Tíminn - 11.12.1979, Síða 11

Tíminn - 11.12.1979, Síða 11
Þriöjudagur 11. desember 1979. n Guðjón Albertsson: BREIÐHOLTSBÚAR Skáldsaga sem lýsir lifnaðar- háttum, sambúðarvandamálum og neysluvenjum Breiðhyltinga, en er raunar almenn íslendinga- saga ef að er gáð. Höfundurinn er borinn og barnfæddur Reyk- víkingur — og sjálfur Breið- holtsbúi. Jón Birgir Pétursson: VITNIÐ SEM HVARF íslensk sakamálasaga Ljóslifandi frásögn af þeim hlið- um borgarlífsins, sem ekki blasa við sjónum almennings. Höf- undurinn á að baki margra ára fréttamannsferil og þekkir til máia. Bók þrungin spurn og spennu. Óskar Ingimarsson: f GEGNUM ELD OG VATN Spennandi skáldsaga sem gerist á íslandi, frlandi og í Danmörku. Óprúttnir samsærismenn ræna sýslumannsdótturinni, en sá er til sem gengur í gegnum eld og vatn til þess að bjarga stúlkunni sem hann elskar. (Xj ÖrnogÖrlygur Vestungötu42 s=25722 Viltu vera med í V erðlaunagetraun? Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur ákveðið að bregða á leik og gefa fólki tækifæri á að taka þátt í svoiítilli jólagetraun. Getraun þessi er í sjálfu sér ekki vandasöm, þar sem svörin við spurningum okkar er að finna í bókafréttum forlagsins sem birtast hér í blaðinu. Fyrstu verðlaun í getrauninni verður kjörgripurinn „íslandsferð Stanleys“, en níu önnur verðlaun verða í getrauninni. Berist margar réttar lausnir verður dregið úr þeim, og er stefnt að því að verðlaunahafar fái verðlaun sín fyrir jól. Svör þurfa að hafa borist til útgáfunnar eigi síðar en 18. desember. Skrifið svörin inn á meðfylgjandi seðil og sendið hann til útgáfunnar í umslagi merktu: Bókaútgáfan Örn og Örlygur, Vesturgötu 42, Reykja- vík. — Jólagetraun. VERÐLAUN 1) íslandsleiöangur Stanleys, 2) Steingríms saga 3) Treg í taumi, 4) Sígildar sögur, þrjár bækur, 5) í gegnum eld og vatn, 6) Myndir úr raunveruleikanum, 7) Bændablóð, 8) Breiöholtsbúar, 9) Skellur á skell ofan, 10) Svikráð á sólarströnd. Spurningar: 1) Hvað heitir bókin í bókaflokknum um hernámsárin er kemur nú út? 2) Við hvaða bæ kenndi Hannes Pálsson-sig, en hann skrifaði bókina Vopnaskipti og vinakynni? 3) Hvert hefur verið aðalstarf Jóns Birgis Péturssonar sem skrifar bókina: Vitnið sem hvarf? 4) Hvað hafa komið út margar bækur í bókaflokknum ,,Litlu mat- reiðslubækurnar"? Svör: 1. 2.________________________________________________________________ 3. 4. Nafn Heimilisfang Sími FALIÐ VALD eftir Jóhannes Björnsson Hverjir hafa völdin á bak við tjöldin, hér heima og erlendis? í hverra spottum spriklar hinn almenni borgari? FALIÐ VALD á eflaust eftir aö vekja bæði ugg og reiði því bók- in afhjúpar þaö sem ætlað er aö liggja í þagnargildi. ' FORN FRÆGÐARSETUR eftir Séra Ágúst Sigurðsson á Mælifelli. Bók þessi er sjór af fróðleik úr þjóðarsögunni, fjölbreytt mjög °g skemmtileg aflestrar. Séra Ágúst segir frá misjöfnu mannlífi °g dregur fram íslenska örlaga- þætti Fjöldi mynda og teikninga prýða bókina. Aöalheiöur Bjarnfreósdóttir MYNDIR ÚR RAUNVERULEIK- ANUM Aöalheiöur segir frá saklausum börnum og hrösunargjörnu fólki, barnaverndarnefnd og betrun- arstofnunum, sveitalífi og sjó- mennsku, fangelsum og fínum heimilum. Hún skyggnist inn í skuggahverfi borgarinnar og af- kima sálarinnar. Hér segir frá miðaldra húsmóður sem veit ekki hvort hún lifir sínu lífi eða annarra. Hún verður manni sínum til skammar, börn- unum til leiðinda og hrossinu hættuleg. SVIKRÁÐ Á SÓLARSTRÖND Ung stúlka fær þaö óvenjulega verkefni að smygla mikilvægum skjölum til uppreisnarforingja í litlu eyríki í Karíbahafinu. Þetta er ekki heiglum hent og margt skeður áöur en yfir lýkur. Snjó- laug Bragadóttir þýddi. nama

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.