Fréttablaðið - 04.03.2007, Blaðsíða 4
Bókhald I
Sérlega hagnýtt námskeið fyrir þá sem þurfa að ná tökum á
bókhaldinu. Hentar einnig þeim sem vilja styrkja stöðu sína á
vinnumarkaði með góðri undirstöðu, þekkingu og grunnþjálfun í
bókhaldsvinnu. Kennsla byggir að mestu leyti á verklegum
æfingum með raunveruleg fylgiskjöl. Námið er metið til eininga.
Helstu kennslugreinar:
Verslunarreikningur, VSK reglur og skýrslur,
bókhaldsgrunnur og tölvubókhald.
Kennsla hefst 20. mars og lýkur 17. maí.
Morgunnámskeið: Kennt er þriðjudaga, fimmtudaga
og föstudaga kl 8.30 - 12.
Kvöld- og helgarnámskeið: Kennt er þriðjudaga
og fimmtudaga kl 18-21.30 og laugardaga kl 9 - 12.30.
Lengd: 100 kennslustundir. Verð: 94.000,-
Allt kennsluefni innifalið.
FAXAFEN 10
108 REYKJAVÍK
GLERÁRGATA 36
600 AKUREYRI
WWW.TSK.IS
SKOLI@TSK.IS
SÍMI: 544 2210
Karlmaður á
þrítugsaldri hefur verið úrskurð-
aður í gæsluvarðhald í tvær vikur
vegna innflutnings á tæpum
fjórum kílóum af kókaíni í
september í fyrra. Áður hafði
fertugur karlmaður verið
úrskurðaður í gæsluvarðhald
vegna málsins og var það einnig
framlengt um tvær vikur í gær.
Tollgæslan fann efnin vand-
lega falin í pallbíl hinn 17.
nóvember síðastliðinn. Hann
hafði skömmu áður komið til
landsins frá Cuxhaven í Þýska-
landi. Lögreglan fylgdist í
kjölfarið með bifreiðinni og 9.
febrúar var eldri maðurinn
handtekinn. Þetta er mesta magn
kókaíns sem gert hefur verið
upptækt í einu lagi á Íslandi.
Annar maður í
gæsluvarðhald
Einn kennari er fyrir
blinda nemendur á öllu landinu og
hann sinnir einungis einum nem-
anda. Álftanesskóli greiðir laun
hans. Önnur sveitarfélög á landinu
bjóða blindum nemendum sínum
ekki upp á þessa þjónustu, en sam-
kvæmt Sjónstöð Íslands eru á land-
inu 142 blindir og mikið sjónskertir
einstaklingar undir tvítugu.
Þetta var meðal þess sem bar á
góma á opnum fundi Blindrafé-
lagsins á þriðjudaginn. Fjallað var
um skýrslu sérfræðingsins Johns
Harris, sem unnin var að beiðni
félagsins. Mæltist hann til að heild-
arstefna yrði samin um málefni
blindra og að þjónusta við þá yrði
samþætt og einstaklingsmiðuð;
ekki væri nóg að blindir kynnu að
reikna, þeir þyrftu einnig að geta
tekið þátt í samfélaginu.
Ágústa Eir Gunnarsdóttir, ritari
stjórnar Blindrafélagsins, harmaði
ástand mála og benti á að fyrir 24
árum hefði námsaðstaða blindra
verið betri en hún er í dag. Nú væri
svo komið að foreldrar blindra
barna tækju á það ráð að flýja land-
ið til að tryggja þeim góða mennt-
un.
Ágústa sagði skýrsluna áfellis-
dóm yfir ráðamönnum mennta-
mála. „Tími starfshópa og vanga-
veltna er liðinn. Nú er tími
framkvæmda,“ sagði hún.
Vilhjálmur Þ. Vihjálmsson borg-
arstjóri ávarpaði fundinn og sagði
ljóst að ýmsir jaðarhópar hefðu
borið skarðan hlut frá borði í upp-
sveiflu síðustu ára. Það sé óásætt-
anlegt að blindir njóti ekki sömu
menntunar og aðrir. Reykjavíkur-
borg skorist ekki undan ábyrgð í
þessum efnum.
Einn kennari á öllu landinu
Finnar og Rússar
ráðgera að gera í sameiningu
kvikmynd um Carl Gustaf Emil
Mannerheim, þjóðhetju og
yfirmann finnska hersins í
heimsstyrjöldinni síðari. Gert er
ráð fyrir að myndin kosti tólf til
fjórtán milljónir evra og verður
hún þá dýrasta myndin í sögu
finnskra kvikmynda. Myndinni
verður leikstýrt af leikstjóranum
Renny Harlin, að sögn.
Til er leikrit um Mannerheim á
finnsku en ekki er vitað á hvaða
máli myndin um Mannerheim
verður. Stefnt er að því að taka
myndina snemma á næsta ári og
frumsýna síðla ársins.
Kvikmynd um
Mannerheim
Martti Ahtisaari,
fyrrverandi Finnlandsforseti,
segir að serbnesku og albönsku
samningafulltrúarnir frá Kosovo
séu algerlega á
öndverðum meiði
um tillögur
Sameinuðu
þjóðanna um
framtíð héraðs-
ins. Ahtisaari,
sem samdi
tillögurnar, hefur
átt fundi með
fulltrúum beggja
þjóðarbrotanna og sagðist nú ætla
að skoða athugasemdirnar og „sjá
til hvers konar breytingar við
gætum gert“.
Samkvæmt tillögunum fengi
Kosovo veruleg sjálfsstjórnar-
réttindi án þess þó að hafa
formlegt sjálfstæði, auk þess sem
serbneski minnihlutinn fengi að
hafa náin tengsl við Serbíu.
Mikið ber á
milli í Kosovo
„Framsóknarmenn
leggja áherslu á að ríkisvaldið uni
úrskurðum óbyggðanefndar, enda
er nefndin skipuð af ríkisstjórn
landsins,“ segir Jón Sigurðsson,
formaður Framsóknarflokksins.
Hann segir að hugsanlega verði
að taka lög um þjóðlendur til
endurskoðunar. Ályktun flokks-
þingsins snúist um að skapa sátt
um eignarhald á landi og vinna
hratt að sáttum.
„Ég tel mestar líkur til þess að
hægt verði að ná samstöðu með
breytingum sem fjármálaráð-
herra hefur undirbúið. Í stað þess
að leggja fram kröfugerð í upp-
hafi þá er lögð fram beiðni um
rannsókn hjá óbyggðanefnd og
síðan möguleiki á samningum
áður en málið fer í dómsmeð-
ferð,“ segir Jón.
Meðal þess sem fram kemur í
ályktun þingsins er að kröfum
verði ekki þinglýst með þeim
hætti sem skerðir eignarréttindi
manna meðan mál standa yfir. Þá
fagnar þingið stofnun landssam-
taka jarðeigenda og telur mikil-
vægt að ríkisstjórnin eigi gott
samstarf við samtökin.
Um 600 manns sátu flokks-
þingið og var mikill hugur í
flokksmönnum við lok þingsins.
„Mér finnst standa upp úr á þessu
þingi sú mikla samstaða sem er
meðal flokksfélaga og mjög létt-
ur andi og áhugi. Mér sýnist af
þessu flokksþingi að Framsókn-
arflokkurinn sé í mikilli sókn,“
segir Jón. Um 60 ályktanir voru
samþykktar á þinginu og segir
formaðurinn þær lýsa bjartsýni
og framfarastefnu flokksins.
Meðal þess sem ályktað var
um á þinginu var lækkun virðis-
aukaskatts á lyfjum niður í sjö
prósent, að minnka tekjutengingu
bóta og að kynbundnum launa-
mun yrði eytt. Þá samþykkti þing-
ið ályktun um lengingu fæðingar-
orlofs úr níu mánuðum í tólf.
Jón segir að Framsóknarflokk-
urinn muni leggja þyngsta
áherslu á velferðar- og fjöl-
skyldumál. Þá verði lögð áhersla
á atvinnu- og byggðamál, auð-
lindamál og náttúruvernd, sókn í
menntun og loks á jafnvægi og
stöðugleika í efnahagsmálum.
Vilja ná samstöðu
um þjóðlendurnar
Fjölmennu landsþingi Framsóknarflokksins lauk í gær. Mikið var rætt um þjóð-
lendumál og er vilji flokksins að skapa sátt um málið. Jón Sigurðsson, formaður
Framsóknarflokksins, segir jafnvel þörf á að endurskoða lög um þjóðlendur.
Samtökin ´78 hlutu
bjartsýnisverðlaun Framsóknar-
flokksins sem veitt voru á síðari
degi landsþings flokksins í gær.
Hljóta samtök-
in verðlaunin
fyrir baráttu
sína fyrir
mannréttind-
um. Hrafnhild-
ur Gunnars-
dóttir,
formaður
samtakanna,
veitti verðlaun-
unum viðtöku
úr hendi Jóns Sigurðssonar,
formanns Framsóknarflokksins.
Hrafnhildur þakkaði sérstak-
lega fyrir þann stuðning sem
samtökin hafa notið meðal
framsóknarmanna og minnti fólk
á að baráttunni væri ekki lokið,
þótt mannréttindum væri náð,
þeim þyrfti einnig að viðhalda.
Verðlauna starf
Samtakanna ́ 78
Tölvuframleiðandinn
Lenovo hefur innkallað rafhlöður
sem seldar voru með ThinkPad
fartölvum frá febrúar 2005 til
mars 2007. Sveinn Orri Tryggva-
son, deildarstjóri hjá Nýherja,
segir innköllunina ná yfir um tvö
hundruð tölvur sem seldar voru
hér á landi. Um er að ræða T60-
tegundina af Thinkpad-fartölv-
um.
Í fréttatilkynningu segir að
innköllunin sé vegna nokkurra
ofhitnunartilvika þar sem
fartölvur skemmdust. Alls verða
um tvö hundruð þúsund rafhlöð-
ur kallaðar inn um allan heim.
Sveinn biður notendur sem telja
sig hafa gallaða rafhlöðu um að
hafa samband við Nýherja.
Lenovo kallar
inn rafhlöður