Tíminn - 08.01.1980, Blaðsíða 7

Tíminn - 08.01.1980, Blaðsíða 7
Þriðjudagurinn 8. janúar 1980 7 í biðsal dauðans Eitt af þvi sem fylgir vel- megun er tillitsleysi einstakl- inganna gagnvart öðrum. Þvi meira sem menn hafa úr að spila þeim mun gráðugri verða þeir oft á tiðum og sjónarmið þeirra þrengri. Og þar sem menn eru nií almennt bæði félagsverur og vitsmunaverur, þá hafa þeir safnast i hópa til þess að tryggja réttindi sín og hagsmuni ýmiskonar og reyna þannig aö fá svolitið meira. Þessi darraðardans hefur á undanförnum árum gengið lengra og lengra og það sem áður var tiltölulega heilbrigt samstarf manna til að vernda hagsmuni sina, er fyrir löngu orðið að stjórnlausu og skynlitlu æði. Og það er ekki einungis að stétt berjist gegn stétt heldur hefur landiö allt verið rifið sundur og f staö þess að stjórna þvi sem efnahagslegri heild, þá hafa þröng kjördæmasjónarmið brotið niður eðlilega starfsemi og lögg jafarsamkundan og stærstu stofnanir á vegum rikis- ins eru orðnar að stórum hluta að afgreiðslustofnunum og fyrirgreiðslustofnunum og hag- nýt skynsemi og yfirsýn hafa vikið fyrir þröngum einka- sjónarmiðum. Það er vegna þessarar þróunar sem islenska þjóðin rambar nú á barmi gjaldþrots. Allar ytri aðstæður hafa verið góöar um langt ára- bil. Gjaldþrot okkar er verk misviturra og skammsýnna manna. Það sem hér hefur verið sagt i örfáum oröum, vita allir sem þetta lesa að eru aðeins naktar staðreyndir í öllum höfuð- dráttum. Enég erekki að skrifa grein um efnahagsmálalmennt, heldur ætla ég að draga upp úr þeim drullupolli sem við siglum nú á, einn fylgifisk sem er ljót skepna og meö þeim óhugnan- legri i aflanum. Þessvegna er þessi formáli nauðsynlegur. Ekki taka allir þátt í dansinum Það er nefnilega þannig þegar allir eruaðgeraþaðgott, að það vill sitja á hakanum sem ekki er mikið upp úr að hafa. 1 neyslu- þjóðfélagi eins og okkar er það hagvaxtarsjdnarmiðið sem ræður. Það virðist til að mynda hafa gleymst aö verulegu leyti, að það hafa ekki allir getað tekið þátt 1 hinu geðveikislega llfsgæðakapphlaupi undan- farinna ára. Þeirsem ekki geta veriö með I kapphlaupinu eru meðal annars þeir aðilar sem ekki eru lengur inni á vinnumarkaðinum eða búa við skerta eða enga starfs- orku. Þetta fólk veröur að búa við skömmtun samfélagsins. Og skömmtun llfskjara til þessara minnihlutahópa hefur alltaf verið naum. Hver holskefla sem hvolfist yfir þjóðfélagið I efna- hagsmálum brotnar fyrst á þessu fólki. Það fólk sem hér á hlut að máli getur ekki eöa vill ekki bera hönd fyrir höfuö sér og þetta fólk virðist eiga ótrú- lega fáa formælendur, sérstak- lega aldraða fólkið, sem er stærsti hópurinn. Þegar kemur aö þvi aö ræða um meðferð okkar á öldruðu fólki, þá er þar um að ræða mælikvarða á þá siðmenningu sem rikir í þjóöfélaginu. Þarna höfum við staðið okkur illa og gerum enn. Meðhöndlunokkar á öldruðu fólki er I engu samræmi við efnahag þjóöarinnar. Þetta fólk gleymist oftast, bæöi hvað varðar efnahagslegt öryggi þess og ekki slöur þegar litiö er á hina félagslegu hlið málsins. Það er fróðlegtað berasaman hvernig við búum að börnum og unglingum I skólakerfinu og hvernig viö búum svo aö öldr- uðu fólki. Báöir þessir þjóö- félagshópar þurfa að hlíta vissri forsjá heiriíila og sam- félags um visst árabil. Fyrir börn á grunnskólaaldri byggjum viö skilyr ðislaust skólahús og borgum skilyrðis- laust skólabækurnar og kenn- uruimsem annast þetta fólk og troða I þaö,borgum við einnig skilyröislaust úr sameigin- legum sjóði. Hrafn Sæmundsson Fyrir aldraða er ekkert borgað skilyrðislaust Þegar kemur aö hinum enda mannlifsins, þá er ekkert gert eða borgað skilyröislaust. Það er ekki byggt nema litið brot af þvi húsnæöi sem aldraö fólk þarf á að halda og það þyrfti margfalt fleira starfrfólk til að annast aldraða, sem þurfa aðstoðar viö og hjúkrunar. Oghverniger hinni félagslegu hlið málsins variö? Við rekum fólkaf vinnumarkaði, í mörgum tilvikum í fullu fjöri um 67 ára aldur. Stór hluti þessa fólks er þar með slitinn upp með rótúm og þ'að vistað' i biðsal dauðans, þrátt fyrir mikla starfsorku og llfsorku oft á tiðum. Þetta eru staðreyndir sem allt of fáir vita um og miklu fleiri loka augunum fyrir. Og nú er enn ein holskeflan að lenda á okkur. Það er meðal annars þess vegna sem ég er nú að nota fjölmiöla til þess að vekja athygli á þessum þætti I samskiptum manna. Ef til vill er það blekking, að hægt sé með einhverjum árangri aö skirskota til siö- ferðislegra sjónarmiöa manna i þessum efnum. Liklega bæri þaf meiri árangur aö benda mönnum á þá staöreynd að timinn stendur ekki i stað og innan tiðar veröum viö komin á þann aldur aö okkur verður sjálfum ýtt út af vinnumark- aðinum eða með öörum hætti sett inn i þennan biðsal sem ég talaði um. Gallinn við þessa skirskotun er samt sá, að ótrúlega margir sem hafa með málefni aldraðra og annarra minnihlutahópa að gera, eru sjálfir baktryggðir, allavega hvað efnahag snertir. Ég hef iðulega reifað þessi málefni i blöðum og timaritum. Margir halda þvi fram að blaöa- greinar hafi ekki ýkja mikil áhrif. Menn segja aö úrslit mála ráðist frekar annarsstaðar. Þó er það staðreynd að texti stuðlar að þvi að móta almennings- álitið. Ég mun þessvegna halda áfram að skrria um málefni minnihlutahópa. Það vantar bara miklu fleiri til þess að ganga i þetta verk. Það þarf miklu meiri almennan þrýsting á þá sem ráða málefnum þess fólks sem hér um ræðir. Hraf n Sæ mundsson Viðamikið heimildarit Jón Espólin og Einar Bjarnason: Saga frá Skag- firðingum 1685-1847. IV. Iðunn 1979. 192 bis. Einar Bjarnason fræðimaður á Mælifelli er einn höfundur þessa fjórða og siðasta bindis hinnar miklu skagfirsku kröniku, sem Jón Espólin hóf að skrá. 1 fjórða bindi er skýrt frá atburðum, sem urðu á árunum 1842-1847 og kennir margra grasa sem vænta má. Hér er sagt frá veðurfari, frá mönnum, frá sakamálum og ýmsu óvæntu, sem fyrir bar, sagt frá mannaláti, stóratburðum, gift- ingum o.fl. o.fl. Einar Bjarnason lifði þann tima sem þetta bindi nær yfir og er þetta þannig samtimasaga. Af þeim sökum er frásögnin miklum mun fyllri en i fyrstu bindunum, auk þess sem sögu- maður leggur oft annan dóm á menn og málefni, en almennt er þegar fjallað er um löngu liðna atburði. Eins og eðlilegt má teljast er mest greint frá Skagfirðingum og atburðum, sem urðu i héraði. Engu að siður getur ritið ekki talist héraðssaga i strangasta skilningi. 1 þvi er all oft skýrt frá þvi, er gerðist annarsstaöar, einkum i nálægum héruðum, en einnig sunnanlands og vestan, og jafnvel erlendis. Oft er þó sem sögumaður fylgi brott- fluttum Skagfirðingum i önnur héruð, skrái frásagnir af þvi sem fyrir þá bar á nýju slóðum, og oft eru þeir heimildarmenn hans um það, sem gerist i kring- um þá. Af Skagfirðingum, sem þannig koma við sögu má nefna þá Viðivallabræður: Pétur, siöar biskup, Jón, og Brynjólf Péturssyni, Konráð Gislason og fleiri. Margar merkar frásagnir er að finna i ritinu. Þar er til að mynda skemmtileg frásögn um Sölva Helgason og segir frá þvi er hann falsaði sér vegabréf sýslumanns á Austfjörðum, þar sem menn voru m.a. beðnir að greiöa veg þess, er bréfið bæri og láta honum i té peninga, auk annars. Komst Sölvi alla leið vestur á Snæfellsnes og urðu margir við „bón sýslumanns”. Enn segir frá láti Jónasar Hallgrimssonar og Steingrims biskups Jónssonar, og góð frásögn er frá þvi er bein Reynistaðabræðra voru til grafar borin og erfi þeirra drukkið á Reynistað, en þar var Einar Bjarnason einmitt einn boösgesta. Skilmerkilega er sagt frá fyrstu útgerð þilskips i Skagafirði og þannig mætti lengi telja. A bls. 43 er athyglis- verð frásögn af fyrstu alþingis- kosningum i Skagafirði eftir endurreisn alþingis. Þar er skil- merkilega frá þvi greint hver skilyrði menn urðu að uppfylla til þess að verða kosningabærir, sagt er frá kosningareglum, sem og hvernig þingmönnum skyldi goldið þingfararkaup. Um kosninguna sjálfa segir orð- rétt: (bls. 43-44): „Þann sjötta dag Mai mánaöar var fulltrúakosning- þing haldið i Glaumbæ. Voru þar við aðstoðarmenn sýslu- manns, Halldór prófastur og student Einar Stefánsson á Reynistað. Kaus sýslumaður fyrstur alþinf’ismann fyrir Skagafjarðarsyslu og nefndi til Jón smið Samsonarson i Keldudal. Hneigöust margir þar eftir. Höfðu lika flestir einna best traust á honum, þegar að Einars gamla á Hraunum var ekki viðkostur sökum elli og lasleika, hvern allir mundu þó helst kosið hafa, hefði hann verið tilfær alþing hið nýja að sækja.” Einar þessi á Hraunum var faðir Baldvins Einarssonar, en Skagfiröingar þurftu varla að harma kosningu Jóns Samsonarsonar, hann reyndist hinn nýtasti þingmaður, og i bókinni er einmitt skýrt ýtar- lega frá undirbúningi hans fyrir þing og samskiptum viö kjósendur sina. Eru þeir kaflar mjög fróölegir. Einar Bjarnason, höfundur þessa rits, er góöur sögumaður, segir vel og lipurlega frá, en skortir þó frumleika Espólins. Einar hefur greinilega verið mikill Skagfirðingur og oft verður ljóst að honum gremst er hann telur að hallaö sé á sveit- unga sina. Þannig kemur gremja hans greinilega fram er hann segir frá þvi að Helgi Thordersen var valinn biskup eftir Steingrim Jónsson, en ekki Pétur Pétursson, „og ætluðu menn, að Bardenfleth konungs- fulltrúi hefði komið þvi á við konung og ráðuneyti hans...” Og enn lakara þykir Einari greini- lega að dr. Pétur varð ekki einu sinni dómkirkjuprestur. Eftirmáli er við ritið og er hann saminn af Hannesi Péturs- syni. Þar færir hann fyrir þvi óyggjandi rök, að Einar Bjarna- son sé höfundur að sögu frá Skagfirðingum ásamt Jóni Espólin, en Gisli Konráðsson eigi þar engan þátt, en áður töldu ýmsir að hann hefði tekið þar við er Espólin hætti. Alit- legur hluti þessa bindis, eða rúmlega 50 bls. er skrá um mannanöfn i öllum fjórum bind- unum. Hana hefur Kristmundur Bjarnason samið aö mestu leyti og liggur i augum uppi hvilikt nákvæmnis- og þolinmæöisverk það hefur verið. Hygg ég að fátt hafi verið betur unnið i islensk- um útgáfum á þessu ári en þessi skrá. Allur frágangur ritsins er með mestu ágætum og ber þeim Skagfirðingum heiður fyrir það mikla nauðsynjaverk að koma Sögu frá Skagfirðingum á prent. Jón Þ. Þór.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.