Fréttablaðið - 25.03.2007, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 25.03.2007, Blaðsíða 20
Ég átti svo góða æsku og stormalaust líf að ég hef kannski tekið dramatíkina út í myndun- um mínum, sem þóttu ekki nógu „commercial“. V era Pálsdóttir situr ein í sófa á Kaffi Sólon, klædd svörtum fötum og með frumlega prjónahúfu á höfðinu. Klassísk, Parísar- dömuleg og látlaus í senn þar sem hún reykir langa, mjóa sígar- ettu og dreypir á stórum kakóbolla full- um af rjóma. Hún er með hlýtt og leiftr- andi bros sem ljómar af kímni og lífs- reynslu. „Ég hef alltaf verið dálítill flakkari í mér,“ útskýrir Vera. „Ég eyddi nokkrum æskuárum í Noregi og svo eftir menntaskólann þar byrjaði ég í sálfræði hér heima. Ég hætti í henni og hélt til Bandaríkjanna til að læra ljósmyndun. Í Brooks-skólanum í Santa Barbara lærði ég aðallega auglýsingaljósmyndun, en ég hafði alltaf haft mikinn áhuga á sálfræð- inni á bak við auglýsingar.“ En hvernig endaði hún í París? Vera hlær. „Ég ætlaði bara að flytja aftur heim, hafði séð það í hillingum. En eftir níu mánuði heima þá fékk ég algera inni- lokunarkennd og þráði að fara út aftur. Ég valdi París bara vegna rómantíkurinn- ar sem umlykur hana og fegurð franska tungumálsins. Ég skráði mig á frönsku- námskeið í Sorbonne en ákvað svo að fara í mastersnám í ljósmyndun. En eins og allt í mínu lífi þá er lítið „plan“ í gangi, hlutirnir bara gerast af sjálfu sér, og mér var ráðlagt að hætta áformum um frek- ara nám og hella mér bara út í vinnu.“ Hún útskýrir að á þessum árum hafi allt snúist um að ná sér í sem mesta reynslu sem fyrst, og vinna með rétta fólkinu. Ég var mjög heppin. Ég fékk góða vinnu hjá frægu stúdíói sem heitir Studio Rouchon. Ég vann þar sem „stagiére“ (manneskja sem vinnur kauplaust fyrir reynslu) í níu mánuði. Ég vann eins og brjálæðingur og fékk ekki krónu fyrir, bara ókeypis fæði. En svo þegar það losn- aði pláss fyrir aðstoðarmanneskju í stúd- íóinu þá fékk ég stöðuna. Ég byrjaði hjá ljósmyndara sem heitir Christophe Kutn- er og var mjög þekktur á þessum tíma. Hann hafði til dæmis unnið mikið fyrir ítalska Vogue sem þykir mesta biblía tískuljósmyndunar. Ég var svo heppin að fá að vinna með frábæru fólki á þess- um árum – til að mynda Helmut Newton árið 1994.“ Vera segir hann hafa verið eftirminnilegan karakter vegna þess lát- leysis sem hann bjó yfir. „Ég var vön því að vinna með þessum frægu tísku- ljósmyndurum þar sem öllu var tjald- að, ótal ljósum og miklum mannskap, en Newton bara mætti með eina litla tösku, gerði sitt og útkoman var auðvitað snilld. Hann var afskaplega mikið prúðmenni og kom eins fram við alla. Það var frá- bær reynsla fyrir mig að vinna sem að- stoðarkona á þessum sex árum. Ég var ekkert að flýta mér út í eigin ljósmynd- un, bara naut augnabliksins. Þetta var tímabilið þegar ofurfyrirsæturnar komu á sjónarsviðið – og það var gaman að upp- lifa það. Manni fannst þær sumar eins og geimverur, þær voru svo óraunveruleg- ar í útliti, eins og til dæmis Nadja Au- ermann. Ég man eftir skemmtilegu at- viki þegar við vorum að mynda Claudiu Schiffer, en hún var þá með töframannin- um David Copperfield. Meðan á tökunni stóð læstist hann inni á klósetti og uppi varð fótur og fit. Þetta þótti afar fyndið að þessi frægi sjónhverfingamaður sem er alltaf að hlekkja sig á sviði skyldi ekki komast út af klósetti! En ég man líka að Elle Macpherson var afskaplega hryss- ingsleg við fólk og Naomi Campbell var afar óörugg.“ Ofurfyrirsæturnar voru vissulega dívur að sögn Veru og létu allt- af bíða eftir sér, klukkustundum saman. „Ef þær áttu að mæta átta um morg- un þá komu þær þrjú um eftirmiðdag- inn. Ég eyddi öllum tímanum minum í að bíða. Ég byrjaði að reykja á þessum tíma- punkti!“ Vera fór í endalaus ferðalög með Kutner þegar hún var orðin það sem kallast „first assistant“. Maður var alltaf á ferð og flugi, fór mikið til New York og í raun um allan heim til að taka myndir. Það var óneitan- lega gaman að fá að upplifa það, og að fá að búa á lúxushótelum, en maður getur fengið leið á því eins og öllu. Stundum langaði mann bara til þess að fara heim til sín og borða skál af pasta með smjöri!“ Ég spyr Veru hvað sé ævintýralegasti stað- urinn sem hún heimsótti á þessum tíma. „Það var án efa ítalska eyjan Stromb- oli. Það er alger paradís á jörð. Þar eru engir túristar og ég var að vinna þar með svo skemmtilegum hópi. Og svo er fyrsta skiptið sem ég fór til Marokkó mér minn- isstætt. Mér fannst eins og ég væri stödd í Tinnabók.“ Árið 1998 hætti Vera að vinna hjá Kutn- er þar sem hún vildi einbeita sér að eigin ljósmyndum. „Ég hafði tekið sjálf fyrir nokkur blöð úti og fannst ég loks tilbúin til þess að hella mér út í óvissuna. Ég er nefnilega ekki svona „hornamanneskja“ eins og allir eru í þessum heimi. Maður þarf að geta stangast á við fólk, berjast til þess að ná frama. Í tískubransanum gengur þetta allt út á hvern þú þekkir og hvernig þú selur sjálfan þig. Ég var hins vegar alltaf sannfærð um að ég hlyti að komast áfram bara á myndunum mínum. Ég er lítið fyrir að trana mér fram. Ég fékk mér umboðsmann og í gegnum hann fékk ég fínar bókanir og fór að vinna hjá hinum ýmsu tískublöðum.“ Vera hlær að því að í byrjun hafi fólki þótt myndirnar hennar of drungalegar og of dramatískar. „Ég átti svo góða æsku og stormalaust líf að ég hef kannski tekið dramatíkina út í myndunum mínum, sem þóttu ekki nógu „commercial“. Á þessum tíma var „heroin-chic“ lúkkið alveg búið og myndir áttu að vera glaðlegar, litríkar og heilbrigðar. Ég ákvað því að taka þeirri áskorun að vinna hjá afskaplega „mains- tream“ blaði, Figaro Madame, en það er helgartímarit sem fylgir dagblaðinu Le Figaro. Mér fannst þetta ekki beint skap- andi og skemmtilegt en þetta var ofsalega góður skóli. Þarna tókst mér að fínpússa minn persónulega stíl og finna milliveg á milli „commercial“ og listrænna mynda. Eftir eitt og hálft ár þar hætti ég og ein- beitti mér eingöngu að „freelance“ verk- Eilífur Barbíleikur Ljósmyndarinn Vera Pálsdóttir er nýflutt til Reykjavíkur frá tískuborginni París. Hún á farsælan feril að baki og hefur unnið með mörgum af frægustu ljosmyndurum og fyrirsætum heims, fyrir alþjóðleg tískublöð. Anna Margrét Björnsson hitti hana yfir kaffi og sígó og fékk að heyra meira. efnum og fór að vinna fyrir blöð eins og franska og bandaríska Elle, Glamour, Seventeen og svo slatta af svona „trend“ blöðum eins og hið þýska Style and Family Tunes. Núna hefur franska Vogue „fylgst með mér“ í þrjú ár sem þykir mikill heið- ur og ég vona að ég fái að spreyta mig þar í framtíðinni.“ Nú hefur Vera kosið að vera búsett á Íslandi, að minnsta kosti í bili. „Ég kom heim í vetur með tveggja ára dóttur mína. Þegar maður eignast barn breytist aðeins forgangsröð- in. Mig langar að Sóley dóttir mín geti notið þess að vera hér í hinu ör- ugga reykvíska umhverfi og læri fullkomna íslensku. Hún er komin á leikskóla og við mæðgurnar erum afar ánægðar hér.“ En hvernig líst Veru á íslensk tímarit? „ Ég get ekki sagt að ég fylgist grannt með ís- lenskum blöðum, ég þekki aðallega þesi tímarit sem hafa alltaf komið út hérna. Eina blaðið sem mér fannst flott og öðruvísi var Núllið sem kom út fyrir löngu síðan. Hin blöðin eru bara eins og... hvað á ég að segja... einhver blöð frá litlu landi í fyrrver- andi Sovétríkjunum. Það er eitthvað mjög púkalegt við þau og það skil ég ekki, því að Ísland er svo smart að öðru leyti, og þykir svo „trendí“ er- lendis. Hér úir og grúir af flottum fatahönnuðum og skemmtilegum tískubúðum.Íslendingar hafa mikinn áhuga á tísku. Af hverju það er ekki til almennilegt tískublað hérna skil ég ekki. Það er í raun ekki til eitt ein- asta tískublað, bara blöð sem blanda tísku saman við greinar, viðtöl, pólít- ik og annað. Það er eins og það vanti ákveðna stefnu og konsept í þessi blöð. Ég er sannfærð um að það sé markaður fyrir alvöru tískublað í Reykjavík. Eins finnst mér að fólk skilji ekki hvað orðið stílisti þýðir – en góður stílisti skiptir auðvitað sköpum hvort myndir heppnast eða ekki.“ Vera segist alltaf hafa jafn- gaman af tískuljósmyndun. „Verk- efnin eru alltaf svo margbreyti- leg og stundum tek ég að mér verk- efni fyrir framúrstefnuleg blöð sem borga ekki neitt, bara af einhverri listrænni hugsjón. Vinna mín er dálít- ið eins og að vera lítil stúlka í eilífum barbíleik.“ En óttast hún ekki að hún fái bráðum leið á að vera heima, og fá aftur innilokunarkennd? „Nei,nei, alls ekki,“ hlær hún. „Reykjavík hefur breyst svo mikið síðan ég bjó hérna síðast. Það er nóg að gerast og mikil gróska á öllum sviðum. En ég er enn með verkefni vestan hafs svo að ég hef nóg af tækifærum til að skreppa út.“ Og nú er Vera búin að setja aftur upp húfuna og brosir breitt þegar hún hverfur út um dyrn- ar í íslenska vetrarkuldann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.