Tíminn - 11.01.1980, Side 3
Föstudagurinn 11. janúar 1980
3
Stórbætt að-
staða í Hlíðar-
fjalli
— Enn óráðið hvenær nýja lyftan
verður sett upp
JSS — „Ekki er alveg vitaö
hvenær nýja lyftan veröur sett
upp hér i Hliðafjalli, en þaö mál
er nú undir smásjánni i f járhags-
áætlun Akureyrar”, sagöi Her-
mann ífigtryggsson iþróttafulltrúi
á Akureyri i viðtali viö Timann.
Sagði hann enn fremur aö siöast-
liðið sumar hefði verið lokað við
að steypa undirstöður undir nýju
skiðalyftuna.
Varðandi kostnað við þessar
framkvæmdir sagði Hermann, að
hann væri áætlaður kr. 39 milljón-
ir við undirstöður og uppsetningu.
Enn hefði ekki verið gengiö frá
kaupum á lyftunni, en búiö væri
að ákveða gerð hennar, og væri
allur undirbúningur miðaöur við
það. Lyftan yrði væntanlega
keypt frá fyrirtækinu Kopper-
meyer i Austurriki, og verð henn-
ar væri á núverandi gengi um 52
milljónir. Hefðu hinar lyfturnar i
Hliöarfjalli verið keyptar hjá
þessu sama fyrirtæki.
Aðstaða til skiðaiþrótta var
mikið bætt siðastliðiö sumar, og
aðspurður um þær framkvæmdir
sagði Hermann aö m.a. hefði ver-
ið byggð viðbótarbygging upp við
svokallaða Strýtu, og þar hefði
verið komið upp greiðasölu og
snyrtingu fyrir almenning. Þá
hefði mótsaðstaða verið stækkuð
og bætt og stökkbrautin við As-
garð lagfærð. Þá hefði fjarskipta-
kerfið i fjallinu verið bætt, auk
þess sem ný sjálfvirk timatöku-
tæki hefðu ve'rið keypt. Loks hefði
verið gengið frá iöggildingu svig-
og stórsvigsbrautar i Hliöafjalli.
Happdrætti Háskóla Islands byrjar nýtt happdrættisár:
Hæsta vinningshlut-
fall í heimi
HEI — Happdrætti Háskóla
Islands er nú aö byrja nýtt
happdrættisár. Verð happ-
drættismiðanna hækkar að
sjálfsögðu i samræmi við aðrar
hækkanir i þjóðfélaginu. Kemur
þar hvorttveggja til, að fjárþörf
Háskólans eykst með hækkandi
verðlagi og einnig hitt aðfor-
ráðamenn happdrættisins telja
að viðskiptavinir þess vilji að
miðaverðið fylgi verðlagi svo
bjóða megi áhugaverða vinn-
inga. En heildarverðmæti vinn-
inga hækkar hlutfallslega jafnt
og miðaveröið. Sem fyrr er 70%
veltunnar varið i vinninga, sem
mun vera hæsta vinningshlut-
fall happdrættis i veröldinni.
Að þessu sinni verður þó f jöldi
og upphæð hæstu vinninganna
óbreytt, þ.e. 9 fimm milljón
króna vinningar, 18 tveggja
milljóna og 198 einnar milljóna
króna vinningar, sem hins-
vegar geta nifaldast að verö-
gildi hjá þeim sem eigaalla mið-
ana auk trompmiöans af vinn-
ingsnúmerinu. Eins og flestum
mun i fersku minni unnu ung
hjón i Stykkishólmi 45 milljónir
á eitt númer á s.l. ári, I Happ-
drætti Háskólans.
Hins vegar hækka lægstu
vinningarnir úr 25.000 i 35.000
krónur. 100 þúsund króna vinn-
ingar veröa meira en þrefalt
fleiri i ár en i fyrra, eöa 12.852 og
500 þús kr. vinningar veröa
meira en tvöfalt fleiri, eða 1.053
I ár.
Vinningaskráin i ár lítur
þannig út:
Vinningar: Upphæð Heildar-
upphæð:
9 5.000.000
18 2.000.000
198 1.000.000
1.053 500.000
12.852
120.420
450 aukav
= 135.000
45.000.000
36.000.000
198.000.000
526.500.000
100.00 1.285.200.000
35.000 4.214.700.000
100.000 45.000.000
Alls. 6.350.4000.000
Síðuhverfið á Akureyri
verðiagning dag- stækkar ððfluga
blaða gefin frjáls
A fundi verðlagsráðs miðviku-
daginn 9. janúar s.l., var ákveðið
að gefa verðlagningu dagblaöa
frjálsa og hefur rikisstjórnin
samþykkt þá ákvörðun. Jafn-
framt skyldar verðlagsstofnun
dagblöðin til að senda stofnuninni
tilkynningar um breytingar á
verðtöxtum einum mánuöi áður
en þeim er ætlað að taka gildi.
JH — Akureyringar hafa á
undanförnu verið að byggja stór
ný hverfi utan við Glerá ofan við
og út frá hinu gamla Glerárþorpi.
Þar hefur risið upp svonefnt Siðu-
hverfi.
Nú hefur bygginganefnd Akur-
eyrarkaupstaðar óskað heimildar
bæjarráðs til þess að auglýsa nýj-
ar ibúðarhúsalóðir og verslunar-
lóðir i þessu hverfi, samkvæmt
fyrri samþykkt skipulagsnefndar
og bæjarstjórnar. Þetta er þriðji
áfangi byggingaframkvæmda i
Siðuhverfi, og er lagt til, að götur
þessar heiti Móasiða, Möðrusíða,
Bogasiða, Bakkasiða, Bæjarsiða
og Kjalarsiða.
I þessum áfanga verða einnig
götur, sem gert er ráð fyrir aö
kallist Búðasiða, Brekkusiöa og
Brattasiða.
' í t
ít áÉ
Frá höfninni á Akureyri.
Akureyri:
Mynd Hjálmar.
Framtíðarskipulag
hafnarinnar tíl umræðu
FRI — Framtíðarskipulag
hafnarinnar og gerð hafnar-
mannvirkja á Akureyri er nú til
umræðu, og samþykkti hafnar-
stjórn á fundi i miðjum des. s.l. aö
fela bæjarstjóranum gerð at-
hugunar á skipulagi þessara
mála i framtiðinni.
„Það sem hér er fyrst og fremst
um að ræða er það, að á aðal-
skipulagi Akureyrar fyrir árin
1975-95 er ákveðið svæði hér
skipulagt sem hafnarsvæði, en
þaö er hins vegar ekki til deili-
skipulag af þessu sv'æöi, og það,
sem við viljum gera nú i hafnar-
stjórninni, er deiliskipulag af
svæðinu”, sagði Helgi Bergs,
bæjarstjóri á Akureyri, i samtali
við Timann. „Jafnframt viljum
við reyna að gera okkur grein fyr-
ir þvi hver yrði þróunin i flutning-
um á sjó sem tengist Akureyri.
Hvaða þarfir þessir flutningaaðil-
ar hafa og hve mikils land-
rýmis er þörf, lengd viðlegu-
kanta, o.s.frv.
Við höfum fengið verkfræði-
skrifstofu Sigurðar Thoroddsen
til þess að gera áætlun, sem væri
hægt að byggja sjálfa deiliskipu-
lagninguna á, safna tölulegum
upplýsingum og gera spár.
„Það er ýmislegt I bigerö hjá
okkur á þessu ári”, sagöi Helgi,
„kannski ekki mikið af nýjum
framkvæmdum, en viö höfum
verið með ýmsar stórar fram-
kvæmdir i gangi sem áfram verð-
ur unnið við núna á árinu.
Með þvi markverðasta sem i
áætlun er þá á ég von á þvi að
byrjað verði á að laga götuna sem
liggur þvert i gegnum bæinn. Hún
verður færð til. Hún hliðrast aö-
eins til austurs vegna uppfylling-
ar i Pollinn, eða yfir Torfunes-
bryggjuna. Ef einhverjir pening-
ar verða til þá veröur byrjað á
þessu nú á árinu. Þessi gata hefur
verið erfið umferðarlega séð.
Væntanlega veröur einnig byrj-
að að breyta Hafnarstrætinu og á
Ráðhústorgi i göngusvæöi sam-
kvæmt skipulagi bæjarins.”
Flugstöðin enn
við lýði
Arnarflug hefur óskað birtingar
á eftirfarandi tilkynningu:
Að gefnu tilefni viljum viö geta
þess að Flugstöðin h/f i Reykja-
vik hefur ekki lagt niður starf-
semi sfna, svo sem skilja má i
fréttum ýmissa fjölmiðla að
undanförnu. Hins vegar hefur
Arnarflug keypt eina flugvél af
Flugstöðinni og tekið á leigu af-
greiðslu og viðhaldsaöstöðu i
húsakynnum Flugstöðvarinnar á
Reykjavikurflugvelli. Flugstöðin
mun verða þar áfram til húsa og
verður náin samvinna meðal
þessara tveggja flugfélaga i
leiguflugi og öðrum óreglubundn-
um verkefnum.
Slökkvilið Akureyrar:
Útköll voru 80
á síðasta ári
JSS— A siðasta ári var Slökkviliö
Akureyrar kvatt út 80 sinnum en
109 sinnum áriö áöur, að þvi er
segir i frétt frá slökkviliðsstjóra.
Munar þarna mestu um aö sinu-
brunar voru óvenjufáir á árinu.
Stærsti eldsvoðinn varö 2. júni i
Reynilundi 1.
Sjúkraflutningar voru 978 á ár-
inu 1979, þar af 167 utanbæjar. Ar-
ið áður voru sjúkraflutningar 941,
þar af 185 utanbæjar. Af þessum
978 sjúkraflutningum á árinu
voru 95 slysatilfelli.
Skipting atvinnu eftir kjördæmum:
Hver vinnur
fyrir hverjum?
HEI — t nýlega útkomnum
hagtölum er aö finna skiptingu
mannafla milli framleiösluat-
vinnugreinanna eftir kjördæmum
og sem hlutfall af vinnandi fólki i
hverju kjördæmi.
Þar kemur fram að innan við
þriðjungur Reykvikinga, eða tæp-
lega 32%, vinnur við framleiðslu-
greinarnar svokölluðu, þ.e. iðnað
(þjónustuiðnaður innifalinn),
landbúnað og fiskveiðar. I
Reykjaneskjördæmi vinna rúm
57% við þessar atvinnugreinar en
i öllum öðrum kjördæmum snýst
hlutfallið i Reykjavik viö þ.e.
meira en tveir þriðju vinnandi
fólks starfar að þessum fram-
leiðslugreinum. Hæst er hlutfallið
á Vestfjörðum þar sem 75,5%
vinna við þessar þrjár höfuðat-
vinnugreinar. Litlu lægra er þetta
hlutfall á Norðurlandi vestra og
einnig vel yfir 70% á Vesturlandi,
Austfjörðum og Suöurlandi. A
Norðurlandi eystra er hlutfallið
66.6%.