Fréttablaðið - 04.03.2007, Side 26
Markaðsstjóri Húsasmiðjunnar
Húsasmiðjan auglýsir eftir markaðsstjóra Húsasmiðjunnar
Húsasmiðjan hf. er stærsti söluaðili
byggingarvara á Íslandi og eitt af 25
stærstu fyrirtækjum landsins. Húsa-
smiðjuverslanir eru 21 á landsvísu.
Í verslunum okkar höfum við á
boðstólnum yfir 80.000 vörutegundir.
Hjá Húsasmiðjunni starfa að jafnaði um
750 manns á öllum aldrei. Við leggjum
mikla áherslu á að starfsmenn eigi
þess kost að eflast og þróast í starfi. Umsækjendur skulu senda tölvupóst til Guðrúnar Kristinsdóttur, starfsmannastjóra Húsasmiðjunnar, gudrunk@husa.is, fyrir 9. mars.
Einnig er hægt að skila inn umsóknum til Guðrúnar á aðalskrifstofur félagsins í Holtagörðum við Holtaveg, 104 Reykjavík.
www.husa.is
Um Húsasmiðjuna
Húsasmiðjan er ört vaxandi, 50 ára gamalt fyrirtæki sem er leiðandi á byggingavöru- og heimilsvörumarkaði fyrir einstaklinga og
fyrirtæki í smásölu og heildsölu.
Húsasmiðjan er eitt stærsta fyrirtæki í smásölu á Íslandi, eitt stærsta innflutningsfyrirtæki landsins og í hópu stærstu fyrirtækja landsins miðað við veltu.
Húsasmiðjan rekur 31 verslun um allt land undir vörumerkjunum Húsasmiðjan, EGG, Blómaval, Ískraft og HG Guðjónsson.
Húsasmiðjan hefur þá stefnu að ráða starfsmenn í hvert starf m.t.t. þess hvernig þeir geta best leyst viðkoamandi starf af hendi, án tilits til aldurs, kyns, eða
uppruna að öðru leyti en því sem eðlilegt er, miðað við kröfur starfsins til líkamsburðar og tungumálakunnáttu.
Um starfið
Markaðsstjóri Húsasmiðjunnar er ábyrgur fyrir markaðsstefnu og markaðsáætlunum allra vörumerkja félagsins, verkstýringu markaðsdeildar, tekur þátt í
stefnumótum vörumerkja félagsins auk fjölda annarra verkefna markaðsdeildar.
Í markaðsdeild Húsasmiðjunnar starfa 8 manns í dag en deildin er ábyrg fyrir markaðsstarfi Húsasmiðjunnar, Blómavals, EGG, Ískrafts og HG Guðjónssonar.
Húsasmiðjan er einn stærsti auglýsandi landsins bæði hvað varðar auglýsingabirtingar sem og markaðsfé.
Um umsækjendur
Allir þeir sem telja sig hafa það fram að færa sem starfið krefst, eru hvattir til að sækja um.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviðið markaðsmála.
Reynsla í markaðsstýringu.
Miklir skipulaghæfileikar.
Góð enskukunátta.
Lifandi áhugi á markaðsmálum, frumkvæði og snerpa.
Húsasmiðjuskólinn
Við rekum skóla þar
sem starfsmenn sækja
námskeið. Haldin eru um
100 námskeið á ári og
námsvísir er gefinn út vor
og haust.
Starfsmannafélag
Hjá okkur er öflugt
starfsmannafélag sem sér
m.a. um skemmtanir fyrir
starfsmenn og fjölskyldur
fleirra, íþróttaviðburði og
útleigu sumarhúsa.
Heilsuefling
Fyrirtækið og starfs-
mannafélagið styðja við
heilsurækt starfsmanna.
Viðskiptakjör
Vi› bjó›um starfs-
mönnum gó› kjör.
KÓPAVOGSBÆR
Félagsþjónusta
Kópavogs
Persónulegur ráðgjafi óskast 3 - 4 daga í
viku seinni hluta dags, virka daga.
Allar nánari upplýsingar veitir Dagný Björk
mánudag og fimmtudag frá kl. 9:00 til 16:00 í
síma 570-1400. Netfang: dagny@kopavogur.is
Umsóknum skal skilað á þar til gerð eyðublöð
sem liggja frammi í afgreiðslu
Félagsþjónustu Kópavogs,
Fannborg 4.
Hvetjum karla jafnt
sem konur til að
sækja um starfið.