Tíminn - 11.12.1979, Side 4
4
Þriðjudagur 11. desember 1979.
Dráttarvél
Vill ekki einhver selja notaða disil
dráttarvél með ámoksturstækjum á hóf-
legu verði?
Hávarður Bergþórsson,
Hrauni, Reyðarfirði.
Aðalfundur
Byggingasamvinnufélags Kópavogs verð-
ur haldinn mánudaginn 17. desember kl.
20.30 að Hamraborg 11. (Þinghól) Venju-
leg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
J.R.J.
J.R.J. Bifreiðasmiðjan hf./Q*
Varmahlið,
Skagafirði.
Simi 95-6119.
Bifreiðaréttingar — Yfirbyggingar — Bifreiöamálun bg
skreytingar — Bflaklæðningar — Skerum öryggisgler.
Við erum eitt af sérhæföum verkstæöum I boddyviðgerð-
um á Norðurlandi.
Styrkir til Noregsfarar
Stjórn sjóðsins Þjóðhátiðargjöf Norömanna auglýsir eftir
umsóknum um styrki úr sjóðnum vegna Noregsferða 1980.
Samkvæmt skipulagsskrá er tilgangur sjóösins „að auð-
velda islendingum aö ferðast til Noregs. i þessu skyni skal
veita viðurkenndum félögum, samtökum, og skipulögðum
hópum ferðastyrki til Noregs I þvl skyni aö efla samskipti
þjóðanna t.d. meö þátttöku I mótum, ráðstefnum, eða
kynnisferðum, sem efnt er til á tvihliða grundvelli. Ekki
skal úthlutað feröastyrkjum til einstaklinga, eða þeirra
sem eru styrkhæfir af öðrum aðilum”.
1 skipulagsskránni segir einnig, að áhersla skuli lögö á að
veita styrki, sem renna til beins ferðakostnaöar, en um-
sækjendur sjálfir beri dvalarkostnaö I Noregi.
Hér meðer auglýst eftir umsóknum frá þeim aðilum, sem
uppfylla framangreind skilyrði. 1 umsókn skal getiö um
hvenær ferð verður farin, fjölda þátttakenda og tilgang
fararinnar. Auk þess skal tilgreina þá upphæö, sem farið
er fram á.
Umsóknir óskast sendar til stjórnar sjóðsins, forsætis-
ráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu, Reykjavlk, fyrir 15.
janúar nk.
Lóðarúthlutun —
Reykjavík
Reykjavikurborg auglýsir eftir
umsóknum um byggingarrétt fyrir kvik-
myndahús i Mjódd, Breiðholti.
Byggingarreiturinn er byggingarhæfur en
framkvæmdatimi ákveðst 2 1/2 ár.Greiða
skal 1/3 hluta áætlaðs gatnagerðargjalds
innan mánaðar frá úthlutun, en eftirstöðv-
arnar á 2 árum.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrif-
stofu borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, 3.
hæð og er sérstök athygli vakin á þvi, að
umsóknum verður þvi aðeins sinnt, að
þeim sé skilað á þar til gerðum eyðublöð-
um. Umsóknarfrestur er til 21. desember
n.k. Eldri umsóknir ber að endurnýja.
Allarnánari upplýsingar eru veittar á
skrifstofu borgarverkfræðings, Skúlatúni
2, 3. hæð.
Borgarstjórinn i Reykjavik.
Myndin hér aö ofan var tekin af lokaatriðinu á Jólakonserti ’79 sem Hljómplötuútgáfan og fleiri aðilar
héldu I Háskólabiói s.l. laugardag. Allir skemmtikraftar sem fram komu gáfu vinnu slna, svo og allir
aðrir er viö skemmtunina voru riðnir, en ágóðanum sem skiptir milljónum verður varið til Barna-
heimilisins Sólheima I Grlmsnesi. t iokaatriðinu komu allir skemmtikraftarnir fram sameiginlega,
héidu og kertum, og sungu Heims um ból. (Timamynd: Tryggvi)
Frá undirritun samninga I Seoui. H.H. Cho, islenskur konsúll,
Gunnar Helgason og Y.T. Shim frá Korean Airlines.
Flugleiðir
Samningar við Korean
Airlines undirritaðir
Fáir árekstrar
um helgina
FRI — Aðeins uröu 25 árekstrar
frá laugardagsmorgni fram á
mánudagskvöld. 8 urðu á laugar-
dag, 5 á sunnudag og 12 I gærdag.
Taldi lögreglan að þetta væri
fyrirneðan meðallag og væri það
vissuiega til bota ef þessi þróun
héidi áfram.
Geta vegg-
fóðrað
með upp-
sagnar-
bréfunum
AM — „Sumir okkar yngstu
manna hafa fengið átta upp-
sagnarbréf og segja I gamni að
bráðum geti þeir fariö að vegg-
fóðra með þeim,” sagði Baldur
Oddsson,formaður Félags Loft-
leiöaflugmanna en mikið hefur
verið um endurráðningar flug-
manna og uppsagnir að undan-
fórnu. Þannig var nlu mönnum
sagt upp hinn 1. júni si. en þeir
endurráðnir 1. september vegna
piiagrlmaflugsins, þótt þeir
fengju þá samstundis upp-
sagnarbréf aftur I hendur.
Baldur sagði að félagið væri
með þessu að tryggja sig gegn
hugsanlegu verkefnaleysi, en
flugmenn hefðu margbent á aö
t.d. 200 fridagar flugmanna,
sem ekki heföi gefist ráörúm til
aö taka fyrir önnum, mæltu tíl
þess gagnstæða. „Við förum
a.m.k. ekki að fljúga á fridögun-
um okkar, meðan aðrir ganga
atvinnulausir,” sagði hann.
Auglýsið í
Tímanum
FRI — Tvær af þeim f jórum flug-
vélum, sem Flugleiðir keyptu af
Korean Airlines eru væntanlegar
til landsins um miðjan janúar.
Hinar tvær hafa verið seldar
finnska flugfélaginu Finnair og
verður þeim væntanlega flogið til
Finnlands um sama leyti.
Kaupsamningurinn var undir-
ritaður i Seoul 13. nóv. s.l. Fyrir
Flugleiðir undirritaði Gunnar
Helgason samninginn en fyrir
Korean Airlines Y.T. Shim.
Vélar þær sem hingað koma eru
af gerðunum F-27-200 og F-27-500.
Kaupin eru gerð vegna þess að
unnið hefur verið aö stefnumótun
varðandi innanlandsflugflota
Flugleiða. Stefnt er að stærri og
burðarmeiri flugvélum og jafn-
hliða þvi að stöðlun flotans, þann-
ig að sams konar hreyflar verði i
öllum flugvélum.
Jólafundur
Félag framsóknarkvenna I Reykjavik
heldur jólafund i Atthagasal Hótel Sögu
fimmtudaginn 13. desember kl. 20.30.
Heiðursgestir fundarins eru Einar Á-
gústsson og frú. Nýir félagar velkomnir.
Félagskonur eru minntar á jólapakkana.
Mætið vel.
Stjórnin.
Áhugafólk
um bætt
SÉRSTAKLEGA FRAMLEITT SPVRNU-
EFNI TIL VIÐGERÐA OG ENDUR-
BYGGINGA Á BELTUM VINNUVÉLA.
SPARIÐ FÉ
Lækkið viðhaldskostnað.
Notið öruggar gsðavörur.
Slmi 91-19460
L_jD%1 húsnæðiskjör
ÁHUGAFÉLAG UM HÚSEININGAVERK-
SMIÐJU h/f/ boðar nú til stofnfundar í Loft-
leiðahótelinu sunnudaginn 16. des. kl. 14.30.
Þeir, sem vilja taka þátt í þessum samtökum
og gerast stofnfélagar, snúi sér til skrifstof-
unnar Borgartúni 18, sími 19788 fyrir þann
tíma, en hún verður opin alla daga frá kl. 12 á
hádegi til kl. 18.30.
Þeir, sem hafa undir höndum undirskrifta-
lista, skili þeim í síðasta lagi fimmtudaginn
13. des.
Undirbúningsnefndin.