Tíminn - 29.11.1979, Page 9
Fimmtudagur 29. nóvember 1979
9
Kosninga-
útvarp sent
út á fjórum
bylgju-
lengdum
Fjarskiptastööin I Gufunesi
hefur nú valiö fleiri bylgjulengdir
fyrir kosningaútvarp á stutt-
bylgju. Aöur var búiö aö tilkynna
aö kosningaútvarpiö yröi sent út á
12175 kHz (24.6 metrar) en auk
þess veröa eftirtaldar bylgjur
notaöar:
7657 kHz (39.10 metrar)
9115 kHz (32.19 metrar)
13950 kHz (21.50 metrar)
Stuttbylgjuiitvarpið hefst kl.
19.00 gmt. mánudaginn 3. desem-
ber en kosningaútvarp hefst ekki
fyrr en kl. 23.00 um kvöldiö og
veröur haldiö áfram um nóttina
og fram á þriöjudag eftir þvi sem
ástæöa þykir til.
1 frétt frá Rikisútvarpinu segir
að viö Alþingiskosningarnar 1978
hafi kosningaútvarpiö heyrst viöa
um Evrópu á stuttbylgju. Bent er
á aö nauösynlegt sé að hafa góð
tæki ogloftnet til aö ná útsending-
unni.
Þorvaldur Garöar Kristjánsson:
Verðjöfnun hitunarkostnaöar...
Sjálfstæöisflokkurinn líka klofinn i þessu máli
Fjölmargir hafa undrast
öfgafull skrif Morgunblaðsins
um þá skoðun aö réttmætt sé aö
létta byröar þeirra sem enn búa
viö oliu til upphitunar ibúöa
sinna. Eftir aö oliuveröspreng-
ingin mikla varö hefur oröiö al-
veg ótrúleg kjaraskeröing allra
þeirra sem enn veröa aö notast
viö oliu til kyndingar, og geta
menn rétt hugsað sér hvernig
ástandiö væri ef ekki heföi veriö
gengið ötullega fram I borunum
og virkjunum á siöustu árum.
En þaö eru ekki aðeins fram-
sóknarmenn sem undrast öfgar
Morgunblaðsins og þá útúr-
snúninga þess að ólafur Jó-
hannesson hafi látið i ljós þá
skoðun að taka eigi upp ein-
hvern sérstakan „aukaskatt” á
hitaveitu Reykvíkinga, þegar
hann var aö tala um þörfina á
jöfnun lifskjara og aðstööu til
mannsæmandi lifs.
Skrif Morgunblaösins um
þetta efni, sem hafa verið
pöntuö af forystu Sjálfstæöis-
flokksins i Reykjavik, sýna aö
ritstjórar blaðsins sjá ekki út
fyrir húsagarðinn hjá sjálfum
sér. Þeir sjá ekki lif fólksins i
landinu, og er það gömul saga
og ný á þeim bæ.
Timinn hefur heimildir fyrir
þvi aö frambjóðendur Sjálf-
stæöisflokksins úti um land hafa
ekki þorað annað en aö viöur-
kenna þörfina á jöfnun lifskjar-
anna að þvi er aö húsaupphitun
lýtur. I gær var t.d. minnst á þá
Matthias Bjarnason, Sverri
Hermannsson, Pálma Jónsson
og Halldór Blöndal I þessu sam-
bandi.
t siðasta tölublaði Vestur-
lands, málgagns sjálfstæöis-
manna á Vestfjöröum, gengur
enn einn frambjóðandi Sjálf-
stæöisflokksins, Þorvaldur
Garöar Kristjánsson, fram fyrir
skjöldu i þessu máli, og segir
m.a.:
,,Nú má ekki dragast lepgur
aö auka enn niöurgreiöslu oliu
til upphitunar eins og kostur er
til jöfnunar á húshitunar-
kostnaöi landsmanna... Til þess
aö standa undir veröjöfnun
hitunarkostnaöar samkvæmt
framangreindum hugmyndum
þarf fjármagn sem nemur 6000
milljónum króna á árinu 1980”.
Þorvaldur Garöar
— Hverjir eru annars
að tala um að minnka
niðurgreiðslur stórkost-
lega með „leiftursókn"?
— Hverjir eru annars
að tala um að leggja
aukaskatta á þá sem við
jarðvarma búa?
Sannleikurinn er sá að
það hef ur ætíð verið ær og
kýr Sjálfstæðisf lokksins
að hafa ekki aðeins tung-
urtvær, heldur margar —
og Ijúga með flestum
þeirra. Það hefur ætíð
verið helsta íþrótt þeirra
sjálfstæðismanna að
reyna að etja fólkinu
saman, eftir héruðum og
starfsstéttum — í þvi
skyni að flokkurinn gæti
með því deilt og drottnað.
Þannig hafa frambjóöendur
flokksins úti um land neyöst til
aö viröa réttindi og hagsmuni
fólksins þar, á sama tima sem
forystan suövestan lands þyrlar
upp moldviöri og afflytur skyn-
samleg orö hófsamra and-
stæöinga.
Þökkum öllum þeim er hjálpuðu okkur
vegna ferðar okkar til Bretlands með litlu
dóttur okkar.
Kveðjur.
Rannveig og Guðjón.
Skipasundi 5.
+---------------------------------------------
Þökkum innilega auösýnda samuð vegna andláts og
jarðarfarar
Guðmundar Jónssonar
frá Þorgautsstööum.
Ketill Jómundsson, Saga Helgadóttir
Anna Björg Ketilsdóttir, Þuriöur Ketilsdóttir
Helga Fossberg Helgadóttir
Útför móöur okkar
Arndísar Þorsteinsdóttur
f.v. ljósmóöur, Syöri-Hömrum
veröur gerö frá Kálfholtskirkju laugardaginn 1. desember
kl. 2 e.h. Ferö veröur frá Hópferöamiöstööinni, Suður-
landsbraut 6 kl. 12,30.
Börnin.
SINDRA
NÝTT
Eirpípur
einangraðar með plasthúð. Þær eru sérlega
meðfærilegar og henta vel til notkunar viö
margs konar aðstæður, t.d. á sjúkrahúsum.
Pípurnar fást í rúllum, 10—50 mm sverar.
Auk þess höfum við óeinangraðar, afglóö-
aðar eirpípur, 8—10 mm í rúllum og
óeinangraðar eirpípur 10—50 mm í stöng-
um.
— Aukin hagkvæmni,
— minni kostnaður,
— auöveld vinnsla.
Borgartúni 31 sími27222
vandaðaðar vörur
Eins, þriggja og fimm hólfa
Afar hagstætt verð.
Oliufélagið
Skeljungur hf \^j Shell
Heildsölubirgðir:
Smávörudeifd Sími: 81722
NÝ SIGUNGALEID
BÆTT ÞJÓNUSTA
Við höfum hafið reglubundnar siglingar á nýrri
flutningaleið, 14 daga fastaferðir allan ársins hring milli Larvikur, Gautaborgar, Kaup-
mannahatnar og íslands.
Flutt verður stykkjavara, gámar, kæli- og frystivara.
Umboðsmenn okkar á hinni nýju siglingaleið eru:
Larvik:
P A. Johannessens Eftf.
Storgaten 50
3251 LAFIVIK
Cable: "SHIPSN"
Telex: 21522
Phone: (034) 85 667
Gautaborg:
Borlind, Bersén & Co.
P.O. Box 12113
Kaj 51
S-402 42 Göteborg 12
Cable: Borlinds
Telex 2341
Phone: 031/24 3422
Kaupmannahöfn:
Allfreight Ltd.
35. Amaliegade
DK-1256 Copenhagen K.
Cable: Alfragt
Telex: 19901 b Alckh
Phone:(01) 111214
Að sjálfsögðu bjóðum við áfram reglubundnar feröir frá eftirtöldum stöðum:
Hetsinki. Svendborg, Hamborg. Rotterdam, Antwerpen og Goole auk Halifax i Kanada og
Gloucester í Bandaríkjunum.
Komið. hringið, skrifið — við veitum allar nánari upplýsingar fljótt og örugglega.
SKIPADEILD SAMBANDSINS
SAMBANDSHÚSINU REYKJAVÍK SÍMI 28200
Gautaborg
SVÍÞUÓÐ