Fréttablaðið - 04.03.2007, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 04.03.2007, Blaðsíða 20
Orkuveita Reykjavíkur óskar eftir að ráða Kynningarfulltrúa: Orkuveita Reykjavíkur er framsækið þjónustufyrirtæki sem aflar og dreifir vistvænni orku á sem hagkvæmastan hátt og í sátt við umhverfið. Á þjónustusvæði fyrirtækisins býr meira en helmingur íslensku þjóðarinnar. Stefna Orkuveitunnar er að veita viðskiptavinum sínum bestu mögulegu þjónustu og sjá þeim fyrir ódýrri orku sem framleidd er úr endurnýjan- legum íslenskum orkulindum. Þannig stuðlar fyrirtækið að aukinni notkun hreinnar innlendrar orku og leggur um leið sitt af mörkum til nýsköpunar og framfara í landinu. Orkuveitan er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður fólks með mikla þekkingu. Fyrirtækið leitast við að vera í fremstu röð hvað snertir öryggi og vinnuumhverfi og möguleika starfsfólks við að samræma vinnu og fjölskylduábyrgð eins og kostur er. Það er stefna Orkuveitu Reykjavíkur að auka hlut kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum innan fyrirtækisins. Fyrirtækið er: Sveigjanlegt, það lagar sig að breyttum aðstæðum Sýnir frumkvæði og er opið fyrir nýjungum Sækir fram af eldmóði Traust og starfar í sátt við umhverfið ÍS L E N S K A /S IA .I S /O R V 3 65 40 0 3/ 07 Kynningar- og upplýsingamál: Umsýsla og almannatengsl Orkuveitu Reykjavíkur vill ráða fólk til starfa við upplýsinga- og kynningarmiðstöð í Hellisheiðarvirkjun. Störfin felast í að kynna starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur og Hellisheiðarvirkjun fyrir gestum virkjunarinnar. Kynningarfulltrúi skal hafa frumkvæði að því að koma Orkuveitu Reykjavíkur á framfæri og ýta undir jákvæða ímynd fyrirtækisins. Menntunar og hæfniskröfur: • Starfsmaður skal búa yfir hæfni í mannlegum samskiptum, sjálfstæði í vinnu- brögðum, frumkvæði, þjónustulund, jákvæðni og snyrtimennsku. • Menntun sem nýtist í starfi, háskólamenntun æskileg. • Tungumálakunnátta. Góð færni í íslensku og ensku nauðsynleg, kostur að hafa færni í fleiri tungumálum. Unnið verður á vöktum. Upplýsingar og umsjón með úrvinnslu umsókna hefur Sólrún Kristjánsdóttir (solrun.kristjansdottir@or.is) hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Umsóknarfrestur er til og með 18. mars 2007. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um störfin á heimasíðu Orkuveitu Reykjavíkur: www.or.is og senda jafnframt ferilskrá. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Fyrst þú ert að lesa þetta þá hefurðu fengið Fréttablaðið. En til vonar og vara skaltu klippa þetta símanúmer út og hringja í það ef Fréttablaðið kemur einhverntímann ekki. 550 5600 Ekkert blað? - mest lesið F í t o n / S Í A F I 0 1 3 9 0 1 – SMÁAUGLÝSINGAR SEM ALLIR SJÁ - stærsta bílasala landsins? Fréttablaðið Á HVERJUM DEGI FÆRÐ ÞÚ EINA AF STÆRSTU BÍLASÖLUM LANDSINS INN UM BRÉFALÚGUNA ÞÍNA! SPARAÐU TÍMA OG FYRIRHÖFN MEÐ ÞVÍ AÐ FINNA BESTA BÍLINN Á MEÐAN ÞÚ SVOLGRAR Í ÞIG MORGUNKAFFIÐ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.