Tíminn - 29.11.1979, Blaðsíða 20

Tíminn - 29.11.1979, Blaðsíða 20
Gagnkvæmt tryggingaféJag Auglýsingadeild Tímans. 18300 FIDELITY HLJÓMFLUTNINGSTÆKI Pantið myndalista. Sendum í póstkröfu. ^IONUAI Vesturgötu II wWHfHli simi 22 600 Fimmtudagur 29. nóvember 1979 267. tölublað—63. árgangur Vinnan vi6 kiæ6ningu loftnetsins er kuldasamt verk. Plöturnar eru úr áli og i þeim eru hitaelement til þess aö varna isingu. Loftnetiö er einnig meö öryggisbúnaöi vegna mikillar vindhæöar, en stööinni „slær út”, ef vindhraði fer yfir 80 hnúta. í grennd viö stööina er vindmælir sem staöiö hefur þar i eitt og hálft ár og þann tfma hefur aldrei oröiö svo hvasst þarna. Veður tefur klæðningu loftnets jarðstöðvarinnar AM — Hvasst var og hált á leiö okkar Timamanna upp aö jarö- stööinni viö Úlfarsá I gær, en viö litum þar viö til þess aö sjá hvernig verkinu miöaöi. Enn hvassara var þó uppi á sjálfum skerminum, þar sem menn voru aö festa álplötur yfir stálgrind- ina, enda hefur veöur nokkuö taf- iö þaö verk aö undanförnu. Jón Þóroddur Jónsson sagöi okkur aö verkinu miöaöi samt vel og væri gert ráö fyrir aö því yröi lokiö í jantíar eöa febrtiar. Aö lok- inni prófun ætti hún því aö veröa tilbiíin til notkunar i byrjun april. Eins og áöur hefur komiö fram mun þaö veröa gervihnötturinn IntelsatlV A,sem ibyrjun veröur miöaö á, en sá hnöttur er oröinn gamall og nær full nýttur og pláss litiö fyrir nýjar stöövar. Mun simasamband okkar þvi fyrst um sinn fara i gegn um Þýskaland einvöröungu, en þegar hinum nýja Intelsat V verður skotið upp I ágúst, munu verða sett upp föst sambönd viö fleiri lönd, Sviþjóö, Bretland og ef til vill Bandarikin. 1 gegn um stöðvar þessara landa fást siöan linur tengdar til ann- arra landa, en ekki er taliö hag- kvæmt að koma upp föstum sam- böndum vlðar. Steingrímur Hermannsson: Framsókn eini flokkurinn Endurtieimtum fyigið og stöðvum ,Jeiftursóknina” „Stefna Sjálfstæðis- flokksins nú verður ekki með neinu móti framkvæmd nema með svo gifurlegum sam- drætti að það væri hreinasta kverkatak á þjóðarbúinu”, sagði Steingrimur Her- mannsson i viðtali við blaðið þegar hann var að þvi spurður hverjar hann teldi afleiðingar „leiftursóknarinnar” i framkvæmd. „Þeir reyna aö telja fólki trú um aö þeir geti náö veröbólg- unni niöur i þaö stig sem er i ná- grannalöndum á einum hundraö dögum. Þessi boöskapur einn boöar ekkert annaö en kreppu. Þaö er alveg ljóst, sagöi Steingrimur, „þegar skoöuö er hin nýja stefna Sjálfstæðis- flokksins aö þar er um aö ræöa svo hreinræktaöa ihaldsstefnu aö þaö veröur að teljast nánast ótrUlegt. Þaö hefurkomiö fram, m.a. i sjónvarpsumræðum, að málsvarar Sjálfstæöisftokksins geta engan veginn rökstutt aö þessi mikli samdráttur, þessi mikla vaxtahækkun, verölags- frelsiö, afnám allrar visitölu- tengingar launa, geti þýtt nokk- uöannaö en heiftarlega kreppu. Þaö er mjög mikilvægt aö Framsóknarflokkurinn fái nægilegan styrk til þess aö stööva þessa „leiftursókn” hægriaflanna. Þaö er greinilegt af viðtölum og einnig af þeim skoðanakönn- unum sem hafa birst aö straum- urinn stendur til okkar fram- sóknarmanna. Og þaö er alveg fyllUega Ijóst af öllu þvi sem fram hefur kom- iö aö Framsóknarflokkurinn er eini flokkurinn sem getur komiö I veg fyrir aö Sjálfstæöis- flokkurinn og Alþýöuflokkurinn geti fariö saman i stjórn og framkvæmi þessa stefnu ihalds- ins. Viö framsóknarmenn þurfum aö endurheimta okkar fyrra fylgi og ég tel þaö alls ekki úti- lokaö einsogmálin standa. Slikt mun veröa til þess aö koma i veg fyrir óheillaþróun i málefn- um þjóöarinnar. Auk þess ligg- ur þaö fyrir aö fái Alþýöu- flokkurinn ærlega ráöningu mun hann ekki þora I nýja viöreisnarstjórn”. DC-3 vélin á Reykjavikurflugvelli. Flugvél strand á íslandi — komst ekki úr landi áður en að ferjuleyfið rann út FRI — Bandarisk hjón komu nýlega hingað til landsins á gamalli DC-3 flugvél sem hafði ekki gilda loftferðapappira en hafði hinsvegar ferjuleyfi frá Bretlandi til Bandarikjanna. Ferjuleyfiö rann siöan út á þriöjudag en þau höföu veriö hér siöan á laugardag en ekki komist héöan vegna veöurs. Flugmaöur- inn átti þess kost aö fara á þriðju- dag en hann vildi ekki taka þá áhættu aö veröa þá frekar strand á Grænlandi Inn i máliö blandast siðan deil- ur milli fyrrverandi og núverandi eigenda vélarinnar. Stóö I stappi út af þvi I Bretlandi og þvi uröu hjónin svona sein fyrir. Þau hafa ákveðið aöfara til Bandarikjanna og sækja vélina siöar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.