Tíminn - 02.12.1979, Page 18
18
Sunnudagur 2. desember 1979
Klassíkin i algleymingi.
Já, þegar ég haföi lokiö gagn-
fræöaprófi, einblindi ég á þann
möguleika að veröa tónlistar-
kennari og ég hef stundaö nám i
gitarleik i fimm ár.
Hjá hverjum læröir þú?
Eg stundaöi nám hjá Eyþóri
Þorlákssyni i Tónlistarskóla
Kópavogs og er hann flutti sig
yfir i Tónm^nntaskóiann i
Reykjavik var ég hjá ötinu
Hansen. Siöan var ég hjá
Gunnari H. Jónssyni i Tónskóla
Sigursveins, en Gunnar leikur
bókstaflega á öll hljóöfæri.
Hvaöan hefur þú þessa miklu
starfsorku?
Ætli ég hafi þaö ekki úr
móðurættinni. Móöir min, Ingi-
björg Steinunn Bjarnadóttir,
sem nú vinnur i Lystadún, vann
á allt að þremur stöðum i einu
meöan hún var að byrja aö
byggja og þa vorum við þrjár
dæturnar litlar. Svo kynntist
hún sinum manni, Valdimar
Karlssyni á togaranum Vigra og
þá komst meiri skriöur á húsið,
en þvi er ekki nándar nærri lok-
iö.
Þaö væri nú gaman aö þvi aö
vita, hvernig hún hefur fariö aö
þvi að vinna ferfalt?
Ef ég á að telja upp störfin, þá
var hún fangavörður, vann i
fatageymslunni i Súlnasal Hótel
Sögu, og við sauma i Valhús-
gögnum. Einnig greip hún i að
sauma heima fyrir fólk, ef svo
bar undir. Um helgar var hún i
húsinu og naglhreinsaði.
En nú er bíllinn þinn oröinn
mjög verömætur. Hvaö
heldurðu, aö þú getir selt hann
fyrir. mikiö?
Ég hef látið smá gera hann
upp sl. fjögur ár og hann er orð-
inn svo dýr, að það er ómögulegt
aö selja hann, — nema gefa
60—70% af honum.
Geturöu lýst þvl aðeins, sem
gera þurfti?
Já, ég byrjaði á þvi aö kaupa
nýjar hjólskálar. Þær sem fyrir
voru, voru svo slitnar, að þaö
þýddi ekkert aö renna þær.
Blöndungurinn var ónýtur,
mótorpúöarnir farnir og þegar
ég setti i gir aftur á bak, braut
ég kveikjulokið vegna titrings,
sem myndaöist. 011 þessi endur-
nýjun var mjög dýr. í bilnum
varheill bekkur að framan, eins
og i mörgum ameriskum bilum,
en ég lét setja i hann tvo stóla og
klæöa hann rauðu plussi. Svo
var teppalagt, „silsarnir”
klipptir 1 burtu og endurnýjaðir
og billinn siðan sprautaöur.
Þú ert ekkert I Kvartmflu-
klúbbnum?
Nei, ég hef engan áhuga á
hraöakstri, „spitti”. Auk þess
er billinn of þungur fyrir slikt, 2
tonn. Hann eyðir i samræmi við
það. Annars hefur eyðslan
minnkað siðan ég fékk nýja
karboratorinn og pústflækjur
léttu enn meira á eyðslunni.
Hvað helduröu að þú farir
meö á mánuði i bensin?
Um 130 þúsund krónur.
Er einhver, sem deilir með
þér þessum bilaáhuga?
Já, ég á ágætan vin, sem er
sama sinnis og ég. Hann er
einnig bilstjóri hjá Sambandinu
og heitir Kristján Pálsson.
Auglýst er eftir
umsóknum um starf
RÖNTGENTÆKNIMANNS VIÐ TÆKNI-
DEILD BORGARSPÍTALANS:
Starfssviö: Uppsetningar, viðgeröir og eftirlit með tækni-
búnaði á röntgendeild.
Grunnmenntun: Rafeindavirkjun eða raftæknifræði.
Starfsþjálfun og undirstööukennsla við Röntgendeild
Borgarspitalans og e.t.v. f samvinnu við aðra spltala I
fyrstu, en siðar viðbótarnámskeið eftir þörfum hjá erlend-
um framleiðendum eða sjúkrahúsum.
Frekari upplýsingar um starfið veita framkvæmdastjóri
spltalans og yfirlæknir röntgendeildar.
Umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum skulu sendar
sömu aöilum fyrir 15. desember n.k.
Reykjavik, 30. nóvember 1979.
BORGARSPITALINN
r
L
EFLIÐ TlMANN
J
Rafhitun
til sölu eru 13 litið
notaðir þilofnar og
200 1 heitavatns-
geymir. Upp-
lýsingar i sima 43873.
KORALLi
fallegu
norsku
veggsamstæöurnar
frá
Bahus
HUSGAGNASYNING
dag
kl
2
5
Verið
velkomin
SMIDJUVEGl 6 SIMI 44544
Slðast liöið fimmtudagskvöld buöu þeir ólafur Jóhannesson og Einar Agústsson velunnurum Fram-
sóknarflokksins tii kaffidrykkju i veitingahúsinu Þórscafé. Var boð þetta fjöisótt og mikill hugur i
mönnum. A meðfylgjandi myndum sjást þeir ólafur Jóhannesson og Einar Agústsson ásamt eiginkon-
um sinum og fieiri gestum þetta kvöld. Timamyndir Tryggvi