Fréttablaðið - 22.12.2006, Page 18
Rannsóknarnefnd
sjóslysa yfirheyr ði í gær
skipverja á flutningaskipinu
Wilson Muuga en það strand-
aði um fimmleytið á þriðju-
dagsmorgun.
Ingi Tryggvason, formaður
nefndarinnar, sagði yfirheyrsl-
ur hafa gengið ágætlega. „Við
vitum ekki ennþá hvað olli því
að sjálfstýringin bilað.
Skipverjar [á Wilson Muuga]
telja ótvírætt að sjálfstýringin
hafi bilað en við höfum ekki
ennþá fengið tækifæri til þess
að skoða vélarrými skipsins.“
Eins og greint var frá í
Fréttablaðinu í gær björguðust
allir áhafnarmeðlimir Wilson
Muuga en þyrla Landhelgisgæsl-
unnar bjargaði mönnunum í
landi við erfiðar aðstæður.
Rannsóknarnefnd danska
sjóhersins sér um að yfirheyra
skipverja á danska varðskipinu
sem aðstoðaði við björgunina.
Yfirheyrði
skipverjana
Guðmundur
Ásgeirsson, stjórnarformaður
Nesskipa, segir að búið sé að
dæma Wilson Muuga ónýtt.
„Skipið fer aldrei á sjó meir,“
segir hann. Mikilvægast sé að
reyna að ná olíunni á land og
það sjái Umhverfisstofnun um
nema samkomulag náist við
tryggingafélögin um annað.
„Næsta skref er að reyna að
ná olíunni á land og síðan þarf
að fjarlægja flakið seinnipart
vetrar. Það þýðir ekkert að
gera það þegar það er birta
þrjá tíma á dag og alltaf
vitlaust veður. Við höfum sex
mánuði til að fjarlægja skipið
að sögn Umhverfisstofnunar.“
Wilson Muuga
ekki meir á sjó
Ströndin frá Hvals-
nesi að Sandgerði er í mestri hættu
ef olía lekur úr Wilson Muuga.
„Flekkurinn getur borist víða
og haft óheillavænleg áhrif.
Ákveðinn hluti af olíunni gufar
upp en megnið heldur sig í sjónum
og hefur þar áhrif á allt lífríki. Líf-
verurnar taka upp olíusamböndin
og þau hafa skaðvænleg áhrif á
starfsemi lífveranna,“ segir Jör-
undur Svavarsson, prófessor í
sjávarlíffræði við Háskóla
Íslands.
Þungar olíur eins og hráolía og
svartolía sem ná landi fljótlega
eftir að þær fara í sjóinn geta haft
alvarleg áhrif á umhverfið. Meng-
un er alvarleg þegar fuglar verða
olíublautir en minna sýnileg áhrif
á gróður og dýralíf eru ekki síður
alvarleg.
Fyrstu áhrif olíu á lífríki
stranda og sjávar geta verið lítil
en þau geta líka orðið til þess að
allt lifandi drepst á tilteknu svæði.
Strandsvæði sem fangar olíuflekk,
til dæmis leirur eða votlendi,
getur orðið sérlega illa úti. Fjöl-
breytilegt og friðað lífríki er á
strandlengjunni norðan við strand-
staðinn, bæði margvíslegt fuglalíf
og lífmiklar fjörur.
Fyrir opnu hafi verða áhrif
olíumengunar tiltölulega lítil þar
sem saman fer hratt niðurbrot
olíunnar og takmarkað lífríki en
áhrifin á strönd í skjóli eru meiri.
Skjólsælustu strandirnar eru
gjarnan með leirum og votlendi.
Slík svæði fanga gjarnan olíu-
flekki. Svæði af þessu tagi eru við
Ósa og í Sandgerði og teljast þau í
mikilli hættu.
Eitrunaráhrif olíunnar skiptir
máli þegar hugsanleg áhrif olíu-
mengunar eru metin. Verulegur
munur er á eitrunaráhrifum hrá-
olíuflekks sem nær landi stuttu
eftir að hann kemst í sjóinn eða
flekks sem hefur veðrast á rúmsjó
dögum saman áður en hann nær
landi. Þegar olía dreifist í vatn eða
sjó verða ýmsar breytingar á
henni sem stýra hegðun hennar.
Þetta kemur fram í gögnum frá
Umhverfisstofnun.
Þegar áhrif olíumengunar á
umhverfið eru metin skiptir máli
hversu seig olían er, hversu hratt
hún gufar upp og hver þykkt henn-
ar er, hvort hún gufar upp eða
sekkur. Hraði uppgufunarinnar
fer mest eftir því hvernig olían er
samsett. Náttúruleg dreifing olí-
unnar getur átt sér stað þegar
örfínir olíudropar dreifast um
vatnið. Olían getur sest á botninn í
kekkjum og svo getur sólin orðið
til þess að ný efnasambönd mynd-
ist í henni.
Dýralífið þolir illa olíu
Olíumengun getur haft óheillavænleg áhrif á fugla, fiska og smádýralíf. Mesta mengunin getur orðið á
leirum í Ósum og Sandgerði þar sem eru skjólsælar strandir sem virka eins og olíugildrur.
Flutningaskipið Wilson Muuga situr
stöðugt í Hvalsnesfjöru og ekkert bendir til annars en að
það sitji áfram á sínum stað. Landhelgisgæslan flaug
yfir strandsvæðið í dag og sáust þá tveir eða þrír litlir
olíublettir á reki norður með ströndinni. Hávar Sigur-
jónsson, upplýsingafulltrúi Umhverfisstofnunar, segir
að erfitt sé að segja til um hve olíuna rekur langt.
Sjö menn sigu ásamt búnaði um borð í flutninga-
skipið Wilson Muuga í Hvalsnesfjöru við Sandgerði í
dagsbirtu í gær og hófu undirbúning að því að dæla
olíu úr skipinu. Hávar var bjartsýnn en sagði þó ekki
hægt að dæla fyrr en veður gengi niður. Hins vegar
væri hægt að dæla svartolíunni upp úr tönkunum og
hefja undirbúning að því að dæla henni í land.
„Öll svartolían er enn í skipinu. Botntankarnir virðast
heilir og enginn sjór hafa blandast við hana. Olían í sjón-
um er líklega úr dísilolíutanki undir vélarrúminu. Það er
miklu auðveldara við hana að eiga. Hún er þynnri, brotn-
ar hraðar niður og svo er þetta minna magn. Meðan ekk-
ert annað fer í sjóinn er staðan mjög góð,“ segir hann.
„Við sjáum til þegar lygnir hvort olían berst upp í
fjörur eða ekki. Yfirgnæfandi líkur eru á að olían leysist
upp og valdi litlum sem engum skaða þegar þeytist til og
frá í briminu.“
Ákveðin svæði verða vöktuð í nótt til að fylgjast með
því hvort olíuna reki í land.
Olíudæling undirbúin úr skipinu Rannsóknardeild lögreglunnar í Keflavík hefur ekki komist að því hvað olli því
að sjálfstýring í flutningaskip-
inu Wilson Muuga bilaði með
þeim afleiðingum að skipið
strandaði skammt frá Hvals-
nesi sunnan við Sandgerði.
Tólf skipverjum var
bjargað af skipinu á strandstað
en 25 ára Dani, Jan Nordskov
Larsen, lést er átta skipverjar
af danska varðskipinu Triton
reyndu að komast um borð í
Wilson Muuga skömmu eftir
að það strandaði.
Jóhannes Jensson rannsókn-
arlögreglumaður segir
yfirheyrslur ganga hægt. „Við
erum með túlka með okkur en
yfirheyrslur eins og þessar
ganga yfirleitt hægt. Við
höfum farið um borð og skoðað
vélina en eigum eftir að skoða
þessi mál enn betur.“
Skipverjar á Triton hafa
ekki verið yfirheyrðir ennþá
en verða líklega yfirheyrðir í
dag.
Orsök bilunar
ekki ljós enn