Fréttablaðið - 25.03.2007, Síða 88
32 25. mars 2007 SUNNUDAGUR
FRUMSÝND 23. MARS SÝND Í REGNBOGANUM
BLEKKINGAMEISTARINN
„STÓRSKEMMTILEG!
Fær þig til að
trúa á kraftaverk!“
- The New York Times
- Ekkert hlé á góðum myndum
Ekkert hlé Minna af auglýsingum Engin truflun321
2 fyrir 1 allar frumsýningarhelgar gegn framvísun þessarar úrklippu.
KLIPPIÐ HÉR!
„STÓRSKEMMTILEG!
Fær þig til að
trúa á kraftaverk!“
- Stephen Holden, The New York Times
Iceland Express-deild karla:
NJARÐVÍK-GRINDAVÍK 96-78
Stig Njarðvíkur: Igor Beljanski 24 (hitti úr 10 af
13 skotum, 5 fráköst, 4 stoðs.), Jóhann Árni Ólafs-
son 15 (11 frák.), Jeb Ivey 15 (6 stoðs.), Friðrik
Stefánsson 10 (5 frák., 6 stoðs.), Egill Jónasson
6, Brenton Birmingham 6 (9 frák., 4 stoðs.), Guð-
mundur Jónsson 5, Ragnar Ragnarsson 5, Hall-
dór Rúnar Karlsson 4, Hjörtur Hrafn Einarsson 4,
Kristján Sigurðsson 2.
Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson 24 (6
frák.), Björn Steinar Brynjólfsson 13, Adama Dar-
boe 12 (7 stoðs.), Þorleifur Ólafsson 9 (4 stoðs.),
Jonathan Griffin 9 (4 stoðs.), Páll Kristinsson 8 (13
frák., 3 varin), Sigurður Sigurbjörnsson 2, Davíð
Páll Hermannsson 1.
Staðan í einvíginu er 1-0 fyrir Njarðvík.
Iceland Express-deild kvk:
GRINDAVÍK-KEFLAVÍK 100-94
Stig Grindavíkur: Tamara Bowie 42 (15 frák., 9
stoðs.), Hildur Sigurðardóttir 24 (16 frák.), Ingi-
björg Jakobsdóttir 14, Ólöf Helga Pálsdóttir 9
(9 frák.), Jovana Lilja Stefánsdóttir 4, Petrúnella
Skúladóttir 4, Íris Sverrisdóttir 3.
Stig Keflavíkur: Bryndís Guðmundsdóttir 26,
Kesha Watson 24 (15 frák., 7 stolnir, 7 stoðs.),
Birna Valgarðsdóttir 16 (22 mín.), María Ben
Erlingsdóttir 15 (8 frák.), Margrét Kara Sturludóttir
7 (4 varin, 16 mín.), Svava Ósk Stefánsdóttir 4 (7
frák., 4 stoðs.), Marín Rós Karlsdóttir 2.
Staðan í einvíginu er 1-1.
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Íslenska U-17 ára lands-
liðið er komið áfram upp úr milli-
riðli fyrir EM eftir ótrúlegan
sigur á ríkjandi meisturum í þess-
um aldursflokki, Rússum. Ís-
lenska liðið fer því í sjálfa loka-
keppnina sem fram fer í Belgíu í
byrjun maí.
Ísland tapaði ekki leik í riðla-
keppninni og vann þar með riðili-
linn. Portúgal var með jafn mörg
stig og Ísland en lakari markatölu
og situr því eftir með sárt ennið.
Ísland vann leikinn 6-5 eftir að
hafa verið yfir í hálfleik 5-0. Hinn
magnaði leikmaður HK, Kolbeinn
Sigþórsson, gerði sér lítið fyrir
og skoraði fjögur mörk í leiknum,
öll í fyrri hálfleik. Hin mörk Ís-
lands skoruðu Frans Elvarsson og
Aaron Palomares.
Ísland komst í 6-0 í leiknum en
rússneski björninn hresstist held-
ur betur í kjölfarið. Hann vaknaði
þó of seint og Ísland fagnaði sigri.
Glæsilegur árangur hjá strák-
unum en Lúkas Kostic þjálfar
liðið. - hbg
Íslenska U-17 liðið áfram:
Kolbeinn skor-
aði fjögur mörk
KOLBEINN SIGÞÓRSSON Þessi efnilegi
strákur leikur líkast til ekki með HK í
nánustu framtíð.
KÖRFUBOLTI Það er um lítið annað
talað í NBA-boltanum þessa dag-
ana en frammistöðu Kobe Bryant.
Hann er búinn að spila fjóra leiki
í röð þar sem hann hefur skorað
yfir 50 stig.
Hann er aðeins annar leikmað-
urinn í sögu NBA sem nær slík-
um árangri en hinn er Wilt Cham-
berlain. Hann náði að skora yfir
50 stig í sjö leikjum í röð leiktíð-
ina 1960-61.
Lakers hefur unnið alla þessa
leiki en Kobe var með 65 stig í
fyrsta leiknum, 50 í næsta, 60 í
þriðja og svo aftur 50 stig í fjórða
leiknum. - hbg
Kobe Bryant sjóðheitur:
Yfir 50 stig fjóra
leiki í röð
KOBE BRYANT Kóngurinn í NBA-boltan-
um í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
HANDBOLTI Íslendingaliðin Gross-
wallstadt og Lemgo áttust við í
þýsku úrvalsdeildinni í gær en
leikurinn var sérstaklega mikil-
vægur fyrir Lemgo, sem berst
um sæti í Evrópukeppnum að ári.
Lemgo fór með sigur af hólmi
á útivelli, 27-29. Ásgeir Örn Hall-
grímsson skoraði fjögur mörk
fyrir Lemgo en Logi Geirsson var
fjarverandi vegna meiðsla. Alex-
ander Petersson skoraði sex mörk
fyrir Grosswallstadt, sem saknaði
að sjálfsögðu Einars Hólmgeirs-
sonar sem er meiddur á ný.
Lemgo er í sjöunda sæti deild-
arinnar en Grosswallstadt í því tí-
unda. - hbg
Þýski handboltinn:
Lemgo lagði
Grosswallstadt
KÖRFUBOLTI Njarðvíkurhúsið bar
nafn með réttu í gær því sigur-
reifir Grindvíkingar, eftir tvo úti-
sigra í Borgarnesi, gengu hrein-
lega á vegg í fyrsta leikhlutanum
í gær. Njarðvík vann hann 32-10
og Grindavíkurliðið setti aðeins
niður 1 skot af 14 í leikhlutanum.
Eftir það var leikurinn í öruggum
höndum Íslandsmeistaranna, sem
hafa nú unnið 18 leiki í röð og eru
komnir í mikinn meistaraham. Í
lokin munaði 18 stigum, 96-78, en
síðustu þrír leikhlutarnir voru að-
eins formsatriði eftir þessar ótrú-
legu upphafsmínútur einvígisins.
„Þetta var merki um það að
við vorum virkilega tilbúnir. Það
er mikið búið að tala um flugið á
Grindavík. Ég benti mínum mönn-
um á að við vorum búnir að vinna
17 leiki í röð og ef það kallast ekki
flug þá veit ég ekki hvað,“ sagði
Einar Árni Jóhannsson, þjálfari
Njarðvíkur, eftir leikinn.
„Við vitum alveg um hvað þetta
Grindavíkurlið snýst og hvar
þeirra veikleikar eru. Við ætlum
að nýta okkur það og gerðum það
lengi vel í þessum leik í dag. Við
horfum á það þannig að Darboe,
Þorleifur og Griffin eru þeir sem
við þurfum fyrst og fremst að
stoppa. Það er erfitt að stoppa Pál
Axel og við reynum bara að hægja
á honum,“ sagði Einar Árni.
„Ég er búinn að segja það mjög
oft í eyrun á mínum mönnum að
þetta einvígi snýst bara um okkar
vörn og ekkert annað. Ef við spil-
um okkar vörn þá vinnum við þetta
einvígi. Þeir geta lagt upp með að
stoppa Brenton eða að stoppa Ivey
en okkar lið snýst ekki um tvo
menn,“ bætti Einar Árni við.
Kvöldið í gær var kvöld þeirra
Igors Beljanski (24 stig, 77%
skotnýting, 5 fráköst, 4 stoðsend-
ingar á 23 mínútum) og Jóhanns
Árna Ólafssonar (15 stig og 11
fráköst) í sóknarleiknum. Igor var
til dæmis með 15 stig eftir 8 mín-
útna leik þegar Grindavíkurliðið
var komið 24-4 undir í leiknum.
„Ég get ekki útskýrt það hvað
fór úrskeiðis í byrjun. Þessi leik-
ur kláraðist í fyrsta leikhluta, við
náðum aldrei að ógna þeim veru-
lega og við þurfum að gera miklu
miklu betur en þetta. Við vorum
langt frá okkar besta leik,“ sagði
Friðrik Ragnarsson, þjálfari
Grindavíkur, eftir leikinn.
„Menn voru að bauka hver í
sínu horni og við vorum ekki að
vinna saman sem lið. Það verður
að vinna saman sem lið og spila
skipulega sókn á móti liði eins og
Njarðvík. Við gerum ekkert sem
einstaklingar á móti þeim en við
getum unnið þá sem lið,” sagði
Friðrik.
„Við eigum Griffin alveg inni
því hann gat ekkert að þessu
sinni,” sagði Friðrik Ragnars-
son um Bandaríkjamanninn sinn
Jonathan Griffin, sem skoraði 27
stig að meðaltali í Skallagrímsein-
víginu en skoraði aðeins 9 stig í
gær og klikkaði á 8 af 10 skotum
sínum.
„Hann var búinn að vera mjög
traustur undanfarnar vikur og
skora yfir 25 stig í hverjum leik
þannig að ég er mjög ánægður
með varnarleikinn hjá Brenton,
Gumma og Jóa á hann. Það er frá-
bær vinna að halda honum í 9 stig-
um,” sagði Einar Árni um fram-
göngu sinna manna gegn Griffin,
sem þurfti auk þess að yfirgefa
völlinni með fimm villur.
ooj@frettabladid.is
Meistararnir afvopnuðu
skyttur Grindavíkur
Íslandsmeistararnir frá Njarðvík eru komnir með 1-0 forystu í einvíginu gegn
Grindavík eftir 96-78 sigur í Ljónagryfjunni í gær. Vörn Njarðvíkur sýndi styrk
sinn frá upphafi er hún afvopnaði skyttur Grindavíkur.
TVÖ STIG Jóhann Árni Ólafsson átti frábæran leik fyrir Njarðvík í gær. Hann sést hér
skora tvö af fimmtán stigum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR
KÖRFUBOLTI Grindavík jafnaði
metin í 1-1 í undanúrslitaein-
vígi sínu gegn Keflavík með 100-
94 sigri á Keflavík í æsispenn-
andi framlengdum leik í Grinda-
vík í gær. Leikurinn var frábær
skemmtun enda keyrðu bæði lið
upp hraðann og skiptust á að ná
yfirhöndinni með góðum sprett-
um. Tamara Bowie átti enn einn
stórleikinn og endaði hann aðeins
einni stoðsendingu frá þrefaldri
tvennu en hún var með 42 stig, 15
fráköst og 9 stoðsendingar.
Það stefndi í að þessi leik-
ur þróaðist eins og sá fyrsti
þar sem Bowie skoraði 28 stig í
fyrri hálfleik en gaf svo eftir og
Keflavíkurliðið sneri leiknum sér
í hag í fjórða leikhluta.
Nú var Bowie aftur komin með
30 stig í hálfleik, Grindavík var
9 stigum yfir, 58-49, og aftur var
eins og Bowie hefði klárað bens-
ínið. Bowie nýtti aðeins eitt af sjö
skotum sínum í þriðja leikhlut-
anum og eftir hann var Keflavík
komið með forustuna, 66-69.
Hver sókn skipti síðan gríðar-
legu máli í lokaleikhlutanum þar
sem liðin skiptust á að hafa for-
ustuna. Átta stig Birnu Valgarðs-
dóttur á síðustu fjórum mínút-
um virtust vera að koma Kefla-
vík í lykilstöðu í einvíginu en Ólöf
Helga Pálsdóttir átti eftir að segja
sitt síðasta. Ólöf kom ekkert við
sögu í fyrsta leiknum en spilaði
lykilhlutverk á lokakaflanum og
náði meðal annars sóknarfrákasti,
skoraði og setti niður víti að auki
en með því kom hún muninum
niður í tvö stig, 87-89.
Það var síðan umrædd Tam-
ara Bowie sem tryggði Grinda-
vík í framlenginguna með laglegri
körfu. Í framlengingunni voru það
hins vegar þristar frá þeim Ólöfu
Helgu og Ingibjörgu Jakobsdótt-
ur sem reyndust banabiti Kefla-
víkurliðsins en í bæði skiptin fann
Bowie þær opnar fyrir utan eftir
að hafa dregið til sín Keflavíkur-
vörnina.
Þessi lið eru mjög jöfn og það
kæmi ekki á óvart ef þetta ein-
vígi færi alla leið í oddaleik, sem
er ekki slæm tilhugsun enda leikir
þessara liða frábær skemmtun og
glæsileg auglýsing fyrir kvenna-
körfuna.
- óój
Grindavík jafnaði metin gegn Keflavík í frábærum framlengdum leik:
Nú dugði stórleikur Tamöru
Bowie til sigurs fyrir Grindavík
BARÁTTA Hildur Sigurðardóttir og félagar í Grindavík börðust til síðasta blóðdropa í
gær og uppskáru sigur. FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR