Tíminn - 08.01.1980, Síða 17
Þriðjudagurinn 8. janúar 1980
17
j Lausn á j ólakrossgátu
Kvikmyndasýningar i
tilefni 120 ára afmælis A.
Tsékhovs.
1 janúarmánuði verða kvik-
myndasýningar i MÍR-salnum.
Laugavegi 178, helgaðar leiklist i
Sovétrikjunum og þó einkum
rússneska rithöfundinum Anton
Tsékhov og verkum hans, en hinn
29. janúar eru liðin rétt 120 ár frá
fæðingu skáldsins fræga.
Sýndar verða 7 kvikmyndir,
langar og suttar, og er skýringar-
tal eða textar á norsku og ensku
með nokkrum þeirra, en aðrar
eru sýndar meö rússnesku tali
eingöngu, án textaþýðinga.
Kvikmyndasýningarnar verða
sem hér segir:
Laugardaginn 12. janúar kl. 15:
Bolsoj-le ikhúsið :kvikmynd gerð I
tilefni 200 ára afmælis hins fræga
leikhússi Moskvu árið 1976. Sýnd-
ir eru þættir úr ýmsum frægum
óperu- og ballettsýningum leik-
hússins/ brugðið upp svipmynd-
um af starfinu að tjaldabaki,
kynntir ýmsir af fremstu lista-
mönnum leikhússins, m.a. ball-
ettdansarinn Maris Liepa, sem
dansaði i Þjóðleikhúsinu fyrir fá-
um árum, o.s.frv. Tal á rúss-
nesku.
Laugardaginn 19. janúar kl. 15:
Anton Tsékhov,
heimildarkvikmynd um rithöf-
undinn fræga, og Sovésk leiklist,
mynd um leiklistarlíf i Sovétrlkj-
unum. Skýringar meö báðum
myndunum fluttar á norsku.
Laugardaginn 26. janúar kl. 15:
óskilabarnog Sænska eldspýtan,
tvær kvikmyndir frá sjötta ára-
tugnum gerðar ef tir samnefndum
smásögum Tsékhovs. Báöar
myndirnar með rússnesku tali, sú
fyrri án skýringartexta, sú siðari
með textaþýðingum á ensku.
Sunnudaginn 27. janúar kl. 16:
Harmleikur á veiðum, kvikmynd
gerð 1978 undir stjórn Emils
Loteanu eftir einni af smásögum
Tsékhovs. Meðal leikenda:
Galina Belaéva, Kirill Lavrov og
Oleg Jankovski. Þessi kvikmynd
var sýnd I islenska sjónvarpinu I
febrúarmánuði sl. og vakti þá
mikla athygli. Hún er nú sýnd
án textaþýðinga.
Þriðjudaginn 29. janúar kl.
20.30: Vanja frændi, kvikmynd
gerð 1971 undir stjórn Andreis
Mikhalkov-Kontsalovski eftir
samnefndu leikriti Tsékhovs.
Meðal leikenda: Innokenti Smok-
túnovski og Sergei Bondartsjúk.
Tal á rússnesku, óþýtt.
Aðgangur að öllum kvikmynda-
sýningum i MlR-salnum, Lauga-
vegi 178, er ókeypis og öllum
heimill meðan húsrúm leyfir.
(FráMlR)
Gftartónleikar
f Norræna búsinu
Miðvikudaginn 9. janúar kl.
20:30 heldur danski gítarleikar-
inn TOM METHLING (f. 1948)
einleikstónleika I Norræna hús-
inu. Tom Methling hefur hlotið
tónlistarmenntun sína bæði i
Danmörku og á Spáni, en þar
hefur hann dvalist árum saman.
Hann hefur haldið tónleika I
Danmörku, Hollandi, Noregi,
Þýskalandi og á Spáni og eins I
Kanada. Tónleikarnir I Nor-
ræna húsinu eru fyrstu tónleikar
hans hérlendis og á þeim leikur
hann m.a. verk eftir J.S. Bach,
Fernando Sor. Francisco Tarr-
ega, Villa Lobos og sjálfan sig,
Hann leikur á 10-strengja gitar,
sem ■ einn þekktasti hljóð-
færasmiður Spánar hefur smið-
að fyrir hann. Aðgöngumiðar
kosta 1.500,- og verða seldir við
innganginn.
Gunnar G. Schram formaður
Lögfræðingafélagsins
Þann 19. desember sl. var
haldinn aðalfundur Lögfræðinga-
félags Islands. A fundinum
var Agnar Kl. Jónsson ambassa-
dor I Kaupmannahöfn kjörinn
fyrsti heiðursfélagi félagsins.
Hann hefur sem kunnugt er ann-
ast útgáfu Lögfræðingatals I þrjú
skipti, ritað sögu Stjórnarráðs Is-
lands I tveimur bindum,*auk
margs annars um lögfræðileg
efni.
Fráfarandi formaður, Hall-
varður Einvarðsson, rannsóknar-
lögreglustjóri, flutti skýrslu
stjórnar um starfið á liðnu ári.
Var það með fjölbreyttasta móti,
margir fræðafundir um lögfræði-
leg efni haldnir, þar sem bæði
voru islenskir og erlendis fyrir-
lesarar og I októbermánuði var
haldið málþing I Minniborg I
Grlmsnesi um viðfangsefni úr
stjórnarfarsrétti. SÍBasti fræða-
fundurinn var haldinn 13. desem-
ber sl. og ræddi þar dr. Armann
Snævarr hæstaréttadómari um
efnið: Foreldraréttur — barna-
réttur. Hugleiðingar um væntan-
leg barnalög.
Hina nýju stjórn félagsins
skipa: Gunnar G. Schram
prófessor, forseti lagadeildar,
formaður. Guðmundur Vignir
Jósefsson hrl. varaformaður og
meðstjórnendur eru: Friðgeir
Björnsson borgardómari, Ingi-
björg Rafnar lögfr., Logi Guð-
brandsson hrl., Pétur Hafstein
stjórnarráðsfulltrúi og Skarphéð-
inn Þórisson hdl.
Borgardómaraembættið:
Málum 1979 fækkaði
frá árinu áður
FRI — Málum við borgardóm-
araembættið 1979 fór fækkandi
frá árinu áður. Þannig voru skrif-
lega flutt dómsmál 5312 1979 en
5551 árið áður og munnlega flutt
dómsmál voru 5809 1979 en 6037
árið áður.
Hins vegar fjölgaöi þingfesting-
um, hjónavigslum og könnunar-
vottorðum, en skilnaðarmálum
og sjóferðaprófum fækkaði.
Alls voru skilnaðarmál 1979,
504, voru 531 árið áður. Leyfum til
skilnaðar frá boröi og sæng fækk-
aði litillega eða um tvö, voru 186,
1979 en 188 áriö áður.
&ju<hoVi>T Þ/jo
KAA/AlSKt' \ne> c
iútíM&tftÍTj)
JO(' FfíMNbsHÚ"'
öiðftSTfl Fí./íb'iro'*,:
outtfíe., PÍLTA*. éF
Þft MAKnfít-
kafr>A plC,- ""
0& V u/von/u ttófju/n
CLfy N6 um HsrÞAJ.
CLfiNO éÍAJH(JéC,t
ÞJóescfruaj
lAt&AAJf)
neALcé&Þ
< ÞéTTA étL/LHÍ | COtMÍiyc, HéFUA í
fULLHÍd>é AÞAUQtVA' tit f
* TÍLVÍLÍUAJU* LHl4tO/*i> YMUie. i
HéFUA SéfJT YKtMé TM.
l9fr/A*.fíVKkut
eUAJTU'