Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.03.2007, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 25.03.2007, Qupperneq 4
H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 8 3 0 5 Nauðsynlegur! Stjórn Mjólku áformar að flytja afurðastöð fé- lagsins frá Reykjavík í Borgar- nes, að því er segir í fréttatilkynn- ingu. Sölu- og dreifingarstarfsemi Mjólku verður þó ekki flutt frá Reykjavík. Áformað er að ný af- urðastöð verði um 2.000 fermetr- ar að stærð, og koma tvær lóðir í Borgarnesi helst til greina undir starfsemina. Ástæður flutnings- ins eru sagðar þær að núverandi húsnæði sé orðið of lítið til að hýsa starfsemi félagsins. Auk þess leggi fleiri mjólkurbændur á Vest- urlandi nú afurðir sínar inn hjá Mjólku. Ekki kemur fram hvenær af flutningnum verður. Reisir nýja stöð í Borgarnesi Fimm prósent þeirra sem afstöðu tóku í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins segjast myndu kjósa Íslandshreyf- inguna. Þetta er fyrsta könnunin sem gerð er eftir að Íslandshreyf- ingin boðaði framboð sitt á fimmtu- daginn. Ef þetta yrði niðurstaða kosninga myndi flokkurinn fá þrjá þingmenn kjörna, vegna reglna um jöfnunarsæti sem segja að framboð þurfi að ná fimm prósenta fylgi á landsvísu til að ná jöfnunarsæti. Hið nýja framboð virðist höfða frekar til karla en kvenna; 6,4 pró- sent karla segjast myndu kjósa listann en 3,3 prósent kvenna. Þá segjast 5,3 prósent kjósenda á höfuðborgarsvæðinu myndu kjósa Íslandshreyfinguna en 3,1 prósent íbúa landsbyggðarkjördæmanna þriggja. Vikmörk reiknast 2,0 prósentu- stig, sem þýðir að með 95 prósenta vissu er hægt að segja að fylgi flokksins sé á bilinu 3,0 prósent til 7,0 prósent. Vegna fimm prósenta reglunnar myndi Frjálslyndi flokkurinn hins vegar ekki fá neinn jöfnunarmann þar sem fylgi flokksins mælist nú 4,4 prósent. Ekki er loku fyrir það skotið að flokkurinn fengi þing- mann kjördæmakjörinn, til dæmis í Norðvesturkjördæmi, en líklegt væri að flokkurinn fengi engan mann kjörinn. Nokkur munur er á fylgi flokksins eftir búsetu, en 3,1 prósent íbúa á landsbyggðinni segj- ast myndu kjósa flokkinn, en 5,3 prósent íbúa á höfuðborgarsvæð- inu. Lítill munur er eftir kyni. Frjálslyndi flokkurinn fékk 7,4 prósent atkvæða í síðustu kosning- um og fjóra þingmenn kjörna og mældist með 5,7 prósenta fylgi í könnun blaðsins 10. mars. Vikmörk við fylgi Frjálslyndra reiknast nú 1,8 prósentustig. Vinstri græn hafa verið á miklu flugi að undanförnu, en fylgi flokks- ins minnkar nú, úr 25,7 prósent- um í síðustu könnun í 23,3 prósent nú. Vikmörk eru 3,8 prósentustig. Miðað við það fylgi fengi flokkur- inn sextán þingmenn kjörna. Flokk- urinn hlaut 8,8 prósent atkvæða í síðustu kosningum og fimm þing- menn kjörna. Konur eru líklegri til að styðja flokkinn en karlar. 27,1 prósent kvenna segist myndu kjósa flokk- inn, en 20,2 prósent karla. Þá er meira fylgi við Vinstri græn á landsbyggðinni nú en á höfuð- borgarsvæðinu. 26,9 prósent íbúa á landsbyggðinni segjast myndu kjósa Vinstri græn, en 20,8 prósent íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Í síð- ustu könnun blaðsins sögðust 26,8 prósent íbúa á höfuðborgarsvæð- inu myndu kjósa Vinstri græn. Fylgi Samfylkingar eykst um tæplega tvö prósentustig frá síð- ustu könnun blaðsins. Nú segjast 21,0 prósent myndu kjósa flokk- inn og yrðu þingmenn Samfylking- ar því fjórtán. Vikmörk eru 3,7 pró- sentustig. Samfylking hlaut 30,9 prósent atkvæða í síðustu kosning- um og tuttugu þingmenn kjörna. Mest eykst fylgið á höfuðborgar- svæðinu, þar sem 23,9 prósent íbúa segjast myndu kjósa Samfylkingu, en 16,6 prósent íbúa á landsbyggð- inni eru sama sinnis. Þá segjast 22,4 prósent kvenna styðja flokk- inn en 19,9 prósent karla. 36,1 prósent segist myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn og dalar fylgi flokksins um tæp þrjú prósentustig frá síðustu könnun blaðsins. Þing- menn flokksins yrðu samkvæmt því 24. Vikmörk eru 4,3 prósentu- stig. 33,7 prósent kusu flokkinn í síðustu kosningum og hlaut flokk- urinn 22 þingmenn. Nokkuð fleiri karlar en konur styðja flokkinn; 39,0 prósent karla en 32,4 prósent kvenna. Þá seg- ist 39,1 prósent íbúa á höfuðborg- arsvæðinu styðja flokkinn og 31,6 prósent íbúa á landsbyggðinni. Fylgi Framsóknarflokksins stend- ur í stað frá síðustu könnun og er nú 9,4 prósent. Vikmörk eru 2,6 prósentustig. Samkvæmt því yrðu framsóknarþingmennirnir sex. 17,7 prósent greiddu Framsókn- arflokknum atkvæði sitt í síðustu kosningum og hlaut flokkurinn tólf þingmenn kjörna. Mikill munur er á fylgi flokks- ins eftir búsetu. 17,1 prósent íbúa á landsbyggðinni segist myndu kjósa Framsóknarflokkinn en 4,2 prósent íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Hringt var í 800 manns á kosn- ingaaldri laugardaginn 24. mars og skiptust svarendur jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir kjördæmum. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til kosninga nú? 59,6 prósent svarenda tóku af- stöðu til spurningarinnar. 34,8 pró- sent sögðust óákveðin. Dregur saman með S og V Fylgi Samfylkingar eykst aðeins, samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins, en Framsóknarflokkur stendur í stað. Fimm prósent segjast myndu kjósa Íslandshreyfinguna. Fylgi annarra flokka dalar. Þrír ungir karl- menn voru handteknir í Reykja- vík í fyrrinótt. Mennirnir voru að pakka fíkniefnum í neysluumbúð- ir þegar lögregla gómaði þá í íbúð í Vesturbænum. Í íbúðinni fundust meðal annars 250 grömm af hassi, sex- tíu grömm af maríjúana, tuttugu e-töflur og tuttugu grömm af ætl- uðu kókaíni. Þá lagði lögregla hald á um 160 þúsund krónur en peningarnir eru taldir tengjast fíkniefnasölu. Mennirnir gistu fangageymsl- ur en var sleppt í gær að loknum yfirheyrslum og telst málið upp- lýst. Stúlka um tvítugt var einnig yfirheyrð vegna málsins. Karl Steinar Valsson aðstoðar- yfirlögregluþjónn segir að 107 fíkniefnamál hafi komið inn á borð fíkniefnadeildar lögreglunn- ar á höfuðborgarsvæðinu það sem af er þessu ári. „Þetta eru vissu- lega mörg mál en vonandi segir þetta ekki til um það sem koma skal á næstu mánuðum,“ segir Karl en í fyrra hafði lögreglan í Reykjavík afskipti af 200 fíkni- efnamálum. Voru að pakka fíkniefnum Aflabrögð minni báta fyrir Suður- og Vestur- landi eru með afbrigðum góð í öll veiðarfæri. Línubátar á Faxa- flóa og Breiðafirði hafa mokveitt þorsk síðan í nóvember. Netabát- ar á hefðbundinni slóð fyrir Suð- urlandi geta tekið mikið magn af þorski og ufsa á stuttum tíma. Stöðug bræla hefur þó gert sjó- mönnum lífið leitt og hefur það komið illa niður á minnstu bátun- um, sem hafa legið í höfn dögum saman vegna ógæfta. Guðmundur Þorkelsson, skip- stjóri á netabátnum Friðriki Sig- urðssyni ÁR 17 frá Þorlákshöfn, hefur verið við ufsa- og þorskveið- ar undanfarnar vikur á Selvogs- banka. „Það hefur verið óhemju- veiði. Síðasti ufsaróðurinn var rúmlega fimmtíu tonn. Þá fórum við í þorsk og það er búið að vera mok. Ég veit til þess að menn eru að fá góðan afla í hálfónýtar neta- druslur.“ Guðmundur segir að ver- tíðin í ár fari í flokk þeirra allra erfiðustu hvað veðurlag snertir. Baldur Kristinsson, skipstjóri á dragnótabátnum Rifsara SH 70 frá Rifi, segir að allir séu á flótta undan þorski á Breiðafirði. „Við leitum oft að ýsu frameftir degi en tökum svo þorsk í einni, tveim- ur sköfum ef maður finnur ekk- ert annað. Það er vandalaust að veiða þorsk og allir sjómenn eru sammála um að hann sé auðveidd- ur í öll veiðarfæri.“ Baldur hefur fregnir af mikilli fiskgengd við Vesturland, bæði á djúpslóð og á grunnu vatni. Mikill þorskur um allan sjó
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.