Fréttablaðið - 25.01.2007, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 25.01.2007, Blaðsíða 78
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og útfarir í smáletursdálkinn má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. „Ég held að Íslendingar og Japanar eigi tölvert sameiginlegt. Fyrir utan það að vera frá eldfjallaeyjum þá eru báðar þessar þjóðir svolítið klikkaðar og tæknióðar en trúa samt á gamlar þjóðsögur.“ Dr. Halldór Björn Runólfs- son var nýlega skipaður í embætti forstöðumanns Listasafns Íslands. Halldór Björn lauk doktorsprófi frá sjónlista- og fagurfræðideild við Sorbonne-háskóla í París á síðasta ári og starfar sem lektor og yfirmaður list- fræða við Listaháskóla Íslands. Hann mun taka við starfinu, sem veitt er til fimm ára, þann 1. mars næst- komandi. Listasafn Íslands er þjóð- listasafn og leggur meginá- herslu á 19. og 20. aldar list, íslenska og erlenda. Það á merkasta safn íslenskra verka hér á landi eftir helstu myndlistarmenn þjóðarinn- ar sem og vaxandi safn erlendra verka eftir heimskunna listamenn. Halldór segist meta helstu sóknarfæri Lista- safns Íslands í hlutverki þess sem upplýsingaveita um myndlist. „Nú þegar er búið að vinna töluvert í því að gera safnskost safnsins aðgengilegan. Búið er að mynda safnið og koma því á tölvutækt form og það er í farvatninu að gera safnið aðgengilegt á netinu,“ útskýrir Halldór og vísar til Sýndarsafnsins sem er raf- rænn gagnagrunnur um listaverkaeignina sem nú má fá aðgang að í Fræðslu- miðstöð safnsins við Frí- kirkjuveg en stefnt er að því að koma efni þess á netið. „Það væri einnig frábært ef að hægt yrði í framtíðinni að miðla sýningum á netinu,“ bætir hann við. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, María Guðmundsdóttir lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar aðfaranótt mánudagsins 22. janúar. Jarðsungið verður frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 27. janúar kl. 11. Halldóra Ragnarsdóttir Frímann Gústafsson Einar Júlíusson María Lillý Ragnarsdóttir Haukur Jónsson Guðmundur Ragnarsson Herdís Sæmundardóttir Kristín Ragnarsdóttir Jón Ásgeirsson Ragnar Ragnarsson barnabörn og barnabarnabörn. Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Geir Harðarson Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Svavar Svavarsson múrarameistari, Austurvegi 16, Grindavík, andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þann 22. janúar. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju mið- vikudaginn 31. janúar kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á orgelsjóð Grindavíkurkirkju. Sæbjörg M. Vilmundsdóttir Kristín Þorsteinsdóttir Hallur Gunnarsson Lárus Svavarsson Svavar Þór Svavarsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Alexía Margrét Ólafsdóttir Skipholti 6, Reykjavíkm lést á Landspítala Fossvogi föstudaginn 19. janúar sl. Jarðarförin fer fram fimmtudaginn 25. janúar frá Grafarvogskirkju kl. 13.00. Jens Stefán Halldórsson Ólöf Jóna Jensdóttir Björn Grímsson Ástbjörn Jensson May Brit Kongshaug Jenný Stefanía Jensdóttir Grettir Grettisson Ingibjörg Jensdóttir Gunnar Smith ömmu- og langömmubörn. 60 ára er í dag 25. janúar Ámundi Jökull Játvarðsson vélfræðingur. Í dag rekur Ámundi Regnbogann leikskóla ásamt konu sinni Lovísu Hallgrímsdóttur leikskólastjóra. Þau taka á móti ætting jum og vinum næsta laugardag 27. janúar milli kl. 17 og 19 í sal Regnbogans að Bleikjukvísl 10, Reykjavík. Útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, sonar, bróður og tengdasonar, Jóhanns Pálmasonar fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 26. janúar kl 13. Ragnheiður Gísladóttir Hlynur Jóhannsson Egill Þór Jóhannsson Askur Jóhannsson Alfa Jóhannsdóttir Pálmi Sveinsson Alfa Malmquist Kristrún Pálmadóttir Sveinbjörg Pálmadóttir Gísli Jónsson Jóna Birta Óskarsdóttir Þeim sem vildu minnast Jóhanns er bent á minningarsjóð nr. 0513-14-607272 hjá Glitni. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Alexía Margrét Ólafsdóttir Skipholti 6, Reykjavík, lést á Landspítala Fossvogi föstudaginn 19. janúar sl. Jarðarförin fer fram fimmtudaginn 25. janúar frá Grafarvogskirkju kl. 13.00. Jens Stefán Halldórsson Ólöf Jóna Jensdóttir Björn Grímsson Ástbjörn Jensson May Brit Kongshaug Jenný Stefanía Jensdóttir Grettir Grettisson Ingibjörg Jensdóttir Gunnar Smith ömmu- og langömmubörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigríður Sigurgeirsdóttir frá Súðavík, síðast til heimilis í Tjarnarlundi 17b, Akureyri, verður jarðsungin frá Súðavíkurkirkju laugardaginn 27. janúar kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð Súðavíkurkirkju. Upplýsingar í símum 450 4621, 456 4912 og 456 4959. Daníela Guðmundsdóttir Sigurjón Þorvaldsson Grétar Geir Guðmundsson Agnes Eymundsdóttir Sævar M. Birgisson Svanhvít Leifsdóttir Ólafur Guðmundsson ömmu- og langömmubörn. Ástkær eiginmaður minn, Snjólfur Björgvinsson frá Borgargerði, Djúpavogi, Vestursíðu 10, Akureyri, lést á Hjúkrunarheimilinu Seli mánudaginn 22. janúar. Útförin auglýst síðar. Fyrir hönd barna hins látna og annarra ástvina, Hulda Friðriksdóttir. Þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför móður, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu okkar, Sigurlaugar Gísladóttur sem lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði, sunnudaginn 14. janúar síðastliðinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.