Fréttablaðið - 02.01.2007, Page 51

Fréttablaðið - 02.01.2007, Page 51
Láttu skrá þig strax í síma 414-4000 eða með tölvupósti afgreidsla@hreyfi ng.is Leiðbeinandi: Vladka Malá frá Ungverjalandi. Vladka hefur áunnið sér öll réttindi sem Stott-Pilates kennari (Full Certifi ed IMP, IR, ICCB, ISP, level 2). Frábært æfi ngakerfi sem hefur slegið rækilega í gegn um allan heim. Jump fi t er ein heitasta nýjungin í líkamsræktar- geiranum í dag þar sem sippað er í takt við tónlist með fjölbreyttum og árangursríkum æfi ngakerfum. Hentar vel þeim sem vilja komast í toppform á sem skemmstum tíma. Aðeins 40 mín. tímar. 8 vikna námskeið hefst 15. janúar. Skráðu þig strax með því að senda póst á afgreidsla@hreyfi ng.is, hringja í síma 414 4000 eða koma við hjá okkur í Faxafeni 14. Auðvelt að læra – frábær skemmtun! Kringlan s. 533-1740 Smáralind s. 534-1740 Útsalan er hafin 70% afsláttur Jessica Simpson og fyrrverandi eiginmaður hennar Nick Lachey hafa loksins gengið frá skiptingu eigna sinna. Þar með er skilnaður þeirra loks frágenginn. Simpson, sem er 26 ára, og Lachey, 33 ára, gengu í hjónaband árið 2002 og komu fram í MTV-raunveruleika- þættinum Newlyweds sem sýndur hefur verið hér á landi. Þau skildu að skiptum í nóvember árið 2005. Skilnaðurinn gekk svo í gegn í júnímánuði 2006. Bandaríska tímaritið People segir að Jessica og Nick ætli ekki að greina frá hvernig eignum þeirra var skipt. Eftir skilnaðinn hefur Lachey verið á föstu með MTV-kynninum Vanessu Minnillo en Simpson er sögð vera með tónlistarmanninum John Mayer. Skilnaðurinn frágenginn Gamli rokkhundurinn Ronnie Wood kom eiginkonu sinni Jo í opna skjöldu þegar hann skellti sér í ræktina með henni og einka- þjálfaranum hennar. Ronnie, sem er gítarleikari Rolling Stones, hefur sem kunnugt er löngum átt í vandræðum með áfengis- og eitur- lyfjaneyslu en honum þótti ekkert tiltökumál að hreyfa sig aðeins á dögunum. „Við æfðum saman – ég og Ronnie. Þetta var ótrúlegt,“ segir Jo sem var fyrirsæta. „Hann fann fyrir verkjum daginn eftir og sagðist ekki geta hreyft sig. Ég held samt að hann sé ánægður með þetta. Næst reyni ég ábyggi- lega að fá hann með mér í garð- yrkjuna!“ Ronnie í ræktina

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.