Fréttablaðið - 04.03.2007, Síða 26

Fréttablaðið - 04.03.2007, Síða 26
Markaðsstjóri Húsasmiðjunnar Húsasmiðjan auglýsir eftir markaðsstjóra Húsasmiðjunnar Húsasmiðjan hf. er stærsti söluaðili byggingarvara á Íslandi og eitt af 25 stærstu fyrirtækjum landsins. Húsa- smiðjuverslanir eru 21 á landsvísu. Í verslunum okkar höfum við á boðstólnum yfir 80.000 vörutegundir. Hjá Húsasmiðjunni starfa að jafnaði um 750 manns á öllum aldrei. Við leggjum mikla áherslu á að starfsmenn eigi þess kost að eflast og þróast í starfi. Umsækjendur skulu senda tölvupóst til Guðrúnar Kristinsdóttur, starfsmannastjóra Húsasmiðjunnar, gudrunk@husa.is, fyrir 9. mars. Einnig er hægt að skila inn umsóknum til Guðrúnar á aðalskrifstofur félagsins í Holtagörðum við Holtaveg, 104 Reykjavík. www.husa.is Um Húsasmiðjuna Húsasmiðjan er ört vaxandi, 50 ára gamalt fyrirtæki sem er leiðandi á byggingavöru- og heimilsvörumarkaði fyrir einstaklinga og fyrirtæki í smásölu og heildsölu. Húsasmiðjan er eitt stærsta fyrirtæki í smásölu á Íslandi, eitt stærsta innflutningsfyrirtæki landsins og í hópu stærstu fyrirtækja landsins miðað við veltu. Húsasmiðjan rekur 31 verslun um allt land undir vörumerkjunum Húsasmiðjan, EGG, Blómaval, Ískraft og HG Guðjónsson. Húsasmiðjan hefur þá stefnu að ráða starfsmenn í hvert starf m.t.t. þess hvernig þeir geta best leyst viðkoamandi starf af hendi, án tilits til aldurs, kyns, eða uppruna að öðru leyti en því sem eðlilegt er, miðað við kröfur starfsins til líkamsburðar og tungumálakunnáttu. Um starfið Markaðsstjóri Húsasmiðjunnar er ábyrgur fyrir markaðsstefnu og markaðsáætlunum allra vörumerkja félagsins, verkstýringu markaðsdeildar, tekur þátt í stefnumótum vörumerkja félagsins auk fjölda annarra verkefna markaðsdeildar. Í markaðsdeild Húsasmiðjunnar starfa 8 manns í dag en deildin er ábyrg fyrir markaðsstarfi Húsasmiðjunnar, Blómavals, EGG, Ískrafts og HG Guðjónssonar. Húsasmiðjan er einn stærsti auglýsandi landsins bæði hvað varðar auglýsingabirtingar sem og markaðsfé. Um umsækjendur Allir þeir sem telja sig hafa það fram að færa sem starfið krefst, eru hvattir til að sækja um. Hæfniskröfur Háskólamenntun á sviðið markaðsmála. Reynsla í markaðsstýringu. Miklir skipulaghæfileikar. Góð enskukunátta. Lifandi áhugi á markaðsmálum, frumkvæði og snerpa. Húsasmiðjuskólinn Við rekum skóla þar sem starfsmenn sækja námskeið. Haldin eru um 100 námskeið á ári og námsvísir er gefinn út vor og haust. Starfsmannafélag Hjá okkur er öflugt starfsmannafélag sem sér m.a. um skemmtanir fyrir starfsmenn og fjölskyldur fleirra, íþróttaviðburði og útleigu sumarhúsa. Heilsuefling Fyrirtækið og starfs- mannafélagið styðja við heilsurækt starfsmanna. Viðskiptakjör Vi› bjó›um starfs- mönnum gó› kjör. KÓPAVOGSBÆR Félagsþjónusta Kópavogs Persónulegur ráðgjafi óskast 3 - 4 daga í viku seinni hluta dags, virka daga. Allar nánari upplýsingar veitir Dagný Björk mánudag og fimmtudag frá kl. 9:00 til 16:00 í síma 570-1400. Netfang: dagny@kopavogur.is Umsóknum skal skilað á þar til gerð eyðublöð sem liggja frammi í afgreiðslu Félagsþjónustu Kópavogs, Fannborg 4. Hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um starfið.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.