Fréttablaðið - 25.03.2007, Síða 2

Fréttablaðið - 25.03.2007, Síða 2
Sigurður Kári, ertu búinn að tryggja þér miða? Laxnesbúið ehf. á Laxnesi II vill að bæjaryfirvöld breyti aðalskipulagi þannig að ekki verði lengur vatnsverndarsvæði í kringum vatnsbólið Guddulaug í Mosfellsdal. Aðaleigandi Laxnesbúsins er Nýsir ehf. Fyrir- tækið hyggur á uppbyggingu stórs íbúðahverf- is á um 120 hekturum. Vill félagið fá vatnsvernd aflétt af 24 hektara svæði umhverfis Guddu- laug. Lindin er varavatnsból fyrir Mosfellsbæ. Nóbelsskáldið Halldór Laxness gat um upp- sprettuna Guddulaug í æskuminningabók sinni Í túninu heima: „Í dalnum trúðu allir á þessa lind; einlægt ef einhver var sjúkur var sótt vatn í þessa lind. Faðir minn trúði á þessa lind. Ég trúði líka á þessa lind. Þegar faðir minn var hætt kominn af lúngnabólgu í fyrra sinnið var ég látinn sækja vatna handa honum í þessa lind tvisvar á dag og honum batnaði,“ skrifaði Halldór. Haraldur Líndal Haraldsson, framkvæmda- stjóri Nýsis þróunarfélags, segir skipulagningu nýja Laxnes-hverfisins alla á frumstigi. Hugs- anlega verði þar eingöngu hálfs til eins hektara einbýlishúsalóðir en ef till vill blönduð íbúða- byggð. Varðandi vatnsverndina segist Haraldur vongóður um að orðið verði við óskum félags- ins. „Við værum ekki að sækja um nema vegna þess að við teljum ekki óeðlilegt að fara fram á þetta,“ segir hann. Vatn er notað úr Guddulaug á álagstímum þegar vatnsbólið í Laxnesdýjum þar ofar í sveit- inni fullnægir ekki þörfum Mosfellinga. Annars fá íbúar bæjarins tvo þriðju hluta neysluvatns síns frá Reykvíkingum. Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar frestaði því á síðasta fundi að taka afstöðu til erindis Laxnes- búsins. Haraldur Sverrisson, formaður nefnd- arinnar, segist ekki eiga von á því að aðalskipu- laginu verði breytt í bráð. „Það er dálítið langt í það, held ég,“ segir formaðurinn. Hestabóndinn Þórarinn Jónasson á Laxnesi I tekur enn dýpra í árinni: „Þetta eru bara draum- órar. Hér er vatnsverndarsvæði og landið er til landbúnaðarnota. Því verður ekki breytt í fyrir- sjánlegri framtíð.“ Vilja íbúðahverfi á vatns- bóli í Laxnesi í Mosfellsdal Laxnesbúið ehf. vill að vatnsvernd verði aflétt á svæði umhverfis vatnsbólið Guddulaug í Mosfellsdal til að byggja íbúðir. Draumórar, segir bóndinn á Laxnesi. Halldór Laxness sagði lindina hafa lækningamátt. Íranar fullyrtu í gær að bresku sjóliðarnir fimmtán sem Íranar handtóku á föstudag á Persaflóa hefðu játað að hafa siglt í leyfisleysi inn í íranska lögsögu. Íranar saka Breta um að hafa reynt að ráðast inn í landið. Sjóliðarnir hafa verið fluttir til Teheran. Bresk stjórnvöld krefjast þess að sjóliðunum verði sleppt úr haldi tafarlaust. Þeir hafi ekki verið við störf í íranskri landhelgi, heldur íraskri, en Íranar og Írakar eru ósammála um það hver hefur yfir- ráð yfir svæðinu. Háttsettur foringi í Íraksher sagði í gær að samkvæmt upp- lýsingum hans hefðu bresku sjó- liðarnir ekki verið í íraskri land- helgi. Evrópusambandið krafð- ist þess einnig í gær að Bretunum yrði sleppt án tafar. Sjóliðarnir bresku höfðu verið við leit í írönsku kaupskipi vegna gruns um bílasmygl þegar írönsk skip umkringdu báta þeirra og fylgdu þeim með vopnavaldi til íranskrar hafnar. Málið eykur enn á spennuna milli Írans og Vesturlanda vegna kjarnorkuáforma Írana og ásak- ana Bandaríkjamanna þess efnis að Íranar sæju herskáum sjíum í Írak fyrir vopnum. Íranskir harðlínumenn hafa talað fyrir því að sjóliðunum verði ekki sleppt nema Vesturveld- in falli frá fyrirhuguðum refsiað- gerðum gegn Írönum vegna kjarn- orkuáforma þeirra. Segja Breta hafa reynt innrás Alvarlegt vinnuslys varð fyrir utan kerskála við álver Norðuráls á Grundartanga í gær. Starfsmaður varð fyrir lyftara og fékk tönn lyftarans í fótinn. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til og var maðurinn fluttur á Landspítalann við Hringbraut. Ekki er ljóst hver tildrög slyss- ins voru en slæmt veður var á svæðinu í gær. Maðurinn gekkst undir aðgerð á Landspítalanum. Að sögn lækn- is missti maðurinn annan fótinn en líðan hans var stöðug. Hann hlaut ekki aðra áverka við slysið. Missti fót í vinnuslysi Hluti hraðbrautar í Taívan verður girtur af á næstu dögum til að rýma fyrir flökku- fiðrildum sem fljúga frá syðri hluta landsins til þess nyrðri í lok mars ár hvert. Fiðrildategundin, sem hefur einkennandi hvíta depla á purp- urabrúnum vængjunum, lifir að- eins á Taívan og talið er að stofn- inn telji einungis tvær milljónir fiðrilda. Yfirvöld munu einnig setja upp net á hraðbrautinni til að fá fiðr- ildin til að fljúga hærra og forð- ast bílana á brautinni. Einnig verða sett upp útfjólublá flóðljós til að leiðbeina þeim. Bílarnir víkja fyrir fiðrildum Á vefsíðu tileink- aðri drykkjukeppni sem halda átti á skemmtistaðnum Pravda í gær- kvöldi segja að- standendur hennar litla hættu fólgna í uppátækinu. Mesta mögulega magn sem einn keppandi geti drukkið séu tveir lítrar af bjór, eða 1,5 lítrar af bjór og eitt snafsskot. Auk þess verði þriðja árs hjúkrunarfræði- nemi á staðnum. Matthías Halldórsson landlækn- ir ritaði varnaðarorð um keppnir sem þessa á vefsíðu sína á föstu- dag, þar sem hann lýsti þeim sem mjög hættulegum. Ölgerð Egils Skallagrímssonar sendi frá sér yfirlýsingu þar sem fyrirtækið sór af sér öll tengsl við keppnina. Segja keppnina ekki hættulega „Þessi mikli fjöldi hlýtur að skýrast af því að skrár þeirra flokka sem eiga sér langa prófkjörshefð eru orðnar mjög bólgnar og það þarf að taka til í þeim,“ segir Steingrímur J. Sig- fússon, formaður Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs, um út- tekt Fréttablaðsins á flokkskrám stjórnmálaflokkanna. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins eru rúmlega 85 þúsund Íslendingar skráðir í stjórnmálaflokk. Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, tekur í sama streng og Steingrím- ur. Hann segir að vel hafi verið tekið til í flokksskrá Frjálslyndra fyrir landsfund og því séu tölur um flokksmenn raunsannar. Arnbjörg Sveinsdóttir, þing- flokksformaður Sjálfstæðis- flokksins, segir að þessi mikli fjöldi flokksbundinna hljóti að skýrast af almennum stjórnmála- áhuga Íslendinga. Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Sam- fylkingarinnar, segir hins vegar að frekar hafi dregið úr flokks- hollustunni en hitt „Það geta þó verið ákveðin meðmæli með flokkunum hversu margir vilja vera flokksbundnir,“ segir Ágúst. í Framsóknarflokkinn eru skráðir 12.188 félagsmenn. Samt sem áður mælist flokkurinn að- eins með 9,4 prósenta fylgi í nýj- ustu skoðanakönnum Fréttablað- ins. Guðni Ágústsson, varafor- maður Framsóknarflokksins, segir að stærsti hluti flokks- manna sé virkur í flokknum. „Í mínu prófkjöri varð ég var við að langstærsti hluti þeirra sem voru skráðir í flokkinn mætti á kjör- stað,“ segir Guðni.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.