Fréttablaðið - 25.03.2007, Síða 8
Lykill að fortíðinni
Landnámssýningin við Aðalstræti veitir gestum tækifæri til
að skyggnast inn í lífið á landnámsöld. Miðpunktur sýningar-
innar er skálarúst frá 10. öld. Einnig má þar finna fornleifar
frá því um 871 og eru það elstu mannvistarleifar sem fundist
hafa á Íslandi.
Einstök margmiðlunartækni gerir gestum kleift að ímynda
sér hvernig lífi heimilisfólks í fyrstu byggð Reykjavíkur var
háttað og hvernig umhverfi og landslag borgarinnar var við
landnám.
Aðalstræti 16
www.reykjavik871.is
Allt bendir til þess að
verð á grænmeti hækki í sumar
þegar verðtollur upp á allt að
þrjátíu prósent verður tekinn
upp á grænmeti, til dæmis jökla-
salati, frá ríkjum utan Evrópu-
sambandsins.
Fyrir fimm árum var tollur-
inn afnuminn tímabundið. Upp-
töku hans hefur verið frestað
í tvígang en kemur nú til fram-
kvæmda.
Guðmundur B. Helgason, ráðu-
neytisstjóri landbúnaðarráðu-
neytisins, segir að í samkomulagi
Íslands og Evrópusambandsins
frá 1. mars síðastliðnum hafi fal-
ist að grænmeti frá ríkjum utan
sambandsins skuli tolllagt.
Ekki er að fullu ljóst hvernig
útfærsla tollunarinnar verður en
Guðmundur segir unnið að mál-
inu.
„Við höfum líka sett af stað
vinnu sem miðar að því að upp-
færa fríverslunarsamninga við
þriðju ríki,“ segir hann og telur
hugsanlegt að hægt verði að
kaupa grænmeti frá ríkjum sem
Íslendingar hafa fríverslunar-
samninga við, til dæmis Mexíkó
og Ísrael, í gegnum Bandaríkin
án þess að tollur verði lagður á.
Á síðasta ári var flutt inn
grænmeti í þessum tilteknu
vöruflokkum fyrir tæpan millj-
arð króna. Þar af kom um fjórð-
ungur frá löndum utan ESB.
Guðrún R. Jónsdóttir á Hag-
stofunni segir bróðurpart hefð-
bundins grænmetis sem Íslend-
ingar neyta koma frá ESB-ríkj-
um og hækka því ekki. „Tollar af
innfluttu grænmeti voru lagðir
niður árið 2002. Gulrætur, kart-
öflur og sveppir voru þó ennþá
tolluð til þess að styðja við ís-
lenska framleiðslu. Þessar vörur
bera nú þegar vörutoll og hækka
því ekki í verði,“ segir Guðrún.
Sigurður Þ. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka verslun-
ar og þjónustu, segir að tollurinn
þýði að vörur sem eru upprunn-
ar í Bandaríkjunum, eða löndum
utan Evrópusambandsins, taki á
sig verðtoll yfir sumarmánuðina,
þegar sömu eða svipaðar vörur
séu ræktaðar utandyra á Íslandi.
Máni Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Hollt og gott, sem
flytur inn grænmeti, segir tíð-
indin slæm enda þýði þrjátíu
prósenta tollur þrjátíu prósenta
verðhækkun. „Við höfum mót-
mælt þessari hækkun. Þetta er
mjög slæmt,“ segir Máni.
Ekki eru lagðir tollar á ávexti
þar sem ávextir eru almennt
ekki ræktaðir á Íslandi.
Verð á grænmeti
hækkar í sumar
Verðtollur leggst á grænmeti frá ríkjum utan Evrópusambandsins frá 1. júlí. Verð
á jöklasalati, lausu salati og laukum kann að hækka um allt að þrjátíu prósent.
Tegundir á borð við gulrætur, sveppi og kartöflur bera vörutoll og hækka ekki.
Brotist var inn í
íbúðarhús í austurborginni að-
faranótt laugardags. Þjófavarnar-
kerfi fór í gang og þjófurinn
hljóp á brott tómhentur.
Lögreglunni tókst að rekja fót-
spor mannsins í nýföllnum snjón-
um og eftir að elst hafði verið við
sporin í rúma klukkustund fannst
þjófurinn. Hann var handtekinn og
fékk að gista fangageymslur.
Lögregla rakti
fótspor þjófsins
Lögregla í Króatíu leit-
aði logandi ljósi að nærsýnum
króatískum ellilífeyrisþega í vik-
unni eftir að maðurinn sótti óvart
rangt barn á leikskóla og hafði
það á brott með sér.
Hinn sjötugi Luka Karlov-
ic ætlaði að sækja Petar, fimm
ára sonarson sinn, en þegar kall-
að var á Petar kom annar dreng-
ur fram, sem einnig hét Petar,
og Karlovic ók með hann á brott.
Mistökin uppgötvuðust hálftíma
síðar, þegar faðir drengsins kom
að sækja hann.
„Ég er farinn að sjá illa og
hafði ekki séð Petar í hálft ár,“
sagði Karlovic. „Mér fannst hann
hafa breyst, en hvaða börn gera
það ekki?“
Sótti rangt
barn á leikskóla
Hverju fagnaði Sundhöllin í
Reykjavík á föstudaginn?
Hvaða Íslendingur er til-
nefndur til dönsku auglýsinga-
verðlaunanna Guldkorn?
Hvernig útskýra Íranar
handtöku fimmtán breskra
sjóliða á föstudag?
Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson borgarstjóri segir skýr
svör enn skorta frá heilbrigðis-
og tryggingaráðuneytinu varð-
andi þrjátíu ný pláss fyrir dag-
þjálfun alzheimersjúklinga. Þetta
kemur fram í svari borgarstjór-
ans við fyrirspurn borgarráðs-
fulltrúa Samfylkingarinnar, sem
vísa til þess að Félag áhugafólks
og aðstandenda alzheimersjúkra
hafi óskað eftir atbeina borgar-
innar við að útvega húsnæði fyrir
þjálfunina.
Borgarstjóri segir borgina hafa
leitað upplýsinga hjá ráðuneytinu
en ekki fengið skýr svör: „Þegar
skýr afstaða ráðuneytisins liggur
fyrir mun Reykjavíkurborg ekki
láta sitt eftir liggja.“
Óskýr svör frá
ráðuneyti tefja
Hjálmar R. Ragnarsson,
rektor Listaháskóla Íslands, hefur
ítrekað við borgaryfirvöld ósk um
að skólinn fái lóð fyrir nýbygg-
ingu.
„Reykjavíkurborg hefur dyggi-
lega stutt við uppbyggingu ann-
arra háskóla sem hafa haslað sér
völl innan borgarmarkanna. Há-
skóli Íslands hefur lengi haft til
umráða feikilegt flæmi lands
á kjörlandi í Vatnsmýri og Há-
skólinn í Reykjavík hefur nýver-
ið fengið til frjálsrar ráðstöfunar
verðmætt landsvæði á besta stað í
borginni sem hann getur ráðstaf-
að bæði til eigin nota og skyldr-
ar starfsemi. Listaháskóli Íslands
telur sig geta fært til borgarinn-
ar eigi minni verðmæti en hvor
þessara skóla,“ segir í bréfi rekt-
ors til borgarstjóra.
Biður enn um
nýja skólalóð
Kæru Náttúru-
verndarsamtaka Íslands vegna
framkvæmda Kópavogsbæjar
í Heiðmörk var vísað frá á
fimmtudaginn.
Úrskurðarnefnd skipulags-
og byggingarmála telur að þar
sem samtökin eigi ekki aðild að
kærumálum á sviði skipulags-
og byggingarmála, hafi þau ekki
lagalegar forsendur til að kæra
framkvæmdaleyfið.
Að auki hafi Skipulagsstofn-
un ekki talið framkvæmdirn-
ar háðar mati á umhverfisáhrif-
um, en það sé forsenda aðildar
umhverfissamtaka.
Heiðmerkur-
kæru vísað frá
Stjórn Landssambands
hestamannafélaga ætlar að álykta
um málefni hestamannafélagsins
Harðar á stjórnarfundi á fimmtu-
dag. Félagið hefur sætt harðri gagn-
rýni fyrir að fá tvær konur til að
fækka fötum á karlakvöldi félags-
ins í febrúar, körlunum til skemmt-
unar. Haraldur Þórarinsson, for-
maður stjórnar Landssambands
hestamannafélaga, sagði samband-
ið þó lítið geta gert. „Ég hef farið
yfir reglurnar og við höfum engar
heimildir til þess að ávíta félag-
ið samkvæmt lögum okkar,“ sagði
Haraldur. Hann sagði landssam-
bandið ekki geta gegnt hlutverki
siðgæðisvarðar fyrir aðildarfélög.
„Hins vegar hörmum við þetta, því
okkur finnst þetta alls ekki viðeig-
andi,“ sagði Haraldur, sem þótti
gagnrýnin réttmæt.
Félagskona í Herði gagnrýndi
fyrirkomulagið á karlakvöldinu í
nafnlausu bréfi sem birtist á síðu
hestamanna, www.847.is, fyrr í vik-
unni. Femínistafélagið tók undir
mótmæli hennar, og í pistli á heima-
síðu ÍSÍ gagnrýndi Stefán Konráðs-
son, framkvæmdastjóri ÍSÍ, hátt-
ernið harðlega. „Við getum ekki
látið svona uppákomur viðgangast
í hreyfingu sem stendur fyrir for-
varnir, heilbrigði og góðan félags-
anda,“ skrifar Stefán. „Vilji menn
perrast á þessu sviði er best að þeir
geri það á öðrum vettvangi.“
Formaður Harðar, Marteinn
Hjaltested, vildi ekki tjá sig um
málið í samtali við Fréttablaðið.
„Mér er alveg sama hvað fólk tuðar,
ég segi ekki orð,“ sagði hann.
Formaður LH harmar málið