Tíminn - 11.08.1979, Síða 6
6
Laugardagur 11. ágúst 1979
WÍMMM
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: bór-
'arinn bórarinsson og Jón Sigurósson. Ritstjórnarfulltrúi:
Oddur Ólafsson. Fréttastjóri: Kjartan Jónasson. Auglýs-
ingastjóri: Steingrimur Glslason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og auglýsingar Siðumúla 15 slmi
86300. — Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl.
20.00: 86387. Verð i lausasölu kr. 180.00. Áskriftargjald kr.
V 3.500 á mánuði. Blaöaprent.
J
Hve lengi ræður
formúlan?
Allir þeir sem hugleiða málefni þjóðarinnar
hljóta að sjá að það er vitaskuld fásinna að fara að
borga út almenna kauphækkun um næstu mánaða-
mót. Sú hækkun verður innan mjög skamms tima
tekin aftur með hvers kyns verðhækkunum, vegna
þess að þjóðarbúið og þar með atvinnureksturinn i
landinu stendur alls ekki með þvilikum blóma að
almennar kjarabætur geti átt ser stað.
Þetta vita allir. Verkalýðsforystan veit það.
Atvinnurekendur og framleiðendur vita þetta.
Rikisstjórnin veit það, og alþýða veit það sennilega
betur en allir hinir.
En samt á að gera launþegana hlægilega með þvi
að borga þetta út. Samt á að fara enn einn hringinn i
þessari lokleysu. Siðan koma beiðnimar um hækk-
anir. Fyrst mun verðlagsnefnd og rikisvaldið reyna
að sofa á þeim. Siðan verða þær heimilaðar eftir
dúk og disk, þegar framleiðslan þyrfti i raun og
veruað fá ennþá meiri hækkanir til að standa undir
sér.
Og fólkið spyr: Af hverju er þetta svona vitlaust?
Svarið er: Vegna þess að þessum málum er
stjórnað með formúlu en ekki skynsemi. Formúlan
heitir visitala, og i fyrra staðfesti almenningur
þessa bjálfaformúlu með kosningasigri þeirra
flokka sem ekki vildu skynsamlega stjórn þessara
mála.
Snemma á siðastliðnu ári reyndi þáverandi rikis-
stjórn að slá á mestu verðbólguþensluna með
ábyrgum aðgerðum. Þeim aðgerðum var svarað
eins og um einhverjar ægilegar kúgunar- og
ofbeldisaðgerðir væri að ræða. Hér hófst hreinasta
skálmöld til að koma i veg fyrir að febrúarlögin og
bráðabirgðalögin i maí gætu náð tilskildum árangri
með bættu atvinnuöryggi, minni verðbólgu og
fullum bótum fyrir láglaunafólkið.
Þáverandi rikisstjórn tókst ekki að sannfæra
almenning um alvöruna i þessum málum. Liklega
verðum við að viðurkenna að aðgerðirnar i febrúar
1978 og i mai sama ár hafi verið of vægar, ekki nógu
harkalegar til þess að sýna allri alþýðu fram á það
hvilikt ástandið var orðið og i hvilikt óefni stefndi.
Ætla má að nú, siðsumars 1979, hafi allir lært af
reynslu siðastliðins árs. Ætla má að jafnvel sig-
urvegararnir frá þvi i fyrra hafi tekið út nokkurn
þroska af þvi að vinna með ábyrgum og þjóðlegum
umbótamönnum.
Vonandi er það svo, og sýnir að góðir kennarar
geta komið flestum eitthvað áleiðis.
Þó hefur það kvisast að sumir þessara manna séu
enn að gaspra um að „vernda” kaupmáttinn. Ein
hverjir eru enn að stæra sig af þvi að villa um fyrir
fólki um ástand efnahagsmálanna. Einhverjir eru
enn i dag að reyna að ljúga þvi að fólki að oliukrepp-
an, staða rikissjóðs og horfurnar i atvinnurekstr-
inum gefi tilefni til stéttabaráttu á þessu ári.
Þó hefur það kvisast að sumir þessara manna séu
enn að gaspra um að „vemda” kaupmáttinn.
Einhverjir eru enn að stæra sig af þvi að villa um
fyrir fólki um ástand efnahagsmálanna. Einhverjir
eru enn i dag að reyna að ljúga þvi að fólki að oliu-
kreppan, staða rikissjóðs og horfurnar i atvinnu-
rekstrinum gefi tilefni til stéttabaráttu á þessu ári.
Þeir sem sliku halda fram hafa ekki reynst menn
til þess að horfast i augu við staðreyndimar. Þeir
sem nú halda þvi fram að einhverjar kjarabætur
felist i kauphækkunum 1. september eru óábyrgir
og virða þjóðarhag, atvinnuöryggið og afkomu
þjóðarinnar að vettugi.
Fólkið á ekki að hlusta á slika menn. Js
Haraldur Ólafsson:
Erlent yfirlit
Ognarstj órn, sem
enginn vildi vita af
Um siöustu helgi hrökklaöist
enn einn haröstjórinn frá völd-
um i Afriku. 1 þetta sinn sá ill-
raemdasti, Francisco Macias
Nguema, forseti til llfstlöar I
Miöbaugs-Gíneu, meistari
menntunar, visinda og menn
ingar, svo nefndir séu nokkrir
titla hans.
Miöbaugs-Ginea er gömul
spænsk nýlenda, en hlaut sjálf-
stæöi 1%8. Hét áöur Rio Muni.
Landiö er litiö, aöeins um 28 000
ferkilómetrar aö stærö og liggur
meginhluti þess milli Gabon og
Kamerún. Annar hluti þess er
eyjan Fernando Po, sem forset-
inn skýröil höfuöiö á sér og heit-
ir hún nú: Macias Ngu-
ema-eyja. Þar er hWuöborgin
Mala bo.
íbúarnir eru rúmlega fjögur
hundruö þúsund aö tölu, og
skiptast i tvo stóra ættftokka,
Bubi og Fang, og eru hinir
siöarnefndu fjölmennari.
Landiö var meöal hinna betur
stæöu í Afriku er þaö fékk sjálf-
stæöi. Þar er ræktaö mikiö af
kakó, kaffi og banönum, en ein
verömætasta útflutningsvaran
er timbur. Kakó-framleiöslan
gaf lika mikiö i aöra hönd, en nú
hefur hún minnkaö verulega.
Þau ellefu ár, sem landiö
hefur veriö sjálfstætt undir
stjórn Macias Nguema hefur
rikt þar ógnaröld, sem viö fátt
veröur likt. Lengi vel reyndi
spænska stjórninaö þagga niöur
allar frengir frá landinu og
hroöalegum aögeröum valdhaf-
anna. Spánverjar áttu mikilla
hagsmuna aö gæta I landinu, og
m.a. var timburverzlunin þar
aö mestu i þeirra höndum. Þó
fór svo, aö spænskir fjölmiölar
neituöu aö þegja um þaö, sem
fram fór, og 1977 sleit Spánn
stjórnmálasambandi viö Miö-
baugs-GIneu. Var þaö I oröi
kveönu gert vegna niörandi um-
mæla Nguema um Juan Carlos
Spánarkonung.
Eftir aö fréttist um, aö herliö
undir forystu Mbasogo ofursta
heföi steypt Nguema af stóli til-
kynnti spænska stjórnin aö hún
myndi þegar I staö taka upp
eölilegt samband viö landiö og
veita þvi efnahagsaöstoö eftir
föngum. Spánverjar hafa hins
vegar neitaö aö hafa átt
nokkurn þátt i uppreisninni, en
þrálátur orörómur um þaö er á
kreiki.
Amnesty International,
Bandalagiö gegn þrælahaldi og
alþjóöanefnd lögfræöinga hafa
hvaö eftir annaö birt skýrslur
um ógnaröldina i Miö-
baugs-GIneu, byggöar á fram-
buröi flóttafólks þaöan. Hefur
landinu veriö lýst sem alls-
herjar fangabúöum. Samkvæmt
upplýsingum, sem fyrir liggja
hafa á undanförnum árum 50
000 manns veriö teknir af lifi I
landinu. Þaö er há tala hjá 400
000 manna þjóö.
I yfirlýsingunni, sem upp-
reisnarmenn gáfu eftir aö Ngu-
ema var farinn frá völdum
segir: „þorp eru yfirgefin, neyö
rikir, ólöglegar handtökur voru
daglegt brauö, fimmtlu til
sextiu manns voru teknir af lifi
á dag vegna imyndaöra sam-
særa”.
Landiö er nær gjaldþrota.
Forsetinn var þó duglegur aö
útvega reiöufé. Fyrir þremur
árum hrapaöi rússnesk flugvél I
fjalllendi I Miöbaugs-Gineu.
Nguema sendi Sovétstjórninni
reikning upp á 75 000 dollara
„vegna skemmda á fjall-
inu” . Fyrir nokkrum árum
varö spænska stjórnin aö greiöa
100 000 dollara I lausnargjald
fjTÍr kennara og sex trúboöa
„sem unnu meö heimsvalda-
sinnum”. Nguema predikaöi
framfarastefnu, og kúbanskir
hernaöarráögjafar héldu til I
landinu, sem var „framvarö-
stöö I baráttunni vjÖ^ Tieims-
valdasinna”. Nýjusni fregnir
herma, aö Nguema sé i heima-
þorpi sinu ásamt nokkrum
Evrópumönnum og hernaöar-
ráögjöfum frá Kúbu.
Nguema fæddist áriö 1924.
Hann er af Fang-ættbálknum,
sem dreiföur er um þrjú lönd:
Miöbaugs-GIneu, Gabon og
Kamerún. Hann náöi völdum I
landinu eftir aö hafa boriö
sigurorö af helzta keppinaut
sinum er Spánverjar yfirgáfu
landiö. Hann viröist hafa veriö
haldinn ofsóknarbrjálæöi, og
óttazt, aö hinir fornu nýlendu-
herrar væru i þann veginn aö
leggja landiö aftur undir sig. 1
þessari meira og minna
Imynduöu baráttu viö heims-
valdasinna hélt hann uppi stöö-
ugum aftökum á landsmönnum
sinum. „Þaö er alltof dýrt aö
nota skotvopn til aö taka fólk af
lifi”, lét hann hafa eftir sér.
Venjulegasta aftökuaöferöin
var aö berja fórnarlömbin i hel.
Ungliöasveitir önnuöust af-
tökur.
Áttatiu af hundraöi íbúanna i
Miöbaugs-Gineu eru kaþólskir.
Nguema baröist hatramlega
gegn kirkjunni. Hann kraföist
þess, aö kirkjan tæki upp oröin
,d nafni Macias forseta, sonar
og heilags anda, en Páfagaröur
vildi ekki, — af skiljanlegum
ástæöum, fallastá þá breytingu
á signingu og bænagjörö. Þá
fangelsaöi Nguema fjölda
presta og hrakti þá á alla lund,
og setti loks lög I fyrra, þar sem
starfsemi kirkjunnar var
bönnuö. Þetta hraöaöi straumi
flóttamanna úrlandinu, og er nú
taliö, aö þriöjungur þjóöarinnar
hafi flúiö til nágrannarikjanna,
þar sem margir eiga frændum
aö fagna.
Astandiö I mörgum rikjum
Afriku er fariö aö minna á
endurreisnartímann. Harö-
stjórar risa upp, og aörir harö-
stjórar hrekja þá burt. Frelsiö
er lofaö, en felst oftast i þvieinu
aö skipta um ógnarstjórn.