Tíminn - 11.08.1979, Qupperneq 7
Laugardagur 11. ágúst 1979
7
Bernhöftstorfan og
ævintýrið um nýju
fötin keisarans
Ekki er mér kunnugt um til-
drögin aö stofnun Torfusamtak-
anna, en hafi Daniel heitinn
Bernhöft haft skopskyn á viö
ýmsa af sinum ágætu niðjum,
mætti segja mér aö hann heföi
haft „skömm og gaman” af öllu
moldviörinu sem þyrlaö hefur
veriö upp kringum „torfuna”
hans — og ekkert lát er á ennþá.
Eitt af þvi sem Torfusamtökin
og áhangendur þeirra telja
fram til stuðnings kröfunni um
varöveislu eöa friöun Bern-
höftstorfunnar er „hin heil-
steypta húsaröð” milli Amt-
mannsstigs og Bankastrætis,
sem samkvæmt kenningu
Torfusamtakanna kallast Bern-
höftstorfa, og þennan frasa um
hina „heilsteyptu húsaröö” étur
svo hver upp eftir öörum. Og nú
hefur Torfusamtökunum bætst
nýr liösauki. Félag sem stofnaö
var i lok fyrra árs og kallar sig
Lif og Land, vafalaust ágætur
félagsskapur, hefur lýst stuön-
ingi viö friöun Bernhöftstorf-
unnar, sbr. frétt I þessu blaði
fyrir tveimur vikum, þar sem
þess er getiö, aö hún myndi
„mjög heilsteypta húsaröö
ásamt gamla stjórnarráöshús-
inu, menntaskólanum og hús-
unum þar fyrir sunnan”.
„Bernhöftsbakarl” hljómar
alltaf vel I minum eyrum.
Þangaö var ég sendur aö sækja
brauö þegar ég var drengur og
átti heima viö Bókhlööustiginn.
Einnig á ég þægilegar minn-
ingar um húsiö viö Amtmanns-
stig, sem var læknisbústaöur
þegar ég var barn (og lengi
siöan), og móöir min fór meö
mig til Guömundar Björns-
sonar, siöar landlæknis, og fékk
meöul viö einhverjum barna-
kvilla sem ég þjáöist af. Og
enga ástæðu hef ég til þess að
hnýta i steinsteypuhúsið Gimli,
sem fyrri hluta þessarar aldar
reis af grunni milli þessara
gömlu húsa.
En nú stenst ég ekki freisting-
una aö bregöa mér I hlutverk
söguhetjunnar i ævintýri H.C.
Andersen um „Nýju fötin
keisarans”, barnsins, sem kvaö
upp úr meö þaö, aö keisarinn
væri ekki I neinum fötum, eftir
aö öllum þegnum keisarans,
hiröinni og honum sjálfum haföi
veriö talin trú um aö hann væri i
einhverjum forláta skrautklæð-
um. (Ætli ég eigi ekki nokkurn
rétt á aö taka aö mér þaö hlut-
verk? Tvisvar veröur gamall
maöur barn, segir máltækiö).
Lif og Land ætti aö bregöa sér
einhvern af þessum góöviöris-
dögum ásamt Torfusamtökum
niöur I Lækjargötu, og tylla sér
þar á bekki sem ætlaöir eru til
afnota fyrir strætisvagnafar-
þega, og viröa fyrir sér I róleg-
heitum húsarööina milli Amt-
mannsstig og Bankastrætis,
andspænis þessum staö. Þaö
verö ég aö segja, aö sundur-
leitari röö af húsum, af mis-
munandi aldri og óllkum bygg-
ingastil, en þá sem þarna blasir
viö er naumast hægt aö hugsa
sér. Og tilvitnuð umsögn Lifs og
Lands um mjög heilsteypta
húsaröð ásamt gamla stjórnar-
ráöshúsinu, menntaskólanum
og húsunum þar fyrir sunnan
hljómar óneitanlega fremur
sem háö en alvara.
Lif og Land er meira en lltiö
„úti aö aka” i þessu máli. 1 um-
ræddri ályktun félagsins segir
m.a.: „Væri þaö óbætanleg
röskun á umhverfi miðbæjarins
aö fjarlægja húsin á Bernhöfts-
torfunni og hætt viö aö stjórnar-
ráöshúsiö og menntaskólinn
yröu sem einstæöingar á eftir”.
Þaö ætti þó aö vera á flestra vit-
oröi, að gert hefur veriö ráö
fyrir þvi, aö þegar þessi hús
hafi veriö fjarlægö, veröi þar
ekki eyöa, heldur aö rikiö, sem á
þetta land, reisi þar hús til
sinna þarfa, en eins og kunnugt
er, þá er ríkisstjórnin I stööugu
Guðmundur
Marteinsson
húsnæðishraki (sbr. kaupin á
Víöishúsinu). Og þaö mætti ætla
aö arkitektum, bæöi yngri og
eldri, þætti áhugaveröara en aö
lappa upp á þessi ósamstæöu
hús aö takast á viö þaö vanda-
sama verkefni aö hanna á þess-
um staö hús, eitt eöa fleiri, sem
meö sanni mætti segja um aö
mynduöu, ásamt þeim húsum
sem fyrir eru, samfellda heil-
steypta húsaröö milli Bókhlööu-
stigs og Hverfisgötu.
Grein þessi barst blaðinu
áöur en húsin á Bernhöfts-
torfu voru friöuð, en þaö
breytir ekki skoöun höfundar
á málefninu. Ritstj.
Alexander
Stefánsson:
Eflum Tímann
Málsvari framfara og
félagshyggju
„Timinn hefur alla tiö, auk al-
mennrar f jölmiölaþjónustu ver-
iö málsvari byggöanna, félags-
hyggju og Framsóknarflokks-
ins. Tlminn einn hefur þá mál-
efnalegu stööu og þá útbreiöslu
meðal almennings aö hann geti i
senn veitt aöhald og veriö I fylk-
ingarbrjósti. An Timans yröu
hins vegar þau umskipti aö upp
lýsingar og skoöanamyndun
gengju I reynd úr höndum
félagsmálahreyfinganna og I
vasa fjármagnsins. Nú veröur
okkur aö takast aö standa vörö
um raunverulegt jafnrétti
manna tii aö koma upplýsingum
og skoöunum á framfæri án þess
að þurfa aö lúta duttlungum
sölumennskunnar I einu og öllu.
I trausti þess aö allir sam-
herjar og velunnarar Tímans
vikist vel viö i þvi starfi sem nú
er framundan, mun innan
skamms veröa haft samband
viö þig af hálfu söfnunarnefnd-
arinnar.”
Þetta er niöurlagsorö I bréfi
söfnunarnefndar til söfnunar-
nefnda og annarra velunnara
blaösins i þeirri viöleitni aö
koma fjárhag blaösins á traust-
an grundvöll.
Þaö væri mikiö áfall fyrir
félagshyggjufólk á Islandi, ef
Timinn hætti aö koma út. Þótt
deila megi um ágæti blaösins, er
þó ljóst aö gegnum áratugina
hefur blaöiö veriö öruggur mál-
svari framfara, byggöastefnu
og félagshyggju og haldiö uppi
'þjóöiegum metnaöi á flestum
sviöum þjóölifsins.
Ég er einn þeirra sem tel aö
gera þurfi allróttækar breyting-
ar á blaðinu, sem nú er veriö aö
vinna aö — blaöiö þarf daglega
aö vera i nánara sambandi viö
daglegt lif i landinu og taka
virkari þátt I framleiöslustörf-
um þjóöarinnar og ýmsum
framkvæmdum — láta almenn-
ing sem viöast I landinu taka
meiri þátt i daglegu efni blaös-
ins.
Égvilhvetjaallasamherja og
velunnara og aöra þá sem unna
frelsi og félagshyggju aö taka
nú höndum saman og leggja lið
þvi markmiöi aö losa Timann úr
skuldahelsi og hefja hann til
meiri áhrifa I okkar þjóölifi sem
virt og gott blaö sem allir vilja
lesa.
Alexander Stefánsson:
EFLUM TÍMANN
Sjálfboðaliðar hringi i sima
86300 eða 86538, Síðumúla 15
Reykjavík, á venjulegum skrif-
stofutima.
Þeim sem senda vilja framlög
til blaðsins er bent á að giró-
seðlar fást i öllum pósthúsum,
bönkum og sparisjóðum. Söfn-
unarreikningurinn er hlaupa-
reikningur nr. 1295 i Samvinnu-
bankanum.
Styrkið Tímann
Fyllið út þennan seðil og sendið til Tímans
í pósthólf 370, Reykjavík
Eg undirritaður vil styrkja Tímann með
þvi að greiða i aukaáskrift
□ heiia □ háifa á mánuði
Nafn _________________________________________
Heimilisf.------------------------------------
Sími