Fréttablaðið - 02.01.2007, Blaðsíða 58
Deco, miðjumaður
Barcelona og samherji Eiðs
Smára, hefur látið hafa eftir sér
að hann vilji spila í ensku
úrvalsdeildinni áður en ferli hans
lýkur.
„Það er satt að mig langar til
að spila á Englandi vegna þess að
það er heillandi deild. Núna er ég
hins vegar í einu besta liði heims
og er mjög ánægður og það yrði
mjög erfitt að fara héðan á
næstunni,“ sagði Deco sem hefur
oft verið orðaður við Chelsea.
Dreymir um að
spila á Englandi
Miðjumaður Arsenal,
Gilberto Silva, viðurkennir að
liðið sakni sárlega fyrirliðans
Thierry Henry. Frakkinn hefur
misst af síðustu átta leikjum
Arsenal og verður ekki með í
leiknum í kvöld gegn Charlton.
Gilberto hefur verið fyrirliði í
fjarveru Henry og viðurkennir
vandann fúslega en Arsenal hefur
meðal annars tapað fyrir
Sheffield United í jólatörninni.
„Það er mikilvægt að við fáum
Thierry til baka. Við söknum
hans, við vitum að hann er
mikilvægur fyrir okkur þar sem
hann er leiðtogi liðsins. Við
höfum gert okkar besta án hans
en auðvitað þörfnumst við hans í
framlínuna. Ég vona að hann
verði tilbúinn eftir næsta leik,“
sagði Brasilíumaðurinn.
Við söknum
Thierry Henry
Englandsmeistarar Chel-
sea hafa gefið eftir í titilbarátt-
unni á Englandi en liðið hefur gert
tvö jafntefli í deildinni í röð, gegn
Wigan og Fulham. Á meðan hefur
Manchester United ekkert slakað
á og ljóst er að Chelsea þarf á sigri
að halda gegn Aston Villa í kvöld
til að halda í við United. Vörnin
hefur verið helsti veikleikinn en í
síðustu þremur leikjum hefur liðið
fengið á sig tvö mörk í leik.
Fyrirliðinn John Terry og
markmaðurinn Petr Cech eru
báðir frá vegna meiðsla en þó
styttist í endurkomu beggja.
Greinilegan veikleika má sjá á lið-
inu í fjarveru þeirra en allar líkur
eru á því að José Mourinho styrki
lið sitt í janúarglugganum með í
það minnsta einum varnarmanni.
Sá sem talið er líklegast að fari til
Chelsea er Micah Richards, leik-
maður Manchester City, og honum
gæti fylgt Sol Campbell frá
Portsmouth.
„Ég vona að Chelsea hafi ekki
áhuga á honum, ef ég missi hann
er ég í miklum vandræðum. Það
yrði skelfilegt að missa Sol, hann
hefur verið frábær hjá okkur,“
sagði Harry Redknapp, stjóri
Portsmouth. Mourinho er sjálfur
alls ekki sáttur við vörnina sína. „Í
augnablikinu getur Chelsea bara
ekki varist. Ég er sá fyrsti til að
sjá það. Kannski erum við ekki
jafn góðir og við höldum, kannski
er ég ekki svo góður stjóri, kannski
eru leikmennirnir ekki svo góðir
eftir allt,“ sagði Mourinho.
„Hérna eru allir með stóra og
sterka framherja. Þeir setja bolt-
ann inn í teiginn en við erum ekki
nógu ríkjandi í loftinu. Hvað er
hægt að gera með Paulo Ferreira
og Geremi? Ekkert,“ sagði Mour-
inho og hélt áfram að gagnrýna
sína menn. „Andriy Shevchenko,
Shaun Wright-Phillips og Salomon
Kalou eru bara ekki að standa sig.
Didier Drogba er sá eini sem er
upp á sitt besta í augnablikinu,“
sagði Portúgalinn sem segist ekki
vera viss um að hann þurfi að
kaupa neinn í janúar.
„Ég þarf ekki að eyða neinu.
Þetta er erfitt en ég vona að John
Terry og Petr Cech snúi fljótt
aftur. Ég þarf ekki að eyða neinum
milljónum, ég þarf bara besta
varnarmann heims og besta
markmann heims til baka,“ sagði
Mourinho.
Chelsea saknar John Terry sárlega
Chris Coleman, knatt-
spyrnustjóri Fulham, viðurkennir
að hafa mikinn áhuga á sóknar-
manninum Vincenzo Montella.
„Ég hef áhuga, ég neita því ekki.
Ég vil ekki tjá mig meira um
þetta mál en tel að við séum ekki
eina liðið sem hafi áhuga,“ sagði
Coleman.
Montella er ekki í áætlunum
Luciano Spalletti, þjálfara Roma,
en hann hefur mikið verið frá
síðustu ár vegna meiðsla og lék
meðal annars bara þrettán leiki
með Roma í ítölsku deildinni
síðasta tímabil. hann er nú fyrir
aftan Francesco Totti, Mirko
Vucinic og Francesco Tavano í
goggunarröðinni.
Fulham vill fá
Montella
Enska úrvalsdeildin:
Eggert Magnússon og
Björgólfur Guðmundsson voru
súrir á svip þegar þeir fylgdust
með sínum mönnum í West Ham
vera tekna í kennslustund af
Reading í ensku úrvalsdeildinni.
Brynjar Björn Gunnarsson og
Ívar Ingimarsson spiluðu báðir
allan leikinn fyrir Reading sem
vann 6-0 sigur, Brynjar braut ein-
mitt ísinn fyrir Reading í leiknum
þegar hann skoraði eftir auka-
spyrnu frá Nicky Shorey. Ívar
hefur hingað til spilað hverja ein-
ustu mínútu fyrir liðið í ensku
úrvalsdeildinni. Kevin Doyle skor-
aði tvö mörk í leiknum en Reading
var fjórum mörkum yfir í hálf-
leik.
„Þessi leikur var mikil próf-
raun fyrir mitt lið og í hreinskilni
vissi ég ekki hvort mínir menn
næðu að standast hana. Það hefur
verið mikið leikjaálag upp á síð-
kastið en eftir að við komumst
yfir varð ég vitni að bestu spila-
mennsku sem ég hef séð hjá lið-
inu síðan ég tók við. Leikmenn
mínir eiga hrós skilið,“ sagði
Steve Coppell, knattspyrnustjóri
Reading.
Reading er í níunda sæti deild-
arinnar sem er mun betri árangur
en flestir bjuggust við. Staða West
Ham er hins vegar mjög slæm,
liðið er með átján stig í fallsæti en
fjögur stig eru upp í öruggt sæti.
Ljóst að Alan Curbishley þarf að
vanda valið í félagaskiptagluggan-
um en miðað við frammistöðu liðs-
ins í gær gæti hann skipt út allri
varnarlínu liðsins nú í janúar.
Ljóst var að lið Bolton var mætt
á Anfield til að ná í eitt stig í gær
en framan af leiknum spilaði það
góðan varnarleik og gaf fá færi á
sér. Það var síðan stórglæsilegt
mark frá Peter Crouch í seinni
hálfleik sem kom Liverpool loks á
bragðið og strax á eftir fylgdi frá-
bært mark frá Steven Gerrard.
Hollenski sóknarmaðurinn Dirk
Kuyt innsiglaði síðan 3-0 sigur
Liverpool. Þess ber að geta að
Jermaine Pennant átti mjög góðan
leik fyrir Liverpool en hann hefur
valdið miklum vonbrigðum á tíma-
bilinu.
„Þetta var fullkomin byrjun á
nýju ári og við spiluðum mjög
góðan fótbolta. Þetta var frábær
vika fyrir mig persónulega en
þegar maður gengur út á völlinn
lætur maður alla persónulegu
hlutina til hliðar. Ég er mjög
ánægður með markið mitt, ég lét
ekki mikið að mér kveða í seinni
hálfleik en náði þó að skora,“ sagði
Steven Gerrard, fyrirliði Liver-
pool, sem fékk orðu frá Englands-
forseta fyrir nokkrum dögum.
Heiðar Helguson var óheppinn
að skora ekki þegar Fulham og
Watford gerðu markalaust jafn-
tefli. Heiðari tókst að koma bolt-
anum í netið í fyrri hálfleik en
aðstoðardómarinn flaggaði rang-
stöðu sem var rangur dómur. Þrátt
fyrir markaleysið var leikurinn
fjörlegur og boltinn fór oftar en
einu sinni í tréverkið. Antti Niemi,
markvörður Fulham, slasaðist í
seinni hálfleik og þurfti að fara af
velli.
Wigan tapaði sínum fimmta
leiki í röð þegar liðið beið lægri
hlut 0-3 fyrir Blackburn á heima-
velli sínum. „Mínir menn eru bara
ekki að vinna vinnuna sína um
þessar mundir. Mikið er talað um
það að við þurfum að fá okkur
sóknarmann og ég get upplýst að
við erum að leita að sóknarmanni.
En það er alveg ljóst að ekki er
hægt að ætlast til þess að við skor-
um fjögur mörk í hverjum leik,
við verðum að fara að verjast
almennilega líka,“ sagði Paul
Jewell, knattspyrnustjóri Wigan,
eftir leik. Mark frá Steed Mal-
branque tryggði Tottenham stig á
útivelli gegn Portsmouth, 1-1.
Yakubu var í aðalhlutverki
þegar Middlesbrough vann Sheffi-
eld United 3-1 á heimavelli sínum.
Hann skoraði tvívegis í seinni
hálfleik og sá til þess að Middles-
brough vann.
Þá var Georgios Samaras hetja
Manchester City þegar liðið vann
2-1 sigur á Everton með því að
skora bæði mörk City eftir að hafa
komið inn sem varamaður.
Brynjar Björn Gunnarsson kom Reading á bragðið í gær þegar liðið burstaði West Ham á heimavelli sínum
6-0. Liverpool komst upp í þriðja sæti deildarinnar með því að vinna öruggan sigur gegn Bolton á Anfield.
Newcastle tók á móti
Manchester United í ensku úrvals-
deildinni í gær á heimavelli sínum
St. James Park. Leikurinn endaði
með jafntefli, 2-2, en mörk New-
castle í leiknum voru einkar glæsi-
leg.
Fyrri hálfleikurinn var gríðar-
lega fjörugur og á 33. mínútu kom
James Milner Newcastle yfir með
glæsilegu marki. Skot hans af um
25 metra færi endaði efst í blá-
horninu, óverjandi fyrir Edwin
van der Sar, markvörð Manchest-
er United.
Þá kom að þætti Paul Scholes
sem náði að jafna metin fyrir
gestina á 40. mínútu og ekki voru
liðnar nema rétt rúmar 20 sek-
úndur þegar hann kom Manchest-
er United yfir.
Allt stefndi í sigur gestanna frá
Manchester en það var nítján ára
strákur, David Edgar að nafni,
sem bjargaði stiginu fyrir New-
castle þegar skot hans af um 30
metra færi fór fram hjá hverjum
leikmanna Manchester United á
fætur öðrum og endaði neðst í blá-
horninu.
„Við fórum illa með mörg færi
en það er ekki hægt annað en að
dást að baráttunni í leikmönnum
Newcastle. Þeir áttu skilið að ná
jafntefli, það er engin spurning,“
sagði Sir Alex Ferguson, stjóri
Manchester United sem hefur nú
sjö stiga forskot á Chelsea.
Nítján ára strákur spillti gleði Man. Utd