Fréttablaðið - 25.03.2007, Page 80

Fréttablaðið - 25.03.2007, Page 80
Þau voru nokkur, skrímslin sem ég ótt- aðist í æsku. Til dæmis þóttu mér múmíur al- mennt mjög ógeðslegar og þá sérstaklega þessi í Tinnabókinni um Sjö kraftmiklar kristalskúl- ur. Ég gat varla horft á kápuna, svo mikill var hryllingurinn. Í bókinni um Dísu ljósálf voru froskamæðgin sem bjuggu í feni og froskamamman vildi fá Dísu sem tengdadóttur, þvert á vilja Dísu. Mér þóttu þessi mæðgin mjög ógeðsleg. Slímug, hokin og krípí fenjafyrirbæri. Svo var það hann Köngull köngu- ló sem átti heima á Tjörninni og gerði ekki annað en að hrella Mola flugustrák. Köngull fannst mér ömurlegur náungi og ég vorkenndi Mola heil ósköp að þurfa alltaf að vera að standa í þessu stappi við fíflið hann Köngul. Ég man svo ekki hvað ég var gömul þegar myndin um geim- farann Barbarellu var sýnd í Ríkissjónvarpinu, en þar bætt- ist í hryllingssafn sálar minnar. Bæði voru þar tannhvassar dúkk- ur sem reyndu að rífa kyntáknið í sig og árásargjarnir páfagaukar sem vildu henni ekkert gott, mér til vansældar. Stuttu síðar kom myndin um manninn sem minnkaði á skjáinn en þar lenti heimilisfaðir í því að vera smækkaður niður í Playmobil- stærð og eitt af því sem hann þurfti að díla við var að drepa risakönguló með saumnál. Hræðileg sena! Versta skímslið birtist á RÚV árið 1980 þegar kvikmyndin um Dorian Gray setti sálarlíf mitt á annan endann. Sérstaklega senan þegar hulunni var svipt af mál- verkinu þar sem hinn raunveru- legi, krumpaði, siðblindi og ger- spillti Dorian kom í ljós. Í dag er svo komið að ég hræð- ist hvorki kóngulær, múmíur, tann- hvassar dúkkur né árásargjarna páfagauka, en Dorianar þessa heims vekja enn hjá mér ótta. Enda kannski öllu raunhæfara fyrir litl- ar konur að reyna að forðast sjálf- hverfinga sem svífast einskis en köngulær og illgjarna ondúlata í vígahug? Tilnefning til Íslensku lýðheilsuverðlaunanna 2007 Þann 24. apríl nk. mun heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra veita Íslensku lýðheilsuverðlaunin í fyrsta skipti. Verðlaununum er ætlað að styðja framtak stofnana, félagasamtaka eða fyrirtækja til að bæta heilsu lands- manna. Óskað er eftir tilnefningum til verðlaunanna. Hverja er hægt að tilnefna? Hægt er að tilnefna stofnanir, félagasamtök eða fyrirtæki sem hafa lagt sig fram um að stuðla að bættu heilsufari landsmanna, eða einstakra þjóðfélagshópa, umfram lög- bundið hlutverk eða markmið. Hverjir geta tilnefnt? Fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og einstaklingar geta sent inn tilnefningar en hver og einn getur aðeins sent inn eina tilnefningu. Hvernig skal staðið að tilnefningum? Óskað er eftir tilnefningum ásamt greinargóðum rök- stuðningi um hvers vegna viðkomandi stofnun, félaga- samtök eða fyrirtæki verðskuldi verðlaunin. Í rökstuðn- ingi þarf að koma fram með hvaða hætti sá sem tilnefndur er hefur stuðlað að bættri lýðheilsu s.s. með aukinni hreyfingu, bættu mataræði, eflingu geðheilbrigðis, reykleysi, áfengis- og vímuefnavörnum eða öðrum þáttum sem hafa áhrif á lífsstíl og heilsu landsmanna. Eyðublöð Eyðublöð fyrir tilnefningar má nálgast á heimasíðu heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneytisins www.heilbrigdisraduneyti.is eða í afgreiðslu ráðuneytisins í Vegmúla 3. Tilnefningar á rafrænu formi skal senda á postur@htr.stjr.is, en annars ber að skila þeim í afgreiðslu heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins. Frestur til að senda inn tilnefningar er til 11. apríl 2007 Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið Vegmúla 3 - 150 Reykjavík - Sími 545 8700 vaxtaauki! 10% Kæri vinur ... Eitthvað að? Þú verður að afsaka mig ... Ég reyni að vera faglegur i verki, líkt og skurðlæknar, passa að tengjast hverju mali ekki persónulegum böndum. En ég er auðvitað bara maður líka og það er erfitt að sjá sjúklinga sem eru svona langt leiddir eins og þessi bíll. Verður þetta dýrt? Dýrt?! Ertu að hugsa um peninga á svona stundu? Afsakaðu, afsakaðu! Ekkert mál, gefðu mér bara tima til að hugsa. Þegar bifvélavirki hagar sér svona veit maður að reikning- urinn er hár. Viðskipta- vinir takið eftir! Frá deginum í dag verða allir hlutir sem skildir eru eftir í vösum á fatnaði þegar hann er settur í óhreinatauið eign þvottahússins. Peningar verða te knir, tyggjó verður tug gið, sælgæti verður ét ið og gítarneglur ver ða endurunnar. Minnismiðar og persónuleg bréf verða hins vegar lesin up- phátt öðrum íbúum til skemmtunar. Hæ Palli! Hvað segirðu foli? Pabbi hættu! Þetta ætti að nægja.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.