Fréttablaðið - 04.03.2007, Blaðsíða 10
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysin-
gar@frettabladid.is eða hringja í
síma 550 5000.
Hjartanlegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu við frá-
fall og útför elskulegs sonar míns, bróður
okkar, mágs og frænda,
Gunnars Friðriks
Ólafssonar
Háholti 14, Hafnarfirði.
Guð blessi ykkur öll.
Guðlaug Hanna Friðjónsdóttir
Hulda Ólafsdóttir Scoles Dave Scoles
Anna Ólafsdóttir
Guðrún Ólafsdóttir Adolf Örn Kristjánsson
Friðjón Ólafsson Erna Herbertsdóttir
og frændsystkini.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför okkar ástkæru móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Maríu G. Sigurjónsdóttur
frá Fosshólum, Furugrund 68.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins
Sóltúns og L4 Landakots fyrir mjög góða umönnun og
hlýhug.
Ingibjörg Bjarnadóttir
Arndís Bjarnadóttir Pétur Már Pétursson
Einar S. Bjarnason Elín Þóra Sverrisdóttir
Guðrún Björk Bjarnadóttir Páll Guðmundsson
Ásmundur Bjarnason Sigrún Davíðsdóttir
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Hjartans þakkir fyrir hlýhug og auðsýnda
samúð vegna andláts ástkærs tengdaföður,
afa, langafa og bróður,
Jóhanns Hallvarðssonar
frá Geldingará í Leirársveit, síðast til heim-
ilis að Prestastíg 6, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til allra þeirra sem önnuðust hann
af mikilli alúð í veikindum hans, og Siglingasambandi
Ísland fyrir veittan stuðning.
Sigríður Ósk Óskarsdóttir
Jóhann Davíð Snorrason Valdís Ólafsdóttir
Ingvi Pétur Snorrason Ásdís Erla Jónsdóttir
Snorri Ingvason
Auður Ingvadóttir
Björg Hallvarðsdóttir
Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Bettý Júlíanna Hansen,
Sólheimum 25, Reykjavík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn 23.
febrúar sl. Útför hinnar látnu hefur farið fram í kyrr-
þey. Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjúkrunarheimilis-
ins Eirar fyrir umönnun og hlýju.
Einar Jón Einarsson
Soffía Einarsdóttir Grímur Markússon
Ingileifur Einarsson María Þórarinsdóttir
Bettý Grímsdóttir Árni Hrannar Arngrímsson
Halldóra Inga Ingileifsdóttir Einar Sigurjónsson
Kristín Ingileifsdóttir
og langömmubörn.
Söngkonan Helena Eyjólfsdóttir fagn-
ar fimmtíu ára söngafmæli sínu með
tónleikum í Salnum í kvöld. „Tónleik-
arnir heita Helena í hálfa öld. Mér
finnst þetta alveg hreint dásamlegt.
Ja, eða ógnvænlegt,“ sagði Helena og
hló við.
Rödd Helenu er flestum Íslending-
um góðkunn, og lög eins og Hvítu
mávar og Bel Ami eru órjúfanlegur
hluti af minningum margra lands-
manna. Í ár eru liðin fimmtíu ár frá því
að Helena kom fyrst opinberlega fram
sem dægurlagasöngkona, þá fimmtán
ára að aldri.
„Afmælið er ekki alveg upp á dag,
því þetta var í maí 1957. Þá stóð ég á
sviðinu í Austurbæjarbíói,“ sagði Hel-
ena. Hún hafði þó komið fram áður.
„Já, já, ég gerði það á meðan ég var
barn. En þetta er alveg nógu stórt
afmæli,“ sagði hún og hló.
Helena er langt því frá sest í helgan
stein og syngur enn fullum hálsi í
afmælisveislum, brúðkaupum og á
hvers kyns uppákomum. „Mér finnst í
rauninni alveg frábært að halda rödd-
inni og geta gert þetta. Það er alveg
yndislegt,“ sagði Helena, sem segir
þakklæti vera það sem standi upp úr á
söngferlinum. „Það eru náttúrlega ótal
atvik sem maður man alltaf. Og sem
betur fer man maður nú yfirleitt bara
skemmtilegu og góðu atvikin,“ sagði
hún kímin. „En það sem stendur upp
úr hjá mér er svo mikið þakklæti yfir
að hafa geta unnið þessa vinnu, sem
mér hefur alltaf þótt svo skemmtileg,
svona lengi. Og þakklæti til allra
minna gömlu spilafélaga sem hafa
unnið með mér í gegnum árin. Ég fann
það nú best þegar það var ákveðið að
blása til þessara tónleika, hvað allir
voru tilbúnir að vera með,“ sagði Hel-
ena.
Fjöldi tónlistarmanna leggur Hel-
enu lið í Salnum í kvöld, og efnisskráin
er einnig fjölbreytt. „Þetta eru lög sem
hafa fylgt mér í gegnum árin og fólk
vill alltaf heyra, hvar sem ég kem
fram. Svo verða líka lög sem ég hef
sjálf haft gaman af að syngja í gegnum
árin, og líka svolítið af djasslögum, þar
sem Sigurður Flosason verður sterkur
með mér,“ sagði Helena. Ragnar
Bjarnason verður með söngkonunni á
sviðinu fyrir hlé, en eftir það taka
spilafélagar Helenu úr hljómsveit Ingi-
mars Eydal við.
Svo góðar hafa undirtektirnar verið
að aðrir tónleikar verða haldnir í Saln-
um 11. mars næstkomandi, og mögu-
legt er að bæta þeim þriðju við. Helena
segist þó ekki stefna á að halda sextíu
ára söngafmæli eða þaðan af hærra.
„Nei, ég á ekki von á því. Það er bara
ágætt að halda einu sinni upp á einhver
tímamót og gera það almennilega,“
sagði hún.
„Til lítils er að skamma
spegilinn þótt andlitið sé úr
sér gengið.“
Roosevelt verður forseti