Tíminn - 06.01.1980, Side 15
Sunnudagur 30. desember 1979
15
Rafeinda
lindir
fram-
leiddar
á íslandi:
Orkumeira loft innan dyra
GV — Slbastlibið vor var sýnd
kvikmynd i þættinum „Nýjasta
tækni og visindi”, sem vakti at-
hygli fjölmargra. Fjallaði hún um
tiltölulega nýjar rannsóknir á þvl,
hvernig magn það af raforku sem
bundið er sameindum loftsins I
kringum okkur, hefur afgerandi
áhrif á velliðan og heilbrigði,
bæði andlega og likamlega séð.
Þeim, sem ekki sáu kvikmynd
þessa kann að þykja við fyrstu
sýn óliklegt að rafmagn og ástand
sálar og likama eigi orsakatengsl
sin á milli. Þvi er rétt að minna á
að starfsemi taugakerfis og
vöðvakerfis fylgir veruleg raf-
magnsvirkni, sem liggur starf-
semi þeirra til grundvallar og
sem mæld er við heilsufarsathug-
anir, svo sem þegar tekin eru
hjartalinurit og heilalinurit.
Einnig má minna á að við lifum i
sterku rafsegulsviði jarðar og
náttúrulegar rafhleðslur eru alls
staðar i andrúmsloftinu kringum
okkur þó þær séu venjulega þá
aðeins sýnilegar, þegar svo mikið
magn þeirra streymir i einu milli
yfirborðs jarðar og efri hluta
gufuhvolfsins að eldingar verða
til.
A svipaðan hátt og jörðin hefur
sitt rafsegulsviö, hefur likami
einstaklingsins einnig sitt raf-
segulsvið, sem meö nákvæmum
tækjum má mæla I nokkurra
metra fjarlægö. Með hátiðni ljós-
myndatækni, svokallaðri Kirlian
ljósmyndun, er hægt að gera
geislun rafeinda út frá líkaman-
um sýnilega svarta á hvftu.
Lifefnafræðilegar rannsóknir á
þvi hvernig orka er unnin úr fæö-
unni með brennslu blóðsykurs i
likamanum hafa þar að auki leitt
I ljós, aö smáatriði orkuvinnsl-
unnar eru raforkuiegs eðlis. Raf-
eindir eru unnar úr niöurbroti
sykursins, fluttar yfir á sérstakar
lifrænar rafhlöður, aðallega svo-
kallað ATP (Adenosin Tri Phos-
fat), sem slöan flytja raforkuna
og gefa hana frá sér á þeim stöð-
um þar sem rafeindanna er þörf.
Rafmagn i formi rafeinda er
þvi til staðar bæði inni I likama
okkar og I umhverfi okkar. 1 raf-
magnsleiðslum er þvi aðeins
þjappað saman i meira magni og
með hærri spennu en venjan er i
hinni llfrænu náttúru.
Skortur rafeinda
í umhverfi
skapar vanlíðan
Rannsóknir viöa um heim hafa
á slðustu árum sýnt að skortur á
rafeindum I umhverfi mannsins
skapar vanliðan, eykur streitu-
einkenni og spennu. Einnig fjölg-
ar sjúkdómstilfellum og tilhneig-
ing til þunglyndis eykst. Einbeit-
ingarhæfni og vinnuþreki hrakar.
Liklegt er að skýringin sé I þvi
fólgin að likaminn tapi hluta af
rafeindum sinum til umhverfis-
ins, þegar þær skortir þar, en
slikt orkutap leiöi siðan til breyt-
inga á likamsstarfseminni. Þar á
meöal má nefna hækkun blóö-
þrýstings, ertingu slimhúða,
aukna tiðni hjartsláttar og öndun-
ar. Breytingar á hormónafram-
leiðslu hafa einnig komið i ljós,
einkum er vert að nefna aukingu
á framleiðslu „histamins” sem
þátt getur tekiö I myndun ofnæm-
is og er þar til staöar orsaka-
hlekkur sem skýrir af hverju
skortur rafeinda I umhverfi eykur
tiðni einkenna frá sjúkdómum
eins og ofnæmi og asma.
Rafeindalindir: ný tæki til
eflingar rafeinda í um-
hverfi
Til þess að ráða bót á þessum
slæmu afleiðingum skorts á raf-
eindum I umhverfi, hafa visinda-
menn hannað tæki sem gefa raf-
eindir út i andrúmsloftið innan
dyra. Hafa þau hlotið heitið raf-
eindalindir á Islenskum en þaö er
hliöstætt enska hugtakinu „ion
generator”. íslenskt fyrirtæki
Rafrás h/f er aö hef ja framleiðslu
slikra tækja hér á landi, For-
stöðumaður tæknideildar Rafrás-
ar Asgeir Bjarnason sagði I við-
tali við blaðiö, að tækin ynnu á
þann hátt að þau framleiddu raf-
eindir sem tengdust sameindum
loftsins og skapaðist þannig innan
uyra orkumikið loft likt og finna
mætti viö góð skilyrði utan dyra.
Sagöi Asgeir, að enda þótt við á
tslandi værum svo heppin að eiga
gott loft utan dyra væri raf-
hleöslu-ástand loftsins innan
dyra, á heimilum og vinnustöð-
um, verulegum takmörkunum
háð, hér sem I öðrum löndum.
Nútima byggingarmáti, gerviefni
og loftræstikerfi væru þannig að
rafeindir kæmust I of takmörkuð-
um mæli inn I húsrými. Einnig
væri veður hér mjög breytilegt,
lægðir algengar, loftþrýstingur
og rakastig oft fljótt aö breytast,
en viö slik skiyrði væri magn raf-
einda I andrúmsloftinu einnig
miklum breytingum undirorpið.
Einnig hefði komið I ljós, aö
tóbaksreykingar eyddu rafeind-
um úr loftinu og mætti að hluta
rekja hin slæmu áhrif tóbaks-
reyks á andrúmsloft til þess.
Hefði komiö I ljós, að rafeinda-
lindir flýttu þvi aö loft hreinsaðist
af tóbaksreyk og lykt.
Asgeir kvaö framleiöslu raf-
eindalindanna vera að hefjast svo
að ekki mun liöa á löngu þar til Is-
lendingar geta kynnst þessari
tækninýjung af eigin raun.
Skákkvaðning
r
Einar S. Einarsson, forseti S. I.
og Skáksambands Norðurlandanna
Skáklistin skipar veglegan
sess I menningarlifi tslendinga
og tsland háan sess meöal skák-
þjóða. Engin þjóö með innan við
eina milljón ibúa á alþjóðlegan
meistara I sinum rööum, hvað
þá stórmeistara, nema Islend-
ingar, sem eiga 2 stórm. og 4
alþlm., enda skákin hér al-
menningseign.
Afreksmenn eru mikils virði á
sérhverju sviði. trt á við, þjóö-
inni til vegsauka. Inn á við, til
aö laöa aðra að, sérstaklega
ungu kynslóðina, til hollra hugð-
arefna. Þróttmikið unglinga-
starf Skáksambandsins og tafl-
félaganna i landinu hefur skilað
glæstum árangri, svosem dæm-
in sanna.
Að auðga andann og virkja
hugarorkuna yfir skáktafli er
öllum hollt, ekki hvað sist nú á
timum fjölmiðla og strumpa. A
skáksviðinu rlkir engin orku-
kreppa, né fyrirfinnst þar kyn-
slóðabil.
Heilbrigöi hugans og andlegt
jafnvægi verður ekki metið til
fjár, og það kostar litið að
viðhalda þvi, miðaö við að
hjálpa þeim sem það missa.
Skák er vel til þess fallin og hinn
félagslegi þáttur hennar hefur
ekki verið metinn sem skyldi.
Framsýni og fyrirhyggja eru
aðalsmerki góöra skákmanna
og sama má segja aö eigi við um
ráðstöfunarmenn opinbers fjár.
Ekki bera þó fjárveitingar til
skákhreyfingarinnar með sér aö
svo sé, þvi gætt hefur tilneiging-
ar til að láta fjárstyrki til henn-
ar þorna upp i hrunadansi verð-
bólgunnar, þrátt fyrir stóraukin
umsvif og fórnfúst fristunda-
starf áhugamanna.
Sama er að segja um samnor-
ræn skáksamskipti, sem mikill
áhugi er fyrir að geti þróast i þá
veru og orðið eins náin og að er
stefnt með háleitum markmið-
um Norðurlandaráðs um nor-
ræna samvinnu. A sama tima og
verið er að leggja á ráöin um
samnorrænan imbakassa,
NORDSAT, upp á amk. 100 mill-
jarða, til að einangra mann-
skapinn enn meira, fyrirfinnst
vart króna til aö efla persónuleg
tengsl og kynni milli grannþjóö-
anna, svo sem á skáksviðinu.
Hjól menningarlifsins, þar
með talið skáklistarinnar, þurfa
að geta snúist, ekki siður en at-
vinnulifsins. Félagssamtök
mega ekki gjalda þess að þau
hafa engan við að semja, og gert
að fjármagna þjóöholla starf-
semi sina umfram 50% með
betlistarfsemi. Þó hugsun sé til
Einar S. Einarsson, forseti S.i. situr hér afi tafli við Gunnar
Gunnarsson.
alls fyrst, eru peningarnir þó afl
þess sem gera skal.
Skáksamband tslands er sá
burðarás I skáklifi landsmanna,
sem mikils er krafist af, bæði
hvað innlent skákmótahald
snertir (skólaskák, deilda-
keppni, landsmót,) og hvað er-
lend skáksamskipti varðar. A
þessu nýbyrjaða ári er fjöl-
margt framundan m.a. Ólym-
píumót karla og kvenna, Atta-
landakeppni, auk árlegra
Heims- og Evrópumóta ung-
linga, Norðurlandamóta grunn-
og framhaldsskóla og margs
fleira. Þá stendur fyrir dyrum
að halda hér innan tiðar, i sam-
vinnu við Taflfélag Reykjavik-
ur, IX. Alþjóðlega Reykjavikur-
skákmótiö, sem oröið er mikið
fyrirtæki og kostnaðarsamt,
(20. millj.), en um leið ómiss-
andi þáttur i skáklifinu, eins-
konar skáklistahátið hér á landi
á 2ja ára fresti.
Um leið og bornar eru fram
alúðarþakkir til allra velunnara
manntaflsins fyrir mikilsverðan
stuðning og annan velvilja
skákhreyfingunni til handa á
undangengnum árum, er hér
með heitiö enn á ný á hið opin-
bera, bæjar- og sveitarstjórnir,
stéttarfélög og sýslusjóði, fyrir-
tæki og einstaklinga, til liðsinnis
við mikilvæga starfsemi skák-
hreyfingarinnar I landinu, ung-
um og öldnum til heilla.
SIGURSÆLT NÝAR.