Fréttablaðið - 25.03.2007, Page 94

Fréttablaðið - 25.03.2007, Page 94
Tónleikaferð þeirra Eyjólfs Kristjánssonar og Stefáns Hilm- arssonar um landið til að kynna plötuna „Nokkrar notalegar ábreiður“ hefur gengið mjög vel. „Þetta er alveg með ólík- indum. Við förum næst- um því að gráta á hverjum degi, við erum svo hrærð- ir. Stebbi hefur líka aldrei farið í svona ferð og honum finnst þetta mjög gaman,“ segir Eyfi. „Við erum búnir að hitta svo mikið af góðu fólki og við höfum líka spilað í fjór- um kirkjum, sem er svolítið nýr vinkill hjá okkur. Okkur finnst það æðislega gaman og þetta hentar okkur vel. Við erum að flytja oft á tíðum viðkvæma tónlist sem þarfnast hlustunar. Í kirkjum hlusta allir,“ segir hann. „Við spiluðum á Ólafsfirði á veit- ingastað og þangað mættu 150 manns. Það var ótrú- lega góð stemning og fólk hlustaði bara. Við höfum svo mikið verið í prívat giggum og kannski bara verið að spila í hálftíma. Núna er þetta ríf- lega tveggja tíma dagskrá og við erum að spila kannski 25 lög.“ Tónleikaferð þeirra Eyfa og Stebba er hvergi nærri lokið og framundan er spilamennska í Vestmannaeyjum þann 30. mars og á Selfossi 2. apríl. Á efnisskrá þeirra félaga eru m.a. Eurovision-lögin sígildu Nína og Ég lifi í draumi. Spurð- ur um nýja Eurovision lagið, Ég les í lófa þínum, segir Eyfi það ekki hafa gripið sig til að byrja með. „Núna er ég búinn að heyra það nokkrum sinn- um og það verður bara betra og betra. Eiki gerir þetta vel, hann er svo góður söngvari og gerir mikið fyrir lagið. Það lekur lífs- reynslan úr hverjum tón,“ segir hann og hlær. „Hann er pottþétt- ur „live“ og það er gaman að ein- hver svona reynslubolti skuli fara út.“ Gráta næstum á hverjum degi „Ekkert verður af fyrirhuguðu LAN-móti sem vera átti í Egils- höll um næstu helgi. Skólayfirvöld bönnuðu Nemendafélagi Borgar- holtsskóla að halda mótið og hótuðu að reka stjórn nemendafélagsins úr skólanum ef mótið hefði verið hald- ið þar sem að skólayfirvöld telja að mót sem þetta muni ýta undir tölvufíkn.“ Þetta stendur á vefsíðu nemendafélagsins borgari.is og þegar Fréttablaðið hafði samband við Reyni Grétar Jónsson, stjórn- armeðlim í nemendafélaginu, sagði hann þetta vera rétt. „Skólinn vildi ekki fá reiða for- eldra yfir sig vegna mótsins,“ segir Reynir, sem var augljóslega mjög ósáttur við yfirboðara sína. „Við vildum með þessu koma til móts við stóran hóp í skólanum sem hefur áhuga á þessu,“ bætir Reynir við. Svokölluð LAN-mót ganga út á að stór hópur hittist á einum ákveðnum stað og spilar saman tölvuleik yfir netið. Þetta fyrir- bæri nýtur mikilla vinsælda og úti í heimi eru haldin heimsmeist- aramót í ákveðnum tölvuleikjum. „Þetta er mjög skrýtin ákvörð- un því þetta hefur tíðkast í öðrum skólum og okkur finnst undarlegt að mörg okkar megi kjósa í næstu kosningum en ekki spila tölvu- leiki,“ segir Reynir. Aron Tómas Haraldsson, for- varnafulltrúi Borgarholtsskóla, staðfesti þessa ákvörðun í samtali við Fréttablaðið. Hann sagði það þó fullmikla einföldun hjá nem- endafélaginu að skólinn hefði sett því stólinn fyrir dyrnar út af því að hann teldi þetta ýta undir tölvu- fíkn. Aron vildi líka gera lítið úr þeirri yfirlýsingu nemendafé- lagsins að hótað hefði verið brott- rekstri úr skólanum. Það væri orðum aukið. „Við erum ekki að segja að tölvur og tölvuleikir séu upphaf alls ills og tölvuleikjafíkn má að mestu leyti rekja til heimil- anna,“ segir Aron Tómas. „En við erum kannski líka að bregðast við þessari umræðu sem hefur verið í gangi þar sem heimilishaldi er stundum haldið í heljargreipum sökum tölvuleikja- og netnotkun- ar,“ bætir Aron við. „Og þar að auki finnst okkur svona LAN-mót ekki vera jákvæður samskipta- máti,“ segir hann. Aron áréttar þó að málið sé ekki jafneinfalt og nemendafélagið lætur vera láta á heimasíðu sinni. Skólinn hefði einnig þurft að út- vega gæslu og fá kennara á vakt þannig að margt spilaði inn í þessa ákvörðun. Þá hafi margir starfs- menn skólans verið mjög ósátt- ir við LAN-mót sem haldið var á þemadögum nýverið. „Við veltum því líka fyrir okkur hvort þetta væri hefð sem við vildum vera að búa til án þess að hafa hugsað vandlega út í það,“ segir Aron. Vill taka við kyndlinum af Opruh Winfrey „Ég er að vinna í plönunum, skoða hverju ég ætla að breyta. Stað- urinn opnar svo eftir rúmlega mánuð,“ segir Kristján Jónsson, betur þekktur sem Kiddi Bigfoot, sem keypt hefur rekstur skemmti- staðarins Gauks á Stöng af fast- eignafélaginu Eik. Gaukurinn hefur verið lokaður síðustu mán- uðina en það mun breytast innan tíðar. Kiddi segir að hann sé kom- inn með nokkrar hugmyndir á blað um hvernig stað hann hyggist reka í húsnæði Gauksins. Til að mynda sé mjög ofarlega á lista að þar fái hljómsveitir inni fyrir tónleika- hald, en talsvert hefur verið rætt um skort á tónleikastöð- um í borginni eftir að Gaukn- um var lokað í fyrra. Að svo komnu máli liggur ekki einu sinni fyrir hvað stað- ur Kidda muni heita. „Nafn- ið Gaukur á Stöng er í eigu þriðja aðila svo það á eftir að skýrast. Það væri auð- vitað óskandi að svo færi, þetta er bæði sögufrægt nafn og hús,“ segir Kiddi, sem sjálfur býr yfir mikilli reynslu úr skemmtanalífsbransanum. Hann hefur starfað sem plötusnúður til margra ára á velflestum skemmti- stöðum borgarinnar. Kiddi fær húsnæðið afhent um næstu mánaðarmót. Líklegt er að fyrst um sinn verði einungis not- ast við efri hæðina. Heimildir Fréttablaðsins herma að ástæða þess sé sú að Framsóknarflokkur- inn hafi falast eftir neðri hæðinni fyrir kosningaskrifstofu. „Fólk hefur falast eftir húsnæðinu,“ segir Kiddi leyndardómsfullur. Opnar Gaukinn á ný „Ég hefði aldrei trúað að það tíðkaðist lengur að fatafellur væru fengnar til að koma fram á samkomum eins og þessu herrakvöldi hestamannafélgs- ins Harðar. Þetta er eiginlega svo fáránlegt að það er bara fyndið.“ 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.