-
arlegt viðtal við kvikmyndaleik-
stjórana Dag Kára Pétursson og
Ólaf Jóhannesson. Við fyrstu sýn
mætti ætla að það hefði andað köldu
á milli þeirra félaga en þeir hefðu
ákveðið að grafa stríðsöxina. „Þetta
er þekkt mál. Ég hef alltaf verið á
móti stefnu hans í kvikmyndum og
aldrei skilið af hverju hann hefur
fengið öll verðlaun en við engin,“
útskýrir Ólafur þegar Fréttablaðið
innti hann eftir sáttaumleitunum
þeirra á milli. „Við höfum unnið
mikið saman en rifist eins og hund-
ur og köttur þess á milli,“ heldur
Ólafur áfram.
Þessi meinti ágreiningur kvik-
myndaleikstjóranna kemur eflaust
mörgum spánskt fyrir sjónir enda
kemur það á daginn við nánari eft-
irgrennslan að viðtalið er skáld-
skapur frá upphafi til enda. Fjöldi
kvikmynda er nefndur á nafn sem
aldrei hafa verið gerðar og ljóst að
vinskapur þeirra á milli hefur aldrei
verið meiri. Dagur Kári aðstoðar
Ólaf við gerð handritsins að kvik-
myndinni Stóra planið sem byggð
er á bók Þorvalds Þorsteinssonar,
Við fótskör meistarans, en það eru
þeir Pétur Jóhann Sigfússon og
Eggert Þorleifsson sem leika aðal-
hlutverkin. „Ég réð Dag bara til að
hafa stjórn á honum,“ segir Ólafur
og hlær að þessu græskulausa gríni
félaganna. „Þetta er náttúrlega bara
bölvað bull milli tveggja góðra
vina,“ bætir Ólafur við.
Ólafur og Dagur Kári sættast
...fær trúbadorinn Jojo fyrir að
gleyma ekki hinum gleymdu
yfir jólahátíðirnar en hann
ætlar að spila fyrir vistmenn á
réttargeðdeildinni Sogni
Gemma Taylor, sterkasta kona
Bretlands, og Benedikt Magnússon,
sterkasti maður Íslands kynntust á
kraftakeppni í mars og felldu hugi
saman. Nú búa þau saman á Íslandi
og búa sig undir frekari stórræði í
heimi kraftlyftinga.
Gemma Taylor hefur unnið
keppnina um sterkustu konu Bret-
lands tvö ár í röð og lenti í öðru sæti
í keppninni Sterkasta kona heims
sem haldin var á Norður-Írlandi í
júlí í fyrra. Á árinu kynntist hún
Benedikt Magnússyni, sem er sterk-
asti maður Íslands eins og kunnugt
er, og með þeim tókust ástir.
„Við hittumst á Arnold Classic
mótinu í mars,“ segir Gemma. „Það
er mót sem Arnold Schwarzenegg-
er stendur fyrir og er sterkasta
kraftakeppni í heiminum um þessar
mundir. Ég var að koma af stað
tímariti um kraftakonur og tók þess
vegna viðtal við Benna og þannig
kynntumst við.“
Benedikt náði heimsmetinu í
réttstöðulyftu á móti í Finnlandi í
nóvember í fyrra, með 440 kílóa
lyftu. Þetta gerði honum kleyft að
taka þátt í Arnold Classic keppn-
inni. „Hann náði fimmta sæti og það
var frábær árangur,“ segir Gemma.
„Hann er mjög hæfileikaríkur og
sterkur og á framtíðina fyrir sér í
þessu. Svo náði hann sjöunda sæti í
keppninni Sterkasti maður heims,
sem var haldin á Íslandi í nóvem-
ber. Næsta keppni hans verður Arn-
old Classic í Úkraínu 29. desember
og svo verður önnur slík í Banda-
ríkjunum í mars.“
Gemma tekur undir að krafta-
mennska sé ekki hin dæmigerða
atvinnugrein. „Þessi atvinna er
mjög ólík því sem fólk þekkir, en af
því að við erum bæði í þessu eigum
við auðvelt með að skipuleggja
okkur. Við eyðum miklum tíma í
þjálfun og leggjum mikla áherslu á
heilbrigði og næringu. Með þessu
getum við hjálpast að,“ segir
Gemma.
Lífið á Íslandi leggst vel í
Gemmu. „Næsta keppnin mín verð-
ur 20. desember, en það er keppni í
þremur tegundum kraftlyftinga hjá
Gym 80. Mig langar að reyna að slá
Íslandsmetin í þessum greinum,“
segir hún.
Brauðrist úr stáli og með FM útvarpi. Fallegt gamaldags útlit.
Ristar samlokur og hitagrind fylgir með
Kr.12.900,-
Tilvalið í sumarbústaðinneða eldhúsið
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI